Rit Búvísindadeildar - 15.05.1996, Page 45

Rit Búvísindadeildar - 15.05.1996, Page 45
þriðja hólfinu, aftur hrossi í fyrsta hólfinu og þannig koli af kolli þar til atferli allra hrossanna á svæðunum (Hesti eða Skorradal) hafði verið skráð niður í fjórar mínútur. Gert var ráð fyrir 1 mínútu til að finna nýtt hross og tók því hver umferð 75 mínútur og byrjað á nýrri umferð á tveggja tíma fresti. Því var fylgst með hverju hrossi allt að 12 sinnum á sólarhring (meðan birtu naut), í alls 48 mínútur. 4 Auk þessa var á hveijum hálfum tíma atferli allra hrossanna skráð, fjöldi sem var j á beit, hvfld, göngu o.s.frv. Niðurstöður og umræður Ekki hefur verið gengið frá gióðurgögnum með tölfræðilegri úrvinnslu og liggja því aðeins meginatriðin fyrir. í Skorradal var Agrostis spp. ríkjandi, með nokkru af Festuca spp. og áberandi Luzula. spp. Á Hesti voru Carex spp., sérstaklega Carex panicea og C. chordorrhiza rflcjandi ásamt Eriophorum angustifolium. Á Hesti var tegundafjölbreytnin mun meiri en í Skorradal, og einnig meiri munur á milli hólfa, bæði hvað varðaði ríkjandi tegundir og uppskerumagn. Efnagreiningar á skítasýnunum með tilliti til alkaxunagns liggja ekki fyrir og því ekki niðurstöður á átmagni hrossa í einstökum hólfum. Alkanagreiningamar eru innan verksviðs Fóðurdeildar Rala og hefur þar verið unnið að alkanamælingnum. Erfiðleikar vora á því að greina C-36 í sýnunum en iausn fékkst í því máli síðastliðið haust og er nú beðið niðurstaðna. 39

x

Rit Búvísindadeildar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rit Búvísindadeildar
https://timarit.is/publication/1498

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.