Fjölrit RALA - 10.11.1992, Blaðsíða 39
-31-
Tegundir úr grenndargróðri %
Fjöldi ára frá því uppgræðsla hðfst
7. mynd. Hlutfall háplöntutegunda úr grenndargróðri sem numið hefur land í reitunum á
hverjum tíma. Sýnd er einnig aðhvarfslína milli árafjölda frá sáningu og landnáms úr
grenndargróðri.
Flokkun tegunda eftir landnámshegðun
Alls uppfylltu 57 tegundir þau skiiyrði sem sett voru við flokkun tegunda eftir
landnámshegðun (8. mynd). í fyrsta flokki lentu lækjafræhyma (Cerastium
cerastoides), mýradúnurt (Epilobium palustre) og snækrækill (Sagina nivalis) (8.
mynd a), en x þennan flokk var ekki hægt að taka aðrar tegundir en háplöntur, þar
sem mosar og fléttur voru ekki greindar í grenndargróðri. Þessar háplöntutegundir
voru allar mjög algengir frumheijar í veggrófum og voru famar að nema land í ríkum
mæli fyrstu 10 árin eftir að uppgræðsla hófst, þótt þær væm mjög sjaldgæfar í
grenndargróðri.
í öðmm flokki lentu alls 36 tegundir (8. mynd b) sem allar em algengir fmmheijar í
veggrófunum, en þær vom famar að nema land í reitunum 0-10 ámm eftir að
uppgræðsla byrjaði. í þessum flokki eru öflugir frumherjar, einkum
háplöntutegundirnar vegarfi (Cerastium fontanum), axhæra (Luzula spicata),
músareyra (Cerastium alpinum), blávingull (Festuca vivipara) og klóelfting
(Equisetum arvense). Af mosum em það tegundimar Racomitrium ericoides,
Ceratodon purpureus, Drepanocladus uncinatus, Hylocomium splendens,
Pogonatum urnigerum og Racomitrium lanuginosum auk tegunda af ættkvíslinni
Bryum. Af fléttum em það einkum tegundimar Peltigera didactyla, P. rufescens, P.
canina og Cladonia pocillum.
Tegundir sem lentu í þriðja flokki vom 15 talsins (8. mynd c), en þær vom ekki famar
að nema land að ráði fyrr en 10-15 ámm eftir að uppgræðsla hófst. Þar má nefna
háplöntutegundimar stinnastör (Carex bigelowii), ilmreyr (Anthoxantum odoratum)