Rit Búvísindadeildar - 15.05.1996, Qupperneq 60
ÞVOTTA- OG HREINSIEFNIVIÐ
MJ ÓLKURFRAMLEIÐSLU
Ólafur Adolfsson
Markmið og framkvæmd verkefnisins voru kynnt í tilraunaskýrslu Bændaskólans
áHvanneyri 1994.
Gagnasöfnun og úrvinnslu rannsóknaverkefnisins er lokið og áætlað er að
skýrslugerð ljúki innan ekki langs tíma.
Verkefnið hefur leitt í ljós að mikið vantar á að notkun þvotta- og hreinsiefna við
mjólkurframleiðslu sé með þeim hætti sem æskilegt er og að mikil þörf er fyrir
þrifalýsingar á tækjum og búnaði til mjólkurframleiðslu.
Þessu til stuðnings vil ég taka dæmi af ákveðnu þvottaferli sem framkvæma þarf
fyrir hveijar mjaltir og er þvottur og "sótthreinsun" spena. Skýr fyrirmæli eru
um spenaþvott í Reglugerð um mjólk og mjólkurvörur (gr. 20.2). "Áður en kýr er
mjólkuð skal þvo spena og júgur vandlega úr volgu vatni blönduðu gerileyðandi
ejhi (t.d. klórvatni 0.5-1%) og þurrka það vandlega á eftir með einnota
bréýþurrkum eða hreinum þvottaklúti. Skipta skal um þvottavatn og þvottaklút
svo oft sem þurfa þykir."
Tafla 1. Þvottur og sótthreinsun spena fyrir mjaltir
Borgar- fiörður Suður- land Eyja- fiörður SAMTALS %
HEITT VATN
A.m. 0 0 0 0 0,00
B.m. 3 9 7 19 31,67
SÓTTHREINSIEFNI
A.m. 0 0 0 0 0,00
B.m 16 13 11 40 66,67
Mælir sótthr. 3 7 3 13 32,50
Mælir ekki 13 6 8 27 67,50
Rétt skammtað 2 2 3 7 17,50
Rangt skammtað 1 5 0 6 15,00
Klór 3 0 0 3 7,50
Joð 5 3 2 10 25,00
Klórhexidín 8 10 9 27 67,50
Blandað fyrir hv.notkun 16 13 10 39 97,50
Skiptir reglui.um sótthr. 5 2 2 9 22,50
Skiptir ekki reglulega 11 11 9 31 77,50
SÁPA
A.m. 0 0 0 0 0,00
B.m. 0 1 0 1 1,67
54