Fréttablaðið - 24.10.2020, Page 45
Þverholt 2 I Mosfellsbær 270 I Sími 525 6700 I mos.is
Umsóknarfrestur er til og með 7. nóvember 2020.
Umsóknir ásamt starfsferilsskrá og kynningarbréfi sem greinir frá reynslu, menntun og fyrri störfum ásamt rökstuðningi fyrir
hæfni í starfið skulu berast á ráðningarvef Mosfellsbæjar (www.mos.is/storf). Nánari upplýsingar um starfið gefa Jóhanna B.
Hansen framkvæmdastjóri umhverfissviðs eða Tómas G. Gíslason umhverfisstjóri í síma 525-6700. Um framtíðarstarf er að
ræða. Öllum umsóknum verður svarað. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands ísl. sveitarfélaga og viðkomandi
stéttarfélags. Ráðið er í öll störf óháð kyni.
Verkefnastjóri hjá Veitum
MOSFELLSBÆR AUGLÝSIR LAUST STARF VERKEFNISSTJÓRA HJÁ VEITUM MOSFELLSBÆJAR.
Verkefnastjóri hefur umsjón og eftirlit með verkefnum á vegum hita- og vatnsveitu Mosfellsbæjar
og samskipti við verktaka. Starf verkefnastjóra heyrir undir umhverfissvið Mosfellsbæjar og sinnir
innra eftirliti fyrir vatns- og hita- og fráveitu Mosfellsbæjar. Verkefnisstjóri hefur utanumhald um
skráningar og upplýsingagjöf veitna í samráði við fagstjóra veitna. Verkefnastjóri heldur utan um
mælaálestur og endurnýjun mæla, söluskýrslur og árlegt framtal hitaveitu bæjarins og sér um
upplýsingagjöf tengt starfsemi veitna. Um fullt starf er að ræða.
Mosfellsbær er öflugt og framsækið sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og
umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.
Menntunar- og hæfnikröfur:
• Tæknimenntun eða önnur menntun sem
nýtist í starfi, er skilyrði
• Reynsla af vinnu við dreifikerfi veitna eða
veituframkvæmdir nauðsynleg
• Reynsla af verkefnastjórnun er skilyrði
• Þekking á teikniforritum er æskileg
• Góð tölvukunnátta er skilyrði
• Góðir samskiptahæfileikar og hæfni til að
tjá sig í rituðu og töluðu máli nauðsynleg
• Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
Þingeyjarskóli í Þingeyjarsveit auglýsir eftir
leikskólakennara
við leikskóladeildina Barnaborg.
Við leitum að kennara sem:
• Hefur kennaramenntun og leyfisbréf á viðkomandi
skólastigi
• Treystir sér í faglega og metnaðarfulla vinnu
• Er lausnamiðaður
• Er sveigjanlegur og með góða samskiptahæfni
• Er sjálfstæður í vinnubrögðum og sýnir/býr yfir
frumkvæði
• Hefur metnað til að takast á við ný og spennandi
verkefni
• Vill taka þátt í samstarfi og teymisvinnu
• Ber virðingu fyrir börnum og hefur áhuga á að starfa
með þeim
Þingeyjarskóli er samrekinn leik-, grunn- og tónlistarskóli
með rétt um 100 nemendur. Þar af tæplega 30 leikskóla-
nemendur á tveimur starfsstöðvum. Áhersla er lögð á
teymisvinnu og fjölbreytta kennsluhætti innan skólans
sem og að skapa leik- og námsumhverfi sem auðgar
bernsku barna og örvar þroska þeirra. Þingeyjarskóli
hefur hafið innleiðingu á agastefnunni Jákvæður agi.
Rík tónlistarhefð er við skólann.
Lögð er áhersla á samvinnu og sameiginlega ábyrgð
starfsmanna á verkefnum skólans.
Gerðar eru kröfur um mikla hæfni í mannlegum
samskiptum, stundvísi og hreint sakavottorð.
Nýlega flutti leikskóladeildin í nýtt og glæsilegt húsnæði
og starfsaðstaða er til fyrirmyndar.
Möguleiki er á húsnæði á staðnum.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til
að sækja um.
Staðan er laus frá og með 1. janúar 2021.
Umsóknarfrestur er til 15. nóvember 2020.
Umsóknir skulu sendast á netfangið
johannrunar@thingeyjarskoli.is
Nánari upplýsingar veitir Jóhann Rúnar Pálsson
skólastjóri í vs 4643580 /8990702 eða í gegnum
netfangið johannrunar@thingeyjarskoli.is
Vinnvinn | Kringlan 7 | 103 Reykjavík
Sími 552 1212 | vinnvinn@vinnvinn.is | www.vinnvinn.is