Fréttablaðið - 24.10.2020, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 24.10.2020, Blaðsíða 12
H N O T S K Ó G U R g ra fí sk h ön nu n Rannís auglýsir eftir styrkumsóknum í Tónlistarsjóð til verkefna sem efnt verður til á tímabilinu 1. janúar – 30. júní 2021. Hlutverk Tónlistarsjóðs er að efla íslenska tónlist og stuðla að kynningu á íslenskum tónlistarmönnum og tónsköpun þeirra. Upplýsingar og umsóknargögn er að finna á www.rannis.is. Umsóknum og lokaskýrslum skal skila á rafrænu formi. Hafi umsækjandi áður fengið styrk úr Tónlistarsjóði þarf að liggja fyrir greinargerð um framkvæmd fyrra verkefnis til að ný umsókn komi til greina. Umsóknarfrestur rennur út 2. nóvember 2020 kl. 16.00. Umsóknarfrestir Tónlistarsjóðs eru tvisvar á ári, í byrjun maí og nóvember. Rannís, sími 515 5800, tonlistarsjodur@rannis.is. Styrkir úr Tónlistarsjóði Umsóknarfrestur til 2. nóvember FRAKKLAND Franska ríkisstjórnin setti í nótt á útgöngubann sem mun ná yfir tvo þriðju hluta íbúa Frakklands. Íbúar landsins þurfa að halda til heima hjá sér frá klukkan níu á kvöldin til sex á morgnana. Útgöngubannið var upphaf lega sett á París og átta aðrar borgir fyrir um viku, en nú munu 46 millj- ónir sæta útgöngubanni næstu sex vikur. Hertar aðgerðir Frakka koma í framhaldi af mikilli uppsveif lu COVID-19 þar í landi en 41.622 greindust með smit á fimmtudag. „Tölurnar eru að rísa hratt,“ segir Unnur Orradóttir Ramette, sendi- herra Íslands í Frakklandi. „Það er skimunarstöð beint á móti sendi- ráðinu hér í París og ég hef aldrei séð röðina jafnlanga og í morgun.“ Unnur segir að mikil þreyta sé komin í heilbrigðisstarfsmenn landsins, en á fimmtudag varaði Jean Castex forsætisráðherra við því að nóvembermánuður yrði gríðarlega erfiður fyrir sjúkra- húsin. Yfir tvö þúsund eru nú á gjörgæslu vegna faraldursins í Frakklandi og ná sýktir yfir helm- ing innlagna á gjörgæslu á sumum svæðum. „Sjúkrahúsin eru þegar komin að þolmörkum. Það er mikið um flutn- ing á sjúklingum á milli sjúkrahúsa og það ber á skorti á sjúkraliðum og hjúkrunarfræðingum nánast alls staðar,“ segir Unnur. „Ef þetta heldur svona áfram þá verður ein- hvers konar neyðarástand.“ Unnur segir þó að þótt íbúar Frakklands séu orðnir þreyttir á ástandinu sýni þeir aðgerðunum skilning. „Það hefur verið lítið um mótmæli. Það voru einhver hundruð manna hérna um daginn sem telst nú ekki mikið á franskan mælikvarða.“ Samkvæmt Unni er það helst eldri kynslóðin sem þarf að tala til. „Það er menningin hérna að sitja þétt. Það erfitt að sjá fyrir sér Frakka að hittast án þess að drekka og borða,“ segir hún. „Það þarf að brýna fyrir fólki að það má hitta afa og ömmu, en þá þarf að vera með grímu og spritta sig.“ arnartomas@frettabladid.is Frakkar herða enn á næturútgöngubanni Yfirstandandi næturútgöngubann í Frakklandi var hert í nótt og nær nú yfir tvo þriðju hluta íbúa landsins. Aðgerðirnar koma í kjölfar mikillar uppsveiflu kórónaveirufaraldursins. Sendiherra Íslands í Frakklandi segir íbúa þreytta. Útgöngubannið nær nú yfir tvo þriðju hluta Frakklands. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Ef þetta heldur svona áfram þá verður einhvers konar neyðarástand. Unnur Orradóttir Ramette, sendi- herra Íslands í Frakklandi 42.032 greindust með smit í Frakk- landi í gær. Setið að snæðingi í kúluhúsi Það hefur reynst þrautin þyngri að finna lausnir, eða mögulegar lausnir, á því hvernig fólk getur haldið áfram að lifa lífinu á sem eðlilegastan hátt á meðan heimsfaraldur COVID-19 gengur yfir. Á þessu veitingahúsi í Singapúr er að sjá eina mögulega lausn á því að halda veitingastöðum opnum, er þá hvert borð inni í þar til gerðu kúluhúsi úr plasti. Má gera ráð fyrir að kúluhúsið sé sprittað rækilega eftir hverja notkun. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP ÞORLÁKSHÖFN Íbúi í Þorlákshöfn hefur farið fram á að sér verði veitt leyfi fyrir hænsnahaldi á heimili sínu á ný, í samræmi við reglur um dýrahald í Þorlákshöfn. Við- komandi hefur áður haldið hænur á heimili sínu og vill nú fá leyfi fyrir sex slíkum. Málið var tekið fyrir á fundi skipulags- og umhverfis- nefndar Ölfuss og hænsnahaldið samþykkt á ný, ef dýraeftirlitsmaður Ölfuss dæmir að úrbætur sem voru gerðar standist kröfur til að halda sex hænur. Í umsókninni kom fram að íbúinn hafði verið sviptur leyfi til hænsna- halds. Þegar málið var tekið upp fyrr á árinu kom fram að margar kvart- anir hefðu borist og Umhverfisstjóri hefði oft haft afskipti af hænunum. Í umsókninni var búið að sýna fram á betri aðstæður á lóðinni og sýna viðleitni til að valda nágrönnum sem minnstu ónæði. – kpt Vill hænurnar heim á ný S TJ Ó R N S ÝS L A Fé lag ís lensk ra snyrti fræðinga, Fé lag hársnyrti- sveina, Meist ara fé lag hársnyrta og Fé lag hársnyrti meist ara á Norður- landi ásamt Samtökum iðnaðarins, hafa sent erindi til heilbrigðisráðu- neytisins og Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, þar sem óskað er eftir afstöðu ráðuneytisins til þess hvers vegna þau fái ekki undanþágu frá samkomu banni. Í erindinu segir að undanþága hafi verið veitt til fyrirtækja sem veita snyrtiþjónustu eða sambæri- lega þjónustu sem krefst nándar, undir þeim formerkjum að um sé að ræða heilbrigðisþjónustu. Er sérstaklega nefnt fyrirtækið Húð- fegrun, þar starfa hjúkrunarfræð- ingar en veita samt sem áður sömu þjónustu og er veitt á snyrtistofu. Félögin hafa áður gert athuga- semdir við starfsemi fyrirtækisins og annarra sambærilegra fyrir- tækja þar sem veitt sé þjónusta snyrtifræðinga, sem sé lögvernduð iðngrein, án þess að vera heilbrigð- isþjónusta. Telja félögin að ekki sé gætt jafnræðis og verið sé að raska sam- keppni á markaði. Dæmi eru um að rekstraraðilar hársnyrtistofa hafi kvartað undan óskýrum reglum, en í reglugerð sem samþykkt var í vikunni er kveðið á um að andlitsgrímur skuli notaðar á stöðum á borð við hár- snyrtistofur, en einnig ákvæði um að slík starfsemi eigi að vera lokuð. – ab Telja að ekki sé gætt jafnræðis 2 4 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R12 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.