Fréttablaðið - 27.11.2020, Side 80
A L L I R S K Ó R Á
25%AFSLÆTTI
LÆGSTA
VERÐIÐ
Í ÖLLUM
LANDS-
HLUTUM
SKILYRÐISLAUST
Orkan – Ódýrt fyrir alla
Skiltagerð og merkingar
Inni og úti merkingar, spjöld og skilti. Kíktu á
heimasíðuna okkar og skoðaðu þjónustuna
sem er í boði.
Xprent ehf. | Sundaborg 3 | 104 Reykjavík | 777 2700 | xprent@xprent.is
SANDBLÁSTURSFILMUR
BÍLAMERKINGAR SKILTAGERÐ
www.xprent.is
KYNNINGARSVÆÐI
Úrval af gæða 3 laga grímum
100% bómull og stillanleg spöng við nef
Verð aðeins 1000 kr
Tveir af ástsælustu söngvurum landsins, Sigríður Thorlacius og Sigurður Guðmundsson, hafa staðið fyrir glæsilegum jólatónleikum síðustu
sex árin við mikla lukku. Sjöunda
skiptið varð þó að bíða þetta árið
vegna heimsfaraldursins. Þau hafa
verið vinir lengi og oft unnið saman
í gegnum tíðina en í dag gefa þau út
plötuna Það eru jól.
„Það lá því nokkuð beint við að við
tækjum saman höndum og blésum
til tónleika fyrir jólin þar sem við
áttum hvort sína jólaplötuna á
sínum tíma, okkur fannst þær ágætis
uppistaða í tónleikaprógramm sem
við höfum síðan prjónað við nýja
músík,“ segir Sigríður.
Rétti tíminn fyrir plötu
Þau segjast vera passlega mikil jóla
börn, svona eins og hollt er í það
minnsta.
„Það eru ekkert endilega jól
umfram annað. Allt er þetta gott í
bland og þess má geta að við eigum
okkur sumarlíf einnig þótt það sam
starf sé kannski undir öðrum fána
og nafni,“ segir Sigurður, og á þá við
hljómsveitina GÓSS sem tvíeykið
skipar ásamt tónlistarmanninum
Guðmundi Óskari Guðmundssyni.
Síðustu fimm árin hafa þau gefið
út jólalag á aðventunni og það sjötta
bættist nú við. Þá var ljóst að þau
voru komin með lög langleiðina
upp í plötu og bættu við þremur til
viðbótar. Útkoman er Það eru jól.
Útgáfan var því ekki tengd faraldr
inum.
„Það stóð alltaf til að gefa lögin út á
plötu. Það er að segja síðan við fórum
að gefa út þessi árlegu aðventulög.
Þau voru nú orðin sex, við bættum
við þremur nýjum og þá var bara
komin plata. Það má líka segja að
þetta hafi verið svolítið rétti tíminn
fyrir hana. Svona í ljósi aðstæðna
gætum við þó troðið okkur á fóninn
hjá fólki ef engir yrði tónleikarnir.
Við erum gríðarlega ánægð með
hana og vonum að hún nái eyrum
sem flestra,“ segir Sigurður.
Sigríður segir að tónleikarnir
hafi verið á planinu en þau hafi
þurft að sníða sér nýjan stakk eftir
vexti eins og aðrir. Það hafa þau gert
meðal annars með því að bjóða upp
á streymistónleika.
„Enn er ekki útséð með hvernig
hann verður og hvað við gerum.
Vissulega er leitt að geta ekki
haldið almennilega tónleika en það
verður gert um leið og aðstæður og
umhverfið leyfa. Fram að því finn
um við bara nýjar leiðir og lausnir
og reynum að hafa gaman af og von
andi gleðja aðra. Lítið annað sem við
getum gert,“ bætir hún við.
Vildu nýta rýmið
Steinþór Helgi Arnsteinsson á
Röntgen sér um utanumhald tón
leikanna, en nokkrir landsþekktir
listamenn bjóða upp á þjónustuna
og er hægt að sníða hana eftir hent
ugleika.
„Það er þetta með að sníða
sér stakk eftir vexti. Við vorum
samt byrjuð að fá alls konar fyrir
spurnir um hvort svona streymis
tónleikar væru yfir höfuð í boði.
Og þar sem við vorum með lok
aðan bar, ákváðum við að fara í
að reyna að nýta rýmið til að gera
hreinlega stúdíó. Þetta er hug
mynd sem er að fá frábærar við
tökur og við hlökkum mikið til
að gera alla þessa tónleika sem nú
þegar eru bókaðir,“ segir Steinþór.
Hann segir hópinn fjölbreyttan.
„Allt frá JólaGÓSSinu, sem er
skipað þeim Sigurði, Sigríði og Guð
mundi Óskari, yfir í Ylju og Valdimar
Guðmundsson. Í raun er enginn einn
pakki í boði, það er bara hægt að
gera straumlínulagaðan pakka sem
hentar hverjum og einum. Síðan fara
tónleikarnir fram ýmist í gegnum
tengil, YouTube, Teams eða Zoom.
Mjög einfalt og þægilegt. Þetta er
hugmynd sem er að fá frábærar
viðtökur og við hlökkum mikið til
að gera alla þessa tónleika sem nú
þegar eru bókaðir,“ segir Steinþór
að lokum.
Það eru jól er hægt að nálgast á
öllum helstu streymisveitum og
plötubúðum.
steingerdur@frettabladid.is
Sníða sér stakk
eftir vexti
Þau Sigríður Thorlacius og Sigurður Guðmundsson hafa staðið
fyrir margrómuðum jólatónleikum síðustu sex árin. Í ár sníða
þau sér stakk eftir vexti og bjóða upp á streymistónleika.
Platan Það eru jól frá tvíeykinu kemur út í dag.
Lítið stúdíó hefur verið sett upp á Röntgen þar sem streymistónleikarnir fara fram. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
VISSULEGA ER LEITT
AÐ GETA EKKI HALDIÐ
ALMENNILEGA TÓNLEIKA EN
ÞAÐ VERÐUR GERT UM LEIÐ OG
AÐSTÆÐUR OG UMHVERFIÐ
LEYFA. FRAM AÐ ÞVÍ FINNUM
VIÐ BARA NÝJAR LEIÐIR OG
LAUSNIR.
Sigríður
2 7 . N Ó V E M B E R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U RL Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð