Fjölrit RALA - 13.09.1980, Síða 61
51
TILRAUNASTÖÐIN Á KORPU.
Starfsemin á Korpu er í nokkuð föstum skoróum frá ári til árs. Innan
veggja eru gróðurhúsaverkefnin tímafrekust. Þar fer fram uppeldi plantna
svo sem garðjurta vegna stofnasamanburðar, trjáplantna í skjólbelti og til
umhverfisfegrunar, berjarunna vegna úrvals og fjölgunar, blómplantna til
skrauts og grastegunda vegna jurtakynbóta og stofnaprófana. Þá hefur Sigur-
geir ólafsson í gangi umfangsmikiö verkefni til aðfá fram og fjölga heilbrigöum
kartöflustofnum af afbrigðunum Rauðum íslenskura, Gullauga, Helga og Bintje.
Þetta krefst mikillar nákvæmni og þolinmæði í starfi og er á ýmsan hátt
óheppilegt að geta ekki einangrað verkefnið frá öðrum plöntugróðri. Þessi
ræktun Sigurgeirs fer fram allt árið og er raflýst skammdegismánuðina
en jafnan er eitthvað af byggi ræktað að vetri undir rafljósum (bæði víxlun
og fjölgun einstakra afbrigða).
1 nokkrum hluta Korpuhússins (einni álmu) er sauðfénaður geymdur árið
um kring vegna meltanleikarannsókna og fóðurgildisákvarðana.. Þá eru þar
nokkrar ær sem notaðar hafa verið til að fylgjast með plöntuvali sauðfjár.
Brýn þörf er á að reisa fjárhús yfir sauðfénaðinn/því að þörf er fyrir þetta
húsnæði.
Þrjú plastskýli, óupphituð, voru í notkun síðastliðið suroarog í þeim gras og
gulrófur til fræræktunar. Frætekja var góð af gulrófunum,en síðri af vallar-
foxgrasinu, og er trúlega um að kenna lélegri frjóvgun vegna lítillar loft-
dreifingar. í einu þessara skýla eru kartöflur til fjölgunar.
Utan húss fóru fram stofnaprófanir á hvítkáli, spergilkáli, blómkáli og
hnúðkáli. Þessi samanburður stofna er framhald frá fyrra ári og heldur trú-
lega áfram næsta sumar. Þá eru í ræktun og fjölgun berjarunnar,svo sem sólber,
stikilsber og rifsber, tröllasúruafbrigði allmörg, nokkur jarðarberjaafbrigði
o.fl. Niðurstöður þessara tilrauna og athugana munu birtast í Fjölriti RALA
nr. 40.
Viðhald bygginga var það, að máluð voruþök, veggir og gluggar utan húss og
timbur fúavarið,en innan húss voru gólf lökkuð og forstofa máluð. Byrjað var
á nýbyggingu jarðeplageymslu, teikningar fengnar, grafið fyrir undirstöðum
og efni flutt að. Stefnt er að því að fullgera geymsluna næsta vor.
Skjólgirðing umhverfis heimagarð (runna og trjáa) var tekin niður vegna
stækkkunar garðsins og hrörnunar girðingarinnar og grafið fyrir nýjum staurum.
Keypt voru skólprör og komið fyrir í holunum en járnstaurar verða síðan steypt-
ir fastir í skólprörin næsta vor og ætti þetta að vera traustari og varanlegri
uppistaða skjólsins en tréstaurar.
Heyskapur var nokkur síðastliðið sumar og heyið notað handa sauðpeningnum á
Korpu. Tilfinnanlega vantar geymslu undir heyið eins og sauðfénaðinn.