Fjölrit RALA - 13.09.1980, Page 27
21
Beitargróóur.
í samvinnu við gróðurrannsóknir var hafin athugun á plöntuvali sauðfjár
og næringargildi beitargróðurs (sjá kaflann um gróðurrannsóknir og gróður-
kortagerð).
NAUTGRIPARANNSÓKNIR.
1. Á vegum graskögglanefndar, sem skipuð var samkvæmt tillögu vorfundar 1978,
var unnið aó skipulagningu graskögglatilrauna fyrir mjólkurkýr. Nefndin
gerði tillögur um eftirfarandi tilraunir:
a) Möðruvellir. Tvisvar 4 kýr í flokkatilraun með snemmslegið og
síðslegió hráefni í graskögglum sem fóðurbæti. Tilraunin var gerð í samvinnu
við Ræktunarfélag Norðurlands. Unnið er að uppgjöri og skýrslugerð.
b) Laugardælir. Fjórum sinnum 5 kýr í flokkatilraun með grasköggla og
kjarnfóður. Hráefnis til graskögglanna var aflað af sömu spildu og 1 a , en
á sláttutíma þar á milli.
Tilraunaliðir voru þessir:
a. Fóðurgildi grasköggla sagt 1.0 kg/F.fe.
b. " " " 1.15
c. " " "1.30
d. Kjarnfóður.
Unnið er að uppgjöri og skýrslugerð með 1 a.
2. Athugaður var átlystarvandi, sem upp kom í mjólkurkúm á fóðri frá
fóðursala. Reyndist unnt að einangra eitt fóðurefni fiem ótvíræðan áhrifa-
vald. Ekki var unnt að útiloka áhrif sumra tegunda fiskimjöls.
FÓÐRUNARTILRAUNIR MEÐ HOLDANAUT.
Á árinu voru gerðar í samvinnu við Landgræðslu ríkisins tvær tilraunir með
fóðrun holdanautakálfa í Gunnarsholti og þriðja tilraunin hófst í desember.
Gerð var tilraun með fisk- og hvalmeltu sem próteinuppbót á fóður 6-7
mánaða gamalla (um 167 kg) holdanautakálfa. Fengu þeir reyðarhvalsmeltu,
búrhvalsmeltu, slógmeltu, grásleppumeltu og loðnumeltu. Einnig var reynd fóðrun
á graskögglum með íblandaðri slógmeltu. Allir hóparnir fengu grunnfóður
úr eggjahvíturýru heyi og fitublönduðum graskögglum. Til samanburð-
ar var annars vegar gefið loðnumjöl ásamt grunnfóðrinu og hins vegar grunnfóður