Fréttablaðið - 27.11.2020, Síða 10
Afgreiðslutímar á www.kronan.is
Má vera
kúrudýr um
jólin?
STJÓRNMÁL Þingmenn sem Frétta-
blaðið hefur rætt við eru sammála
um að þreyta sé komin í stjórnar-
samstarfið, einkum í þingflokkum
stjórnarf lokkanna. Þau viðhorf
verða útbreiddari innan flokkanna
að ekki borgi sig að halda samstarf-
inu áfram eftir kosningar og nokkrir
eru þeirrar skoðunar að slíta eigi
samstarfinu fyrr.
Viðmælendur blaðsins skiptast þó
í tvö horn um framhaldið. Þingmenn
í stjórnarandstöðu telja einsýnt að
upp úr samstarfinu slitni skömmu
eftir áramót og kosið verði í vor.
Þingmenn meirihlutans sem blaðið
ræddi við telja hins vegar spennu-
stigið ekki það hátt að sjóða muni
upp úr og hafa trú á því að öldur
muni lægja þegar fjárlögin eru í höfn
og fólk komið í jólafrí.
Margir þingmenn eru farnir að
huga að stöðu sinni fyrir næstu
kosningar, nú þegar aðferðir við upp-
röðun á framboðslista eru komnar
til umræðu innan f lokkana. Þeir
þingmenn sem þurfa að treysta á
árangur í prófkjöri hljóta að velta
fyrir sér hver sölupunkturinn eigi
að vera í kosningabaráttunni. „Þá
þykir mörgum hagfelldara að sýna
sérstöðu sína fremur en samstöðu,“
eins og einn stjórnarþingmaður
komst að orði.
Margir eru til dæmis um odd-
vitasæti Sjálfstæðismanna í Reykja-
vík. Ráðherrarnir Áslaug Arna
Sigurbjörnsdóttir og Guðlaugur Þór
Þórðarson gera án efa kröfu um for-
ystusæti en ólíklegt er að Sigríður Á.
Andersen sé reiðubúin að gefa odd-
vitasæti sitt eftir. Þá er Brynjar Níels-
son ekki heldur líklegur til að sýna
sveigjanleika í annað sinn. Þessir
fjórir þingmenn Sjálfstæðisflokksins
eiga það einnig sameiginlegt að hafa
efasemdir um ítrustu sóttvarnaað-
gerðir heilbrigðisráðherra og gætu
talið auðveldara að bjóða sig fram
á hugsjónum sínum, sannfæringu
og sérstöðu án þess að vera bundnir
af stjórnarsamstarfi og þar með
samstöðu með áherslum ráðherra
Vinstri grænna í heilbrigðismálum.
Það sama er uppi á teningnum í
Suðurkjördæmi. Almælt er að Unnur
Brá Konráðsdóttir ætli sér aftur á
þing. Formaður allsherjarnefndar,
Páll Magnússon, mun hins vegar
ætla að halda í forystusæti sitt í Suð-
urkjördæmi. Ekkert fararsnið mun
heldur vera á öðrum þingmönnum
kjördæmisins, Ásmundi Friðriks-
syni og Vilhjálmi Árnasyni. Þá eru
fleiri konur í Sjálfstæðisflokknum
að íhuga stjórnmálaþátttöku í kjör-
dæminu en Unnur Brá, þeirra á
meðal er Guðrún Hafsteinsdóttir í
Kjörís.
Aðstoðarmenn nokkurra ráð-
herra eru líklegir til að vilja losna
undan þrýstingi stjórnarsamstarfs-
ins en meðal þeirra aðstoðarmanna
sem líklegir eru til framboðs eru
Hildur Sverrisdóttir, aðstoðar-
maður iðnaðarráðherra, Borgar Þór
Einarsson, aðstoðarmaður utanrík-
isráðherra, og Orri Páll Jóhannsson,
aðstoðarmaður Guðmundar Inga
Guðbrandssonar umhverfisráð-
herra.
Þar sem Vinstri græn og og Fram-
sókn raða yfirleitt á lista með forvali
eða uppstillingu, standa þingmenn
þessara f lokka ekki frammi fyrir
sambærilegum vanda og þingmenn
Sjálfstæðisflokksins, í það minnsta
ekki fyrr en þegar hefur verið raðað
á lista og út í kosningabaráttu milli
flokkanna er komið.
Þótt það kynni að koma for-
manni Framsóknarflokksins ágæt-
lega að flýta kosningum og slá með
því á frest þeirri valdabaráttu sem
ríkt hefur um forystu f lokksins,
er ekki líklegt að það kæmi vara-
formanni f lokksins jafn vel. Lilja
Alfreðsdóttir er níundi af ellefu
þingmönnum Reykjavíkurkjör-
dæmis suður en Framsókn hefur
ekki mælst með mann inni í kjör-
dæminu allt þetta kjörtímabil.
Einnig er óvíst hver muni leiða hitt
kjördæmi borgarinnar, Reykjavíkur-
kjördæmi norður, en lög mann in um
Lár usi Sig urði Lárus syni sem leiddi
lista Framsóknar í kjördæminu fyrir
síðustu kosningar, var nýverið vikið
úr starfi skipta stjóra þrota bús með
úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur
vegna brots á starfsskyldum sínum.
Í Vinstri grænum er útlit fyrir
fjöruga baráttu um oddvitasætið
í Norðausturkjördæmi en Stein-
grímur J. Sigfússon, forseti Alþingis,
tilkynnti fyrr í haust að yfirstand-
andi kjörtímabil yrði hans síðasta á
þingi. Tveir hafa þegar lýst því yfir
að þeir gefi kost á sér til forystu í
kjördæminu; Bjarkey Olsen Gunn-
arsdóttir, þingflokksformaður VG,
og Óli Halldórsson, oddviti f lokks-
ins í bæjarstjórn Norðurþings. Eins
og Fréttablaðið greindi nýverið frá
hefur Kolbeinn Óttarsson Proppé
nýverið fest kaup á fasteign á Siglu-
firði sem gæti bent til þess að hann
hafi einnig áhuga á að leiða flokkinn
í Norðausturkjördæmi.
Samkvæmt óformlegri könnun
Fréttablaðsins sem birt var í vor
ætla Svandís Svavarsdóttir og Lilja
Rafney Magnúsdóttir, oddvitar
sinna kjördæma, að gefa áfram kost
á sér. Þá hefur forsætisráðherra ekki
gefið annað til kynna en að hún
verði áfram í framboði. Ari Trausti
Guðmundsson, oddviti Suðurkjör-
dæmis, svaraði hins vegar ekki
könnuninni og þótt Rósa Björk
Brynjólfsdóttir hafi svarað játandi,
er ljóst í dag að hún mun ekki
leiða lista VG í kraganum eins og
í síðustu kosningum. Líklegast er
að umhverfisráðherra og varafor-
maður flokksins, Guðmundur Ingi
Guðbrandsson, fari fram í því kjör-
dæmi.
Þeir f lokkar sem allra síst þurfa
á því að halda að kosningum verði
flýtt eru án efa þeir sem enn á eftir
að stofna, eins og f lokkar Andr-
ésar Inga Jónssonar og Guðmundar
Franklíns Jónssonar. Það er í mörg
horn að líta við stofnun stjórn-
málaflokks, fyrir utan skriffinnsku,
stefnuskrá, f lokkslög og slíkt, þarf
að stofna félög um landið og finna
á annað hundrað manns til að fylla
framboðslista fyrir öll kjördæmin
auk þúsunda meðmælenda fyrir
hvert framboð.
Einnig verður að ætla að aðrir
stjórnmálaf lokkar sem stefna á
þingframboð, bæði flokkar í stjórn-
arandstöðu og flokkar sem ekki eiga
fulltrúa á þingi, þurfi rúman tíma
til að undirbúa framboð. Óvíst er
því að kosningar í vor henti öllum
stjórnarandstöðuflokkunum sem
börðust þó mjög fyrir vorkosn-
ingum þegar tímasetning kjördags
var til umræðu síðastliðið sumar.
adalheidur@frettabladid.is
Mikil þreyta í ríkisstjórnarflokkum
Þingmenn í stjórnarmeirihluta eru farnir að huga að pólitískri framtíð sinni og næstu kosningum. Hörð prófkjörsbarátta fram undan
hefur áhrif á stuðning við stjórnarsamstarfið. Þingmenn í minnihluta spá stjórnarslitum. Fáir spá því hún lifi áfram eftir kosningar.
Mikilvægt fyrir
Katrínu og Bjarna að
klára allt kjörtímabilið
Þrátt fyrir spennustigið er
mikilvægt, einkum fyrir oddvita
Sjálfstæðisflokksins og Vinstri
grænna, að stjórnin haldi velli út
kjörtímabilið.
Sjálfstæðis-
mönnum hefur
ekki tekist að
halda ríkisstjórn
á lífi heilt kjör-
tímabil síðan á
kjörtímabilinu
2003 til 2007 en á því kjörtímabili
skiptust Davíð Oddsson, Geir H.
Haarde og Halldór Ásgrímsson á
að stýra úr Stjórnarráðinu. Síðari
ríkisstjórn Geirs Haarde sprakk
árið 2009 í kjölfar efnahagshruns-
ins. Ríkisstjórn flokksins með
Framsókn undir stjórn Sigmundar
Davíðs Gunnlaugssonar þoldi
ekki Panamaskjölin og boðaði til
kosninga eftir þriggja ára stjórnar-
tíð. Þriggja flokka stjórn Bjarna
Benediktssonar með Bjartri
framtíð og Viðreisn hafði ekki
náð heilu ári áður en hún sprakk
vegna kynferðisbrotamanns sem
fékk uppreist æru með stuðningi
föður forsætisráðherra.
Í ljósi sögu undanfarinna ára er
mikilvægt fyrir formann Sjálf-
stæðisflokksins að halda sam-
starfið út kjörtímabilið.
Fyrir forsætis-
ráðherra hlýtur
að sama skapi
að skipta máli að
sýna leiðtoga-
hæfileika sína
og standa við
loforð stjórnar-
samstarfsins um stöðugleika í
stjórnmálum eftir upplausnar-
ástand á stjórnmálasviðinu í
rúman áratug.
Ríkisstjórn Katrínar hefur setið tæp þrjú ár. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Ríkisstjórnin hefur verið umdeild innan stjórnarflokka, sérstaklega VG og Sjálfstæðisflokks. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
2 7 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð