Fjölrit RALA - 13.09.1980, Side 64

Fjölrit RALA - 13.09.1980, Side 64
54 með tilliti til læraholda. Þangmjölstilraun var lokið á árinu og er nú unnið að uppgjöri hennar. Afkoma sauðfjárbúsins var viðunandi miðað við árferði, frjósemi svipuð og verið hefur, heilsufar gott og vanhöld ekki meiri en venjulegt er. Fallþungi dilka var nú rúm 14 kg. Um samanburð á dætrum aðkeyptra hrúta og heimahrúta er þetta helzt að segja: Frjósemi dætra aðkeyptu hrútanna var allmisjöfn, einn hópurinn áberandi ófrjósamari, en hinir tveir álíka og dætra heimahrúta, þó heldur lakari. Ull eins hópsins af aðkeyptum feðrum var um 1 kg yfir meðaltal allra hópanna og verður fylgzt náið með því áfram. Ákveðið var á síðastliðnu ári að endurbæta fjárhús, svo að framleiða mætti ull óskemmda af húsvist. Hafizt var handa í haust um þær framkvæmdir. Smíðaðir voru nýir garðar í húsin og slæðigrindur í alla garða. Loftræsti- viftur voru settar í húsin ásamt tilheyrandi smíðum í strompum. Þá voru húsin einangruð að hluta, en þessum framkvæmdum er ekki að fullu lokið, og má því ekki vænta á þessum vetri fulls árangurs. Um rekstur er það að segja,að alltaf eru sömu fjárhagsvandræðin. Að visu er gert ráð fyrir hækkun verðbólgu í fjárveitingum, en aldrei eins miklum og verðbólga raunverulega krefst. Er því alltaf sama féleysið ár eftir ár. Á árinu voru bæði útihús og íbúðarhús raáluð að utan að mestu leyti. Jafnaðir voru ruðningar og grófunnið land um 3 ha. að stærð sem fyrirhuguð er að nota bæði til tilrauna og túnræktar. Heyfengur var heldur minni en í meðalári að vöxtum, en gæði miklu meiri en undanfarin ár, svo að litlu mun muna á fóðurgildi. Skiptir og mestu máli að fóðurgæði séu sem mest, en ekki magn. TILRAUNASTÖÐIN Á MÖÐRUVÖLLUM. Starfsemin var svipuð og verið hefur. Reynt var eftir megni að þoka áfram uppbyggingu og viðhaldi stöðvarinnar, en láta það þó ekki verða á kostnað tilraunastarfseminnar. Samstarfsnefndin, sem skipuð er einum manni úr hverri sýslu í Norðlendingafjórðungi, kom tvívegis saman til fundar á Möðruvöllum samkvæmt þeim markmiðum,sera nefndin setti í upphafi. Samstarf var með ágætum við aðrar stofnanir í fjórðungnum,og störfuðu einstakir héraðsráðunautar, starfsmenn Bændaskólans á Hólum og Ræktunarfélags Norðurlands með starfsmönnum stöðvarinnar að ýmsum tilraunum. Jósavin Gunnarsson lét af bústjórastarfi síðast á árinu 1978,en ÞÓrður G. Sigurjónsson tók við 1. marz 1979. Bjarni E. Guðleifsson tilraunastjóri fór til Kanada 1. nóvember og mun starfa þar að kalrannsóknum eitt ár.

x

Fjölrit RALA

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjölrit RALA
https://timarit.is/publication/1497

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.