Fjölrit RALA - 13.09.1980, Síða 56
46
Upp var skoriö 23. september.
Við uppskeru voru eftirtaldir þættir mældir og taldir;
Bygg: 1. fjöldi blaða á aðalstöngli,
2. fjöldi axbærra stöngla á hverri plöntu,
3. fjöldi axa á flatareiningu*
4. hæð aðalstönguls,
5. fjöldi koma í axi,
6. lega,
7. þurrefnisinnihald korns,
8. þúsundkornaþyngd.
Repja: 1. fjöldi plantna á flatareiningu/
2. uppskera á flatareiningu,
3. þurrefnisinnihald,
Geymd voru sýni af komi og repju til efnagreiningar síðar, ef nauðsyn-
legt verður talið.
VISTFRÆÐIRANNSÓKNIR.
Vistfræðirannsóknir á viðfangsefnum, er varða landbúnað, hófust með
landgræðsluáætlun 1975.
Árið 1979 var haldið áfram að kanna áhrif víðtækrar ræktunar, svo
sem þurrkun mýra og uppgræðslu lands, á umhverfi og lífríki.
Enn fremur var fengizt við búveöurathuganir og tekið til við hlunninda-
athuganir á árinu.
1. Athugun á áhrifum þurrkunar í fjallamýri. Kannað var lífríki hálf-
þurrkaðrar nýrar og önnur hliðstæð óframræst tekin fyrir til samanburðar. Mið
var haft af framkvæmdalýsingu undangenginna rannsókna á Hestsmýri.
2. Rannsókn á þurrkun mýrlendis að Hesti. Hér er um að ræða samvinnu-
verkefni margra aðila. Haldið var áfram að mæla efnainnihald og rennsli yfir-
borösvatns á svæðinu og kanna jarðvegseyðingu af völdum vatnselgs. Fylgzt
var með þroska grasa og fuglalífi m.m. Gróðursýni voru tekin til að mæla
orkuflæði í raýrinni og rotnunarhraða jurta.
3. Eftirlit var haft með mengun vatns vegna búskapar á þann hátt,aö tekin
voru vatnssýni á ýmsum tímum árs úr skurðum, læk og á og þau síðan efnagreind.
4. Notkun plaströra við 'framræslu var reynd í sambandi við ræsingu á
mýri að Hesti.
5. Á árinu var fylgzt með uppgræðslureitum á hálendi og raældar