Fréttablaðið - 12.12.2020, Page 43
verkferla og áskoranir úr ýmsum
áttum og koma þeim niður í eitt
f læði svo allir deili sömu sýn. Og
þá erum við komin yfir í stolt
Stokks sem er Hönnunarsprettur
inn þeirra og þar gerast galdrar!
„Hönnunarsprettur er fimm
daga vinnustofa sem er fyrir alla
sem vilja spara sér tíma og þurfa
að láta hlutina gerast hratt. Það að
ná að þarfagreina, hanna hluta af
f læðinu og notendaprófa frum
gerð allt á einni viku sparar alveg
ótrúlegan tíma og kostnað fyrir
viðskiptavini okkar. Hindranir
eru einnig mikilvægur þáttur sem
þarf að horfast í augu við strax á
byrjunarstigi, en það að uppgötva
og vinna að lausn strax í byrjun er
gríðarlega mikilvægt. Eins og áður
kom fram eru vissulega galdrar
sem eiga sér stað á Hönnunar
sprettunum og alveg magnað að
sjá ánægða viðskiptavini þegar
þeir loks sjá hugmyndina sína
verða skrefinu nær raunveru
leika,“ segir Raquelita með bros
á vör.
Setjum appið í ofninn
Eftir að vinnan í Hönnunarspretti
hefur klárast, hefst forritunar
vegferðin mikla af fullum þunga.
Byrjað er á að fullmóta hönnun
ina og hnýta alla þá lausu enda
sem mögulega komu upp á Hönn
unarsprettinum, en oftar en ekki
þarf appið að geta tengst annarri
þjónustu sem þarf að leggja grunn
að, til dæmis greiðslugáttum,
rafrænum skilríkjum eða annarri
þjónustu sem þegar er til.
„Við notumst við sameigin
legt verkefnaborð þar sem við
höldum okkar viðskiptavinum
vel upplýstum um stöðu mála og
getur viðskiptavinur stjórnað
því hversu mikið hann tekur þátt
alveg frá byrjun,“ segir Raque
lita. „Eins og nefnt hefur verið þá
er Stokkur að taka að sér 100%
verkefnastjórnun þegar kemur að
stafrænni vegferð fyrirtækja hvort
sem um ræðir einungis appþróun
eða ráðgjöf.
Öll okkar nýjustu öpp sem við
þróum eru í einum kóðabasa, og er
skrifað í forritunarmáli frá Google
sem heitir Flutter. Þetta er sparn
aður bæði fyrir okkur og við
skiptavini okkar en í „gamla daga“
þurftum við alltaf að vera með tvo
forritara fyrir eitt app sem varð
til þess að það hægði á ferlinu á
svo margan hátt. Í dag erum við
reynslunni ríkari og mun skil
virkari, sem hefur orðið til þess
að við getum tekið f leiri verkefni
að okkur með minna teymi, án
þess að það hafi áhrif á gæðaferlið
okkar,“ segir Raquelita en áður
en hún varð framkvæmdastjóri
Stokks gegndi hún hlutverki
gæða og verkefnastjóra Stokks.
Matreiðum öppin rétt
Vel útfært app getur verið mjög
öflug viðbót fyrirtækja en stafræn
markaðssetning appa er einnig
einstaklega mikilvægur þáttur í
lífi appa sem má ekki gleymast.
„Við viljum alls ekki að öppin
gleymist þegar kemur að staf
rænni markaðssetningu og því
höfum við einnig sérhæft okkur
í stafrænni markaðssetningu
appa og getum því þjónustað
okkar viðskiptavini frá AÖ
Hönnunarsprettur er fimm daga vinnustofa fyrir alla sem þurfa að láta hlutina gerast hratt og þar gerast galdrar. Þar eru öpp þarfagreind, hluti af flæðinu
hannaður og frumgerð notendaprófuð á einni viku, sem sparar ótrúlegan tíma og kostnað fyrir viðskiptavini Stokks. MYND/AÐSEND
Stafræn markaðs-
setning á öppum
snýst oftar en ekki um
að fá nýja notendur,
auka virkni núverandi
notenda eða endurvirkja
óvirka notendur. Sá
þáttur virðist nær alltaf
gleymast.
Hönnunarsprettur
er fimm daga
vinnustofa sem er fyrir
alla sem vilja spara sér
tíma og þurfa að láta
hlutina gerast hratt.
Þórunnartún 2 stokkur@stokkur.is
Snjöll öpp
Stokkur hefur hannað og forritað flest af vinsælustu öppum
Íslands í yfir 13 ár. Stokkur hefur sérhæ sig í að finna leiðir
til að auðvelda notendum aðgengi að þjónustu fyrirtækja
með snjöllum lausnum í gegnum snjallsíma. Eir áralanga
reynslu og lausnamiðaða þjónustu er Stokkur svarið
við þínum áskorunum.
Hafðu samband og við finnum tíma í spjall.
þegar kemur að öppunum. Okkar
reynsla og upplifun er einfaldlega
sú að öppin hafi verið skilin eftir
eins og leiðinleg frænka þegar
kemur að markaðssetningu og er
mikilvægt að sérhæfa sig sérstak
lega í öppum til að geta nálgast
þetta rétt. Öppin virðast alltaf
vera sett undir sama hatt og allt
annað þegar kemur að stafrænni
markaðssetningu, sem er algjör
lega röng nálgun,“ segir Raquelita
og leggur áherslu á að munur sé á
markaðssetningu vefja og appa.
„Stafræn markaðssetning á
öppum snýst oftar en ekki um
að fá nýja notendur, auka virkni
núverandi notenda eða endur
virkja óvirka notendur. Sá þáttur
virðist nær alltaf gleymast, þ.e.a.s.
að virkja núverandi notendur
og gera það rétt. Ef þú hugsar út
í þinn eigin síma til að mynda,
hversu mikið af öppum ertu með
í símanum þínum sem þú ert
búin/n að steingleyma og notar
aldrei? Þau öpp eru að missa af
þeim sóknartækifærum að minna
þig á tilvist sína og nýta vissa
virkni í appinu sem þér finnst
hugsanlega áhugaverð. Í dag bjóða
stýrikerfi símanna upp á að eyða
út öppum sem ekki er búið að
nota í einhvern tíma og er það
sjálfvirkt til að spara gagnaminni.
Við viljum alls ekki að Stokks
öppin verði fyrir þeirri reynslu
og því finnst okkur mikilvægt að
geta boðið upp á góða stafræna
markaðssetningu.
Við erum ótrúlega stolt af
öppunum okkar og viljum við sjá
til þess að okkar viðskiptavinir
fullnýti öppin sín og fari ekki á
mis við þau sóknartækifæri sem
markaðurinn hefur upp á að
bjóða. Google hefur til dæmis sýnt
fram á að vefverslunaröpp geti
framkallað um þrisvar sinnum
hærra virði en hefðbundnar vef
síður og náð yfir um 50% meiri
fylgni og tengingu við notendur
með réttri uppsetningu. Það er því
augljóst að möguleikarnir með
öppum eru jákvæðir fyrir rekstur
fyrirtækja. Sé vel og rétt að málum
staðið verður úr app sem virkar
vel og skilar arðsemi og hagnaði,“
segir Raquelita.
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 5 L AU G A R DAG U R 1 2 . D E S E M B E R 2 0 2 0