Fréttablaðið - 27.11.2020, Side 24
Frá degi til dags
Halldór
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Jón Þórisson jon@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is
Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is
LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Það stendur
á forystu-
mönnum
ríkisstjórn-
arinnar að
rétta við
kúrsinn
þegar
teknar
verða
ákvarðanir
um næstu
skref.
Það má ekki
gerast að
gamaldags
lausnir séu
nýttar til að
takast á við
vandamál
nútímans.
Hörður
Ægisson
hordur@frettabladid.is
20%
AFSLÁTTUR AF ÖLLUM
VÖRUM Í VEFVERSLUN
Á SVÖRTUM FÖSTUDEGI
Heimalagaður Baggalútur
Það munu margir sakna jóla-
tónleikanna í ár, aðrir ekki. Á
heimilum þeirra sem sakna
Baggalútstónleikanna er tilvalið
að taka snúning á nokkrum
þekktum jólalögum og færa þau
í nútímalegan búning. Eins og til
dæmis: „Ég kemst í hátíðarskap,
þó úti sé COVID-smit og krap.“
Sá sem kann að herma eftir Ellý
getur tekið: „Éééég maaan þau
jólin COVID-laus.“ Allir geta
svo sungið saman: „Skyld‘ það
vera COVID-smit… út í bæinn“.
Kvöldið endar svo á Ladda-
laginu góða:
„Veirur falla, á allt og alla.
Börnin grenja og barma sér.
Nú er árstíð, veðurofsa og gríma.
Komið eeeer að COVID-stund.“
Maraþonmaðurinn
Það er ekki einleikið hve Joe
Biden, hinn nýkjörni 77 ára
forseti Bandaríkjanna, er léttur
á fæti. Einkum hefur það orðið
áberandi í aðdraganda kosning-
anna og hækkandi radda sem
bentu á aldur hans. Nú stígur
hann ekki á svið öðruvísi en
grímuklæddur og hlaupandi.
Einhver spunameistarinn hefur
bent á að hlaup sé þjóðráð til að
sýna að hann er í reynd bráðung-
ur. En þetta hlaupaatriði Bidens
hefur samt sambærileg áhrif á
áhorfendur og áhættusömustu
atriðin í þætti sirkuss Billy Smart
sem sýnd voru á gamlárskvöld
forðum. Menn bíða með öndina
í hálsinum eftir að hann detti í
einhverri atrennunni.
Getur fjármálakefið verið grænt? Já, heldur betur. Um allan heim er í gangi þróun í þá átt að nýta fjármálakerfið í baráttunni gegn
loftslagsvánni. Að hugsa hlutina upp á nýtt, horfa
ekki aðeins á krónur og aura þegar að útlánastefnu
kemur, heldur áhrifa til kolefnisjöfnunar. Þessa
þróun má nú þegar sjá að einhverju leyti í íslenska
bankakerfinu.
Ég hef áður kallað eftir því að við nýtum þá stöðu
að íslenska ríkið er eigandi stórs hluta fjármála-
markaðar til að þróa hlutina þar í græna átt. Að nýta
fjármálakerfið betur í baráttunni við loftslagsvána.
Það eru hins vegar ekki aðeins viðskiptabankar sem
hafa þar hlutverk, seðlabankar gera það líka.
Á þessum tímum umbreytinga vegna loftslagsvár
er æ víðar farið að huga að því hvernig hægt er
að nýta seðlabanka heimsins til að bregðast við
hamfarahlýnun. Umbreytingaáhætta (e. transi-
tional risk) er hugtak sem æ oftar heyrist í þessum
kreðsum, en það nær utan um áhættuna sem kerfum
heimsins stafar af ástandinu. Eðli kerfa er að verja
sig en það er gríðarlega mikilvægt að sú vörn verði
ekki meira af því sama.
Við lifum umbreytingatíma og það er gríðarlega
mikilvægt í hvaða átt við stefnum. Það má ekki
gerast að gamaldags lausnir séu nýttar til að takast á
við vandamál nútímans, að við stefnum áfram eftir
niðurkeyrðum brautum sem hafa fært okkur á þann
stað sem við erum í dag.
Pierre Monnin er sérfræðingur hjá hugveitu sem
sérhæfir í hlutverki seðlabanka í baráttunni við
loftslagsvána. Hann hefur komið að því að greina
það hvernig seðlabönkum verður best beitt til að
viðhalda fjármálastöðugleika um leið og barist
er gegn loftslagsvánni. Monnin mun verða gestur
minn á hádegisfundi á Facebook 2. desember næst
komandi. Þar munum við ræða þessi mál og fá til liðs
við okkur Gunnar Jakobsson, varaseðlabankastjóra
fjármálastöðugleika Seðlabanka Íslands. Ég hvet öll
til að mæta.
Grænt fjármálakerfi
Kolbeinn
Óttarsson
Proppé
þingmaður
Vinstri grænna
Öll viljum við berjast gegn áhrifum veirunnar þótt okkur greini á um leiðir og hversu langt eigi að ganga. En er það orðið sjálfstætt markmið að viðhalda hörðum sóttvarnaaðgerðum nánast óháð þróun faraldursins? Svo mætti ætla
þegar við sjáum nú mótstöðuna gegn því að stigin séu
markviss og tímabær skref í að vinda ofan af þeim lok-
unum og samkomuhömlum sem hafa verið í gildi í nær
tvo mánuði. Forsendur hafa breyst verulega frá því að
þeim var komið á með þeim rökstuðningi að heilbrigðis-
kerfinu stafaði hætta af miklum vexti í fjölda smitaðra.
Nú er staðan önnur og betri. Landspítalinn hefur
verið færður af bæði neyðarstigi og hættustigi – sem
hafði komið til einkum vegna smits á Landakoti með
hörmulegum afleiðingum – og nýgengi smits hér á landi
mælist hvergi lægra í Evrópu. Þrátt fyrir að við vitum
meira um veiruna, og heilbrigðisyfirvöld hafi að sama
skapi fleiri úrræði en áður til að annast þá sem veikjast
alvarlega, þá erum við engu að síður með strangari
hömlur en í vor þegar smitstuðullinn var hærri og landa-
mærin einnig mun opnari en nú. Ekki er að furða að
margir eigi erfitt með að átta sig á samhengi aðgerðanna
og hvert sé í raun markmiðið með þeim á sama tíma og
þær eru jafnt og þétt að leggja efnahag landsins í rúst.
Vitaskuld væri einfaldast út frá sóttvarnasjónar-
miðum að loka á allt og setja á útgöngubann. Við
vitum hins vegar flest að slíkar ráðstafanir eiga ekki
að vera valkostur í lýðræðisþjóðfélagi og myndu valda
umtalsvert meiri hörmungum en ávinningi. Haraldur
Briem, fyrrverandi sóttvarnalæknir til átján ára, hefur
þannig bent á að það gangi ekki til lengdar að viðhalda
samkomubönnum til að fást við veiruna. „Við getum
auðvitað komið í veg fyrir öll bílslys og banaslys í
umferðinni með því að banna umferðina. Við reynum
að bæta umferðina og gera hana betri en við útilokum
aldrei slysin,“ sagði hann í viðtali við Morgunblaðið fyrr
í haust. Það væri ágætt ef eftirmaður hans gæti tamið
sér sama raunsæi í stað þess að hræða fólk, sem margt
er haldið kvíða og ótta vegna ástandsins, til stuðnings
áframhaldandi hörðum aðgerðum sem virðast hafa það
markmið að Ísland verði veirulaust land.
Því miður er það að gerast sem sumir óttuðust. Emb-
ættismenn, sem hafa öðlast gríðarmikil völd á þessum
veirutímum, hafa vanist þeim óþægilega mikið og eru
um margt að fara offari í aðgerðum sínum. Við því þarf
að bregðast. Nú þegar bóluefni er í augsýn er ljós við
enda ganganna. Við eigum að nýta þá stöðu, eins og
meðal annars Samtök atvinnulífsins hafa lagt til, við að
útbúa skýran ramma um sóttvarnaráðstafanir til næstu
mánaða sem verði tengdar við töluleg viðmið um þróun
faraldursins hverju sinni. Slíkt væri til þess fallið að auka
á fyrirsjáanleika aðgerðanna og um leið létta verulega á
þeirri óvissu sem nú er alltumlykjandi.
Það er ekkert sem kallar á viðvarandi krísuástand,
sem er á góðri leið með að drepa allt samfélagið í dróma,
fram að þeim tíma þegar búið verður að bólusetja stóran
hluta þjóðarinnar. Það stendur á forystumönnum ríkis-
stjórnarinnar, ekki þríeykinu, að rétta við kúrsinn þegar
teknar verða afdrifaríkar ákvarðanir um næstu skref.
Farið offari
2 7 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R22 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SKOÐUN