Fréttablaðið - 24.10.2020, Page 66
Rauði krossinn á Íslandi hefur frá árinu 2012 stutt við heil-brigðisþjónustu á vegum
sómalíska Rauða hálfmánans
(SRCS) sem miðar að því að bæta
aðgengi íbúa landsins að grunn-
heilbrigðisþjónustu með sérstakri
áherslu á konur og börn,“ segir
Natalia Herrera Eslava hjá Rauða
krossi Íslands.
Efla heilbrigðisþjónustu
Fyrir átta árum var sett á lagg-
irnar svokölluð færanleg heilsu-
gæsla. „Árið 2012 varð samstarfið
kveikjan að færanlegri heilsugæslu
sem þjónustar hirðingjasamfélög
í Hargeisa í Ghalbeed-héraði í
Sómalíu. Þökk sé fjárstuðningi frá
utanríkisráðuneytinu og fram-
lögum frá Mannvinum Rauða
krossins á Íslandi, höfum við getað
stutt við lækna og hjúkrunarfræð-
inga sem veita um 30.000 manns
nauðsynlega heilbrigðisþjónustu,“
útskýrir Natalia.
„Sérstök áhersla er lögð á
að veita þunguðum konum og
mæðrum fræðslu, bólusetja börn
og styðja við foreldra vannærðra
barna. Færanlega heilsugæslan
hefur verið starfrækt í átta ár og
á þeim tíma stuðlað að bættum
lífsgæðum og auknum lífslíkum
meðal kvenna og barna á svæðinu
og annarra íbúa.“
Verkefnið hefur meðal annars
falið í sér aukna þjálfun og fræðslu
á vegum Rauða hálfmánans í Sóm-
alíu. „Í janúar 2020 byrjaði Rauði
krossinn að innleiða Continuum
of Care-verkefnið, í samstarfi við
sómalíska Rauða hálfmánann og
Rauða krossinn í Kanada. Verkefn-
ið miðar að því að styðja við sam-
félagsmiðuð úrræði og grunnheil-
brigðisþjónustu, ásamt því að efla
getu sómalíska Rauða hálfmánans
til þess að vernda viðkvæma hópa.
Þetta leiddi til þjálfunar sem
miðar að því að koma í veg fyrir
kynfæralimlestingar stúlkna, efla
blæðingaheilbrigði, ásamt því að
koma í veg fyrir og bregðast við
kynferðislegu of beldi.“
Kynbundið ofbeldi eykst
Natalia segir heimsfaraldurinn
hafa haft í för með sér óhugnan-
legar afleiðingar meðal sómalískra
kvenna og stúlkna. „Fljótlega eftir
að innleiðing verkefnisins hófst
skapaði útbreiðsla COVID-19
sérstakar áskoranir fyrir nærsam-
félagið í Sómalíu. Viðbrögðin við
heimsfaraldrinum leiddu í ljós að
konur og stúlkur urðu fyrir hlut-
fallslega meiri áhrifum af COVID-
19, með ískyggilegri aukningu á
kynfæralimlestingum á stúlkum,
barnabrúðkaupum og kynbundnu
of beldi.“
Ráðist var í margþættar aðgerðir
en ljóst er að mikið verkefni er
fyrir höndum. „Rauði krossinn á
Íslandi ásamt samstarfsaðilum fór
þá í að laga sig að aðstæðunum til
þess að tryggja áfram viðeigandi
stuðning með endurúthlutun á
fjármagni, ásamt því að bjóða
upp á sérfræðistuðning til þess að
bregðast við COVID. Þó þarf stöð-
ugt að bregðast við kynbundnum
áhrifum COVID á áhrifaríkan hátt,
bæði til skemmri og lengri tíma,
til að tryggja áframhaldandi fram-
gang í baráttunni fyrir réttindum
kvenna í Sómalíu.“
Það sem veldur hvað mestum
áhyggjum er aukning á kynfæra-
limlestingum. „Afleiðingar af þeim
hömlum sem fylgja COVID, lok-
unum á skólum og atvinnumissi
hafa haft mismunandi áhrif á
konur og stúlkur um allan heim. Í
Sómalíu hafa aðgerðir gegn COVID
komið í veg fyrir að stúlkur geti
sótt skóla, sem eykur líkurnar á
að þær verði fyrir kynfæralimlest-
ingum, þar sem þær hafa nú nægan
tíma til að láta sárin „gróa“. Þetta
eykur líka líkurnar á því að fjöldi
stúlkna fái ekki að halda áfram í
námi sínu, sem þýðir auknar líkur
á kynfæralimlestingum í fram-
tíðinni, þar sem hlutfall þeirra
sem framkvæma þessa iðju er hæst
meðal ómenntaðra mæðra.“
Aukið atvinnuleysi og fátækt
hefur einnig haft mikil áhrif.
„Skortur á lífsviðurværi hefur líka
knúið eldri konur, sem sjá oftast
um að skera, til þess að bjóða frek-
ar upp á þjónustu sína, svo að þær
geti aflað tekna. Eins og staðan
er í dag þá hafa 98% sómalískra
kvenna undirgengist kynfæralim-
lestingar og um 80% af þeim eiga
sér stað gagnvart stúlkum undir
fimm ára aldri. Sú tilhugsun að
þessi tala fari hækkandi árið 2020
er mikið reiðarslag.“
Mikilvægt að bregðast við
Nýlegt mat sýndi fram á alvarlegar
og margþættar afleiðingar á stöðu
sómalískra kvenna og stúlkna, í
kjölfar atburðarásar undanfarinna
mánaða. „Samhliða þessu hafa
fjölskyldur fundið fyrir auknum
þrýstingi á að selja dætur sínar í
ráðstöfuð hjónabönd, til þess að
bregðast við fjárhagserfiðleikum.
Mat sem fór fram á vegum mann-
fjöldasjóðs Sameinuðu þjóðanna
árið 2020, sýndi fram á aukningu
kynbundins of beldis og kynfæra-
limlestinga í Sómalíu, á sama tíma
og dregið hefur úr aðgengi kvenna
og stúlkna að heilbrigðisþjónustu
á borð við mæðravernd, kyn-
fræðslu og næringarfræðslu,“ segir
Natalia.
„Brýnasta áskorunin er sú að
tryggja aðgengi viðkvæmra hópa
að öruggri heilbrigðisþjónustu,
ásamt því að efla klíníska með-
höndlun á málum er snúa að
nauðgunum og öðru kynferðis-
ofbeldi, félagssálræna ráðgjöf, for-
varnir og viðbrögð við kynfæralim-
lestingum, svo eitthvað sé nefnt.“
Natalia bendir á að ýmsar
leiðir séu í boði í baráttunni gegn
kynfæralimlestingum. „Það er
hægt að bregðast við með ólíkum
aðgerðum. Aukinn skilningur og
meðvitund um vandamálið hefst
með því að hlusta og læra af þeim
sem hafa lifað af kynfæralimlest-
ingar. Það er áhrifaríkt að styðja
við sómalíska samfélagið á Íslandi,
stofna til vináttu, sýna menn-
ingunni virðingu og áhuga, og að
stuðla að auknu frumkvæði innan
samfélagsins, í baráttunni gegn
kynfæralimlestingum,“ útskýrir
hún.
Stuðningur við Sómalíu
„Þá er líka gagnlegt að styðja við
starfsemi samtaka sem þú treystir
og geta veitt beinan stuðning til
Sómalíu, annað hvort með sjálf-
boðastarfi eða með því að bjóða
fram sérþekkingu eða fjármagn til
þess að tryggja það að áform þín
verði að aðgerðum.“
Áríðandi sé að sýna samstöðu.
„Þetta skiptir máli vegna þess að
allar konur og stúlkur eiga rétt á að
lifa lífinu án ofbeldis, skaða og ótta
og öll samfélög ættu að hafa aðgang
að vandaðri og viðráðanlegri heil-
brigðisþjónustu. Við erum saman
í þessu!“
Ofbeldi gegn konum eykst
Áhrif COVID á stöðu sómalískra kvenna og stúlkna er mikið áhyggjuefni. Faraldurinn hefur leitt
til aukinnar berskjöldunar viðkvæmra hópa gagnvart kynbundnu ofbeldi, barnabrúðkaupum og
kynfæralimlestingum, en öll þessi vandamál og fleiri hafa aukist umtalsvert í kjölfar faraldursins.
Natalia Herrera Eslava, verkefna-
stjóri Rauða krossins á Íslandi .
Mynd af
vettvangi frá
þjálfun sjálf-
boðaliða, sem
svo þjálfa aðra
í forvörnum og
viðbrögðum
gegn kyn-
bundnu ofbeldi,
í Hargeisa í
Sómalíu.
Sjálfboðaliðar Rauða hálfmánans fá fræðslu og þjálfun á vegum Rauða krossins á Íslandi. MYNDIR/AÐSENDAR
8 2 4 . O K TÓ B E R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U RHJÁLPIN FRÉTTABLAÐ RAUÐA KROSSINS