Fjölrit RALA - 13.09.1980, Side 36
28
1 tengslum við áðurnefnda tilraun voru gerðar nokkrar mælingar til
að kanna hita- og rakaframleiðslu sauðfjár £ innistöðu. Slík vitneskja
er nauðsynleg til að kveða á um einangrunar- og loftræstiþörf húsanna.
Var í því skyni smíðaður sérstakur klefi og gerðar nokkrar frummælingar.
Benda þær til þess, að aðferðin sé nothæf, og verður mælingum fram haldið.
Þá voru á árinu hafnar athuganir á notagildi gólfrista úr málmi í fjárhúsum.
Allmikill áhugi er meðal bænda á slíkum ristum, bar sem timburgólf eru mjög
kostnaðarsöm í viðhaldi. Erlendis hefur notkun slíkra rista íarið mjög í
vöxt síðari ár og því talin ástæða til að kanna notagildi þeirra við
hérlendar aðstæður.
Nokkur tæki til notkunar í útihúsum voru prófuð á árinu, þar á meðal
heydreifibúnaður í hlöður. Notkun slíks búnaðar hefur farið mjög í vöxt
undanfarin ár, en hann léttir mjög vinnu bæði við fyllingu og losun hey-
geymslnanna með hóflegum tilkostnaði. Einnig er líklegt, að súgþurrkun verði
mun jafnari og rúmþyngd heysins meiri og þar með fáist betri nýting hlöðu-
rýmisins.
Bútæknideild veitti aðstoð og aðgang að upplýsingum við gerð aðalverk-
efnis ólafs Jóhannessonar, nema í búvísindadeild. Verkefnið beindist að því
að gera samanburð á rörmjalta- og mjaltabásakerfum.
Eins og undanfarin ár voru haldnir nokkrir fundir með starfsmönnum
Byggingarstofnunar landbúnaðarins og bútækniráðunaut B.í. um ýmis tæknileg
atriði varðandi útihúsabyggingar.
EFTIRLITSDEILD.
Samkvæmt lögum nr. 53/1978 er starfandi sérstök deild, - eftirlitsdeild,-
við RALA. Hlutverk deildarinnar er að annast eftirlit með fóðurvörum, áburði
og sáðvörum.
1. Fóðureftirlit.
Fóðureftirlitsstarfið hefur verið með líku sniði og undanfarin ár. Rann-
sóknastofa RALA sér um framkvæmd efnagreininga. Um einstakar rannsóknir
er leitað til annarra aðila, Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins, Tilraunastöðv-
ar Háskólans í meinafræði að Keldum o.fl. auk erlendra aðila. Starfið er
einkum fólgið í því að taka sýni af fóðurvörum, koma þeim í rannsókn,
vinna úr rannsóknaniðurstöðum og hafa samband við aðila og sinna beiðnum
þeirra, bæði kaupenda og seljenda.
Starfssvæðið er allt landið. Verkefnið er svo viðamikið, að vonlaust er,
að einn starfsmaður anni því. Staða fóðureftirlitsmanns var auglýst í lok