Fjölrit RALA - 13.09.1980, Side 40

Fjölrit RALA - 13.09.1980, Side 40
32 GRÓÐURRANNSÖKNIR OG GRÓÐURKORTAGERÐ. 1. Rannsóknastörf, a) Gróðurkortagerð. Einkum var unnið að gróðurkortagerð á eftirtöldum svæðum: í Strandasýslu, á Fljótsdals- og Möðrudalsöræfum, í Noður-Þingeyjarsýslu, á Kjalarnesi og í Kjós og Mosfellssveit. Þetta er í fyrsta sinn, sem unnið er að gróðurkortagerð í Strandasýslu. Þar er ekki um beina gróðureyðingu að ræða af völdum uppblásturs eða vatns- skolunar, en heimamenn telja, að víða sé orðið mjög þröngt í högum, einkum í syðri hreppum sýslunnar. Kemur það meðal annars fram í minnkandi fallþunga fjárins, en Strandamenn hafa hingað til getað státað af því að eiga vænsta fé á landinu. Notazt var við gamlar myndir, þar sem nýjar myndir hafa ekki verið teknar af sýslunni um langt árabil. Gert. var gróðurkort af svæðinu milli Bitrufjarðar og Steingrímsfjarðar, bæði hálendi og láglendi. Ráðgert er, að gera kort af öllum suðurhluta sýslunnar næsta sumar. Á Fljótsdalsheiði og Möðrudalsöræfum var verið að endurskoða kort, sem gerð voru af þessum svæðum fyrir 6-7 árum, og endurmeta gróður þeirra vegna mikillar hreindýrabeitar, sem þar er. Þessi vinna var aðallega unnin að beiðni og á kostnað Orkustofnunar vegna hugsanlegra virkjunarframkvæmda. Á F1jótsdalsheiði og svæðinu í kringum Snæfell virðist mega sjá þess glögg merki, að sum gróðurlendi liggja undir skemmdum vegna aukinnar hreindýrabeitar á síðari árum. Sú breyting hefur orðið á hegðun hrein- dýranna, að þau halda sig nú að langmestu leyti á þessum slóðum á sumrin, enda má ekki skjóta þau þar. Árið 1978 voru þar t.d. milli 1500 og 1700 hreindýr. Þetta hefur öðru fremur leitt til þess, að fléttugróður hefur horfið nær algerlega og þurrlendisgróður er tekinn að eyðast, bæöi vegna beitar og mikils traðks dýranna. Orkustofnun hefur áætlað að rannsaka mjög ítarlega .dýralíf og gróðurfar á þessum slóðum næstu þrjú ár. Unnið hefur verið að kortlagningu í Norður-Þingeyjarsýslu austan Jökuls- ár á Fjöllum, undanfarin tvö sumur, en þó einkanlega 1978. Stefnt er að því að ljúka kortlagningu af sýslunni allri og Norður-Múlasýslu suður að Jökulsá á Brú á næstu tveimur sumrum. í Norður-Þingeyjarsýslu er mikil gróður- cg jarðvegseyðing brátt fyrir mikið starf Landgræðslu ríkisins í sýslunni. Til skamms tíma var ekki talið, að um þrengsli í högum væri að ræða þar, en nú telja bændur sjálfir, að þeirra sé farið að gæta og komi æ betur í ljós í afurðum búfjárins. Þetta á þó ekki við um alla sýsluna, enda er víðátta gróðurlendis þar í heild mikil miðað við búfjárfjölda.

x

Fjölrit RALA

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjölrit RALA
https://timarit.is/publication/1497

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.