Rit Búvísindadeildar - 15.05.1996, Page 44
BEITARTÍLRAUN MEÐ HROSS
Anna G. Þórhallsdóttir og Ingimar Sveinsson
Inngangur
Hrossabeitartilrauninni sem hófst sumarið 1992 var fram haldið samkvæmt
áætlun á árinu. Tilraunin er samvinnuverkefni Bændaskólans og Rannsókna-
stofnunar landbúnaðarins og hefur Framleiðnisjóður styrkt ffamkvæmd hennar.
Áætlað er að gagnasöfnun tilraunarinnar ljúki fyrri hluta sumars 1997.
Framkvæmd
Tilraunin er staðsett á tveimur stöðum, að Hesti í Andakíl og Litlu-Drageyri í
Skorradal. Á hvorum stað var girt 16.9 ha, fimm strengja rafmagnsgirðing
sumarið 1992. Hvorri girðingu var síðan skipt í þrjú hólf með tveimur strengjum,
7.1 ha, 5.0 ha og 3.8 ha. Beitarhólfín í Skorradal eru staðsett á gömlu túni sem
ekki hefur verið borið á f um 20 ár. Á Hesti eru beitarhólfin á framræstri mýri
sem að hluta var brennd fyrir nokkrum árum.
Það voraði mjög seint á árinu og var ekki hægt að setja hrossin í tilraunahólfin
fyrr en 3.-4. júlí. Sem fyrr vom hrossin fengin frá Miðfossum í Andakíl, Hálsum
og Grand í Skorradal auk hrossa ffá skólabúinu á Hvanneyri. Sama tilhögun var
á tilrauninni og fyrri ár og fimm hross sett í hvert hólf, þ.e. 1.3 hross/ha í minnsta
hólfinu (þungbeitt), 1.0 í miðhólfinu (miðlungsbeitt)og 0.7 hross/ha í stærsta
hólfinu (léttbeitt). Var þess gætt að aldur, þungi og kyn væru jöfn í hólfunum.
Öll vora hrossin fjögurra vetra eða eldri. Fyrsta tilraunatímabil hófst strax er
hrossin vom komin í hólfin. Var þeim safnað saman daglega og hverju hrossi
gefin 50 g af fóðurkögglum blönduðum alkanamerkiefnum (C-32 n-dotriacontane
og C-36 hexatriacontane). Vom kögglamir gefnir í 12 daga, sem var tveim
dögum skemur en árið áður og saur frá hverju hrossi safnað til efnagreiningar
síðustu 5 dagana sem fyrr, Gekk saursöfnun mjög vel og þurfti sjaldan að sækja
sýni í viðkomandi hross. Alls vom tilraunatímabilin þrjú sumarið 1995; 9.-20.
júlí, 2.-13. ágúst og 28. ágúst-8. september. Samhliða hverri saursýnatöku var
uppskera mæld í hverju hólfi og klippt gróðursýni til efnagreiningar. Hrossin
vora vigtuð á tveggja vikna fresti í byrjun sumars en vikulega undir lok
tilraunarinnar.
4
Fylgst var með beitaratferli hrossanna á sama hátt og sumarið 1995 þar sem að
loknu hverju skítasöfnunartímabili tók við 6 daga atferlisathugun. Markmiðið er \
að kanna sambandið milli gæða beitilandsins og atferlis hrossanna. Sérstök
áliersla hefur verið lögð á beitarbletti, þ.e. það svæði sem hrossin bíta á milli
þess að færa sig úr stað, tímalengd beitarblettanna í mismunandi hólfum og fjölda
á sólarhring. Athugunin fór þannig fram að hólfin vom vöktuð meðan birtu naut í
þrjá sólarhringa á hverjum stað á hverju tímabili. Fylgst var með einu hrossi í
hólfi í fjórar mínútur í senn og allt atferli skráð niður jafnóðum með hjálp
sérstaks atferlisforrits. Næst var fylgst með hrossi í öðm hólfi, síðan hrossi í
38