Fjölrit RALA - 13.09.1980, Side 67
57
Vélar og áhöld.
Keypt var haugsuga, sturtuvagn og tilraunasláttuvél.
Jarðrækt.
Lokað var 2.5 ha af nýrækt. Grænfóður var í 9.4 ha.
Gestakomur.
Tilraunastöðvanefndin kom hingað á árinu og hélt hér fund. Með nefndinni
kom dr. Bjöm Sigurbjörnsson. Nefndin hélt annan fund á Egilsstöðum með
stjórn BSA.
Hans Blix, utanríkisráðherra Svía, dvaldist hér nokkra daga með fjöl-
skyldu sinni sér til hvíldar og hressingar. Dr. Pari K. Basrur kom hingað
vegna litningarannsókna. Dr. Robert R. Bement kom hingað vegna UNDP/FAO
beitartilraunanna.
TILRAUNASTÖÐIN Á SÁMSSTÖÐUM.
Gerður var svipaður fjöldi tilrauna árið 1979 og undanfarin ár.
Áburðartilraunir eru í meiri hluta,■en grasstofna- og kornræktartilraunum
fer fjölgandi. Tala tilraunareita mun hafa haldizt nær óbreytt nokkur ár,
um 1000 tilraunareitir.
Þorsteinn Tómasson, sérfræðingur RALA á Keldnaholti, sá um kornræktar-
tilraunimar, eins og hann hefur gert undanfarin ár. Tilraunir þessar voru í
ár eingöngu í sandjarðvegi á Geitasandi.
Af þeim tilraunaniðurstöðum, sem nú liggja fyrir frá sumrinu 1979, sést
að þrátt fyrir mjög kalt sumar varð grasvöxtur á túnum nær í meðallagi.
Ekkert kal var í túnum vorið 1979.
Vegna þess hve klaki fór seint úr jörð, var erfitt um jarðvinnslu í
moldarjörð vegna bleytu. Þess vegna var ekki gerlegt að sá korni í akra fyrr
en 23. maí, en það er um tveimur vikum of seint miðað við reynslu hér. Korni var
þvi aðeins sað í 3000 m , maisbyggi. Komþroski var enginn i moldarjarðvegi
hér á Sámsstöðum, en korn í sandjörð á Geitasandi náði nokkrum þroska. Ekki
munu vera dæmi þess að kornþroski hafi brugðizt svo mjög hér á Sámsstöðum sem
sumarið 1979.
Fræseta á vallarsveifgrasi var góð sumarið 1979/ en brást svo til
alveg af túnvingli. Mun þetta hafa stafað af vorkuldunum. Fræþroski var
allgóður í vallarsveifgrasi og túnvingli, en mjög lítill í öðrum grasteg-
undum.
Fræ var slegið á Geitasandi og á Sámsstöðum dagana 8.-28. sept. Alls
var slegið fræ á 3.8 ha. Af því var vallarsveifgras af 3.4 ha, en túnvingull
af 0.3 ha. Auk þess var safnað fræi af fjallafoxgrasi, fjallasveifgrasi,