Fréttablaðið - 27.11.2020, Blaðsíða 40
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumaður auglýsinga: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Starfsfólk
ELKO er að
tína saman
pantanir allan
sólarhringinn
og er með fólk á
þremur vöktum
bara í því. Mikil
áhersla er lögð
á að afgreiða
vefpantanir
eins fljótt og
hægt er. FRÉTTA-
BLAÐIÐ/VALLI
Svartur Fössari fer allur fram á vefnum í ár! Viðskiptavinir þurfa því ekki að standa í röðum fyrir utan verslanir í biðröðum til þess að gera góð kaup. MYND/AÐSEND
Hægt er að gera
sjóðheit kaup á
raftækjum fyrir
jólin á Svörtum
Fössara og Staf-
rænum Mánu-
degi. MYND/
AÐSEND
Hjá ELKO fást allir nýjustu og vinsælustu leikirnir
fyrir leikjatölvur. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Vandaðir
ferðahátalarar
frá Sony á
góðum afslætti.
FRÉTTABLAÐIÐ/SIG-
TRYGGUR ARI
Hægt er að
gera góð
kaup á símum
og öðrum
raftækjum
á Svörtum
Fössara.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
ELKO er með glæsilegt úrval raftækja fyrir heimil-
ið á góðu verði. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Við höfum alltaf verið með mikið af tilboðum á Svörtum Fössara í öllum búðum og þá hefur vörum verið dreift á milli búða. En vegna samkomutakmarkana og aukinnar áherslu á netverslun
er Svartur Fössari bara á vefnum okkar í ár,“ segir Sófús Árni Haf-
steinsson, þjónustustjóri ELKO.
Aðaláherslan komin á vefinn
„Við erum með hraðvirka og örugga vefsíðu sem er studd af mjög
öflugu þjónustuveri. Við erum í raun að færa aðaláhersluna yfir
á vefinn okkar og erum búin að setja aukinn starfskraft í tiltekt
pantana í vefverslun,“ segir Sófús. „Við erum líka komin með nýja
og hraðari leitarvél, sem ætti að auðvelda öllum að versla á ELKO.is.
Þetta er orðið mjög þægilegt og einfalt.
Auk þess að vera með þægilegan og hraðvirkan vef þá stendur
viðskiptavinum til boða að velja úr úrvali mismunandi afhendingar-
máta. Við erum til að mynda að bjóða upp á fría heimsendingu út um
allt land á smávöru ef pantað er fyrir 10.000 kr. eða meira. Þá erum
við einnig með meira en 20 afhendingarstaði í boði í samstarfi við
Dropp þar sem viðskiptavinir geta verslað vörur á ELKO.is og sótt
þær svo í verslanir ELKO eða valdar N1 stöðvar og þá líka úti á landi.
Þau sem hafa ekki prófað að versla á vefnum okkar hafa nú gott
tækifæri til að gera frábær kaup fyrir jólin á Svörtum Fössara í ELKO,“
segir Sófús. „Tilboðin gilda fram yfir helgina, eða svo lengi sem
birgðir endast og enda tilboðsdagarnir með Stafrænum Mánudegi,
30. nóvember.
Við erum að tína saman pantanir allan sólarhringinn og erum
með fólk á þremur vöktum bara í því. Við leggjum mikla áherslu á
að afgreiða vefpantanir eins fljótt og hægt er. Það tekur yfirleitt um
1-2 daga að koma þeim út, en það mun taka örlítið lengri tíma eftir
daginn í dag, líklega um 3-4 daga,“ segir Sófús. „Í vöruhúsinu okkar
er að sjálfsögðu vandlega hugað að sóttvörnum. Allir nota grímur og
hanska og hreinlæti er í hávegum haft. Það er einmitt vegna sóttvarn-
aráðstafana sem við keyrum á þremur vöktum, því það mega bara
vera tíu á sama stað í einu.
Þar fyrir utan erum við með starfsfólk á vakt á netspjallinu á ELKO.
is frá 9-21 alla virka daga og frá 12-21 um helgar. Fyrir vikið fæst nú
öll aðstoð sem er vanalega hægt að fá í verslunum okkar á vefnum,“
útskýrir Sófús.
Mikið úrval og skilafrestur til 24. janúar
„Við erum með ótrúlega mikið af flottum tilboðum og höfum verið
með ný tilboð á hverjum degi alla vikuna, en í dag koma gríðarlega
mörg ný tilboð inn á vefinn okkar,“ segir Sófús. „Tilboðin eru í gildi á
vefverslun út sunnudag eða á meðan birgðir endast, svo það er algjör
óþarfi að standa í röð fyrir utan verslanir. Flestar vörurnar sem eru
auglýstar sérstaklega eru til í takmörkuðu magni, þannig að fyrstur
pantar, fyrstur fær.
Það ættu allir að finna eitthvað sem þá vantar hjá okkur á Svörtum
Fössara og það er líka tilvalið að versla jólagjafirnar núna,“ segir
Sófús. „Það verða jólaskilamiðar á öllum pöntunum, þannig að það
verður skilafrestur á þeim til 24. janúar og fólk má meira að segja
prófa gjafirnar og skila þeim svo ef því líkar ekki við þær.“
Framhald af forsíðu ➛
2 KYNNINGARBLAÐ 2 7 . N ÓV E M B E R 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U RSVARTUR FÖSTUDAGUR