Fréttablaðið - 27.11.2020, Síða 66
EN HVERT LJÓÐ Á SÉR
SINN EIGIN AFMARK-
AÐA HEIM OG MÉR FINNST
TENGSL ÞEIRRA VIÐ ÖNNUR
LJÓÐ Í SÖMU BÓK ÓÞÖRF.
Snúningshjól með bremsum
Ryðfrír stálvaskur með snertilausri virkni
Sápuskammtari
Handþurrkuskammtari
Hurð með lás
Fótstig fyrir vatn
20 lítra tankur fyrir hreint vatn
20 lítra tankur fyrir aallsvatn
Staðalbúnaður:
Hafið samband fyrir frekari upplýsingar
vaska@vaska.is | sími 843-9333 | þú finnur VASKA líka á Facebook
Nánari lýsing:
Hæð: 150 cm
Breidd: 79 cm
Dýpt: 49 cm
Hæð vasks: 90 cm
Þyngd: 36 kg (einungis stöðin)
Litur: Svartur | RAL 9005
Black Friday
40%
afsláur
þea vikuna
Er fyrirtækið þi með at á hreinu?
VASKA er með lausnina fyrir fyrirtæki sem vilja hafa heilbrigða umgengni og snyrtimesku í fyrirrúmi.
Spegilsjónir er áttunda l j ó ð a b ó k G u ð r ú n a r Hannesdóttur. „Ljóðin eru ný að tveimur undan-skildum, öll ort á síðustu tveimur árum. Ljóða-
gerðin er orðin mér mikill yndis-
auki, ég fann strax eftir mína fyrstu
ljóðabók Fléttur (2007) að ekki varð
aftur snúið af þeim reit. Með tím-
anum gefst manni líka meiri tími
til að njóta og sinna þessu,“ segir
Guðrún. „Þessi bók er hvorki þema-
tísk né sérlega heildstæð frekar en
aðrar bækur mínar. Þetta eru stutt
ljóð og einföld. Yfirskriftin gæti allt
eins verið: Það er engin að hlusta –
í þeim anda eru þau gerð. Kannski
má kalla það muldur hins ómeð-
vitaða.
Leiðin að atvikum eða minn-
ingum opnast allt í einu og verður
greið, eitthvað sem maður hefur
lesið eða séð öðlast eigið líf, skarast
og endurskapast í sífellu – í nokkurs
konar eigin veruleika. Ég yrki mikið
um náttúruna, um dýr og menn og
leyfi mér að fara aftur og fram í tíma
og rúmi, vöku og draumi.“
Einlæg ljóð
Spurð hvort greina megi einhvern
ákveðinn tón í ljóðunum segir Guð-
rún: „Það má áreiðanlega kalla þau
gamaldags á vissan hátt, enda ljóð-
mælandi kominn vel til ára sinna
og þau eru kyrrlát fremur en hitt.
Að svo miklu leyti sem ég hugsa um
það vona ég að þau komist beint
og brotalaust til lesenda. Það veit
enginn hvað gleður, eða hvaða ljóð
er lykill að hjarta annarra, því síður
hvernig þau hitta fólk fyrir á lesandi
stund. En ég held að einlæg ljóð geti
aldrei reynst neinir þjófalyklar
hvernig sem þau eru að öðru leyti.“
Hún segist ekki nostra mikið við
ljóðin. „Hugmyndin að ljóði læðist
að vísu að mér hægt og hægt, en á
vissum tímapunkti taka ljóðin á
sig þannig mynd að ég get einbeitt
mér að því að lýsa upp orðin og raða
þeim í það form sem mér er tamt,
aðallega leitast ég við að einfalda
þau.
Sum ljóðin haldast í hendur yfir
opnu. En hvert ljóð á sér sinn eigin
afmarkaða heim og mér finnst
tengsl þeirra við önnur ljóð í sömu
bók óþörf. Stundum birtast samt
tengslin óvænt og það kemur gleði-
lega á óvart.“
Vönduð umfjöllun
Spurð hvort hún komi auga á þróun
í eigin ljóðagerð segir hún: „Enginn
getur sent út nema á sinni eigin
tíðni sagði einhver. Og yfir henni
ræður maður ekki né getur greint
sjálfur svo vit sé í.
Ég var svo lánsöm að fá mjög
vandaða og nákvæma umfjöllun
um fyrstu bókina mína. Það var
alveg ómetanlegt og ég held svei mér
þá að hún geti átt við þær allar sem
á eftir komu að breyttu breytanda.
Ég byrjaði að yrkja svona upp úr
þurru þegar ég var tilbúin til þess og
hef verið á sjálfstýringunni síðan –
sem sé á óslitinni skemmtiferð!“
Ljóðagerðin er mér
mikill yndisauki
Spegilsjónir er ný ljóðabók eftir Guðrúnu
Hannesdóttur. Hún yrkir af einlægni um
náttúruna en einnig menn og dýr.
Ég byrjaði að yrkja svona upp úr þurru, segir Guðrún.FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
Á hádegistónleikum í Hafnar-borg, þriðjudaginn 1. des-ember klukkan 12.00, kemur
fram bassasöngvarinn Bjarni Thor
Kristinsson ásamt Antoníu Hevesi
píanóleikara.
Aðventan er nú gengin í garð og
eins og hefð hefur myndast fyrir
verður efnisskrá desembertónleik-
anna sveipuð hátíðlegum blæ. Flutt
verða verk eftir Sigvalda Kaldalóns,
Mozart, Puccini og f leiri. Tónleik-
arnir standa yfir í um hálfa klukku-
stund.
Vegna samkomutakmarkana fara
tónleikarnir fram fyrir tómum sal
en verður streymt beint á netinu.
Hægt er að tengjast streyminu á
heimasíðu safnsins eða á Facebook.
Vefslóð strey misins er : live-
stream.com/accounts/5108236/
events/9413988
Bjarni Thor á tónleikum
Bassasöngvarinn Bjarni Thor Kristinsson. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Laugardaginn 28. nóvember klukkan 14.00 býður Mennta-skóli í tónlist til tónleika sem
streymt verður beint út á aslóðinni:
youtu.be/HxljgI_SvCA
Efnisskráin er f jölbreytt og
áhugaverð, en á tónleikunum verða
meðal annars leikin píanótríó eftir
Ludwig van Beethoven, Felix Men-
delssohn og Johannes Brahms og
píanókvintett eftir Dmitri Schos-
takovich.
Kammertónleikar í streymi
2 7 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R48 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð