Fréttablaðið - 01.12.2020, Side 22

Fréttablaðið - 01.12.2020, Side 22
4 BÍLAR 1 . D E S E M B E R 2 0 2 0 Þ R I ÐJ U DAG U R KOSTIR OG GALLAR Toyota Yaris Grunnverð: 3.240.000 kr. Hestöfl: 116 Hröðun 0-100 km: 9,7 sek. Hámarkshraði: 175 Eyðsla bl. ak: 3,8 l./100 km CO2: 87 g/km L/B/H: 3.940/1.745/1.500 Hjólhaf: 2.560 mm Eigin þyngd: 1.080 kg Dráttargeta: 450 kg Farangursrými: 286 l. Hljóðstig í akstri: 70 dB n Kraftur n Eyðsla n Búnaður n Höfuðrými aftur í n Hurðaopnarar frammi í KOSTIR GALLAR Reynsluakstur Njáll Gunnlaugsson njall@frettabladid.is Smábílaflokkurinn á undir högg að sækja vegna aukinna krafna ESB um minni mengun og þar kemur nýr Toyota Yaris inn af krafti. Fjórða kynslóð Toyota Yaris er nú komin á markað og er að mestu í boði sem tvinnbíll. Þannig stendur hann nokkuð sér á parti í samkeppninni þar sem slík tækni er dýrari og því oftar en ekki sleppt í minnstu bílunum. Hann hefur verið vinsælasti smábíll landsins síðan hann kom á markað. Alls höfðu 14.074 Yaris- bílar verið skráðir frá upphafi í október og af þeim eru 11.609 ennþá í notkun eða 82,5% allra bílanna sem verður að teljast gott því að hann kom á markað hér um aldamótin. Sportlegri bíll Bíllinn hefur breyst nokkuð á milli kynslóða og óhætt er að segja að nýi bíllinn sé nokkuð sportlegur í útliti. Að framan eru hvassari línur í ljósum og loftinn- tökum og brettin, og þá sér í lagi afturbrettin, eru breiðari. Einnig er hægt að fá bílinn í tvískiptum lit. Bíllinn kemur á nýjum GA-B undirvagni sem er 37% stífari en áður og það finnst vel í akstri bílsins. Stýrið er létt og f ljótt að svara hreyfingum ökumanns og fjöðrunin er mátulega stíf, enda þarf talsvert til að hann missi grip sitt við veginn. Helsta vélin sem er í boði er 1,5 lítra þriggja strokka vél sem skilar 114 hestöflum og er hún tengd við lítinn rafmótor. Við vélina er hægt að fá 6 gíra kassa eða CVT-skiptingu sem er kannski ekki sú sportlegasta en skilar ágætlega sínu. Gallinn við hana er að þegar bílnum er gefið inn er hann fljótur upp á snúning sem eykur hávaðann í farþega- rýminu. Með þessari vél er bíllinn mjög sprækur og ekki skemmir rafmótorinn fyrir upptakinu auk þess sem hann hefur góð áhrif á eyðsluna. Plássið í meðallagi Að innan er bíllinn bæði smekk- legur og vel búinn. Yngri kaup- endur kunna vel að meta þá stað- reynd að snertiskjárinn er með blátannarbúnaði, bakkmyndavél og síðast en ekki síst Apple CarPlay og Android Auto. Það er þægilegt að nota alla hnappa og hefðbundin snúningsstilling á miðstöð sem er með loftkælingu er kostur. Eitt var það þó sem hefði mátt bæta, en hurðarhandfang í innréttingu er svart að lit og frekar illa staðsett, þannig að það tók alltaf smátíma að finna það til að byrja með. Þótt bíllinn sé fimm millimetrum styttri en fyrirrenn- arinn er hjólhafið 50 mm lengra. Bíllinn er einnig 50 mm breiðari en 40 mm lægri enda finnst það vel í höfuðrými aftur í. Fótarými er viðunandi fyrir bíl í þessum flokki og það sama má segja um pláss annars staðar, hann setur engin ný viðmið í plássi en sleppur vel fyrir horn. Sama má segja um farangursrými, en 286 lítrar er í meðallagi í þessum flokki bíla. Afturljósin taka sitt pláss en stærð opsins er samt ágætt. Það er helst hvað stuðarar eru fyrirferðar- miklir þegar kemur að hleðslu. Hvað er í boði? Samkeppnin kemur aðallega frá Renault Clio, Volkswagen Polo og Ford Fiesta, sem einnig er fáanleg með tvinnútfærslu. Reyndar er Honda Jazz það einnig ásamt Suzuki Swift þótt þeir séu ekki eins algengir. Þegar kemur að samanburði á verði er nauð- synlegt að hafa möguleika á tvinnútfærslu í boði en ódýrasta útgáfa Yaris með tvinnútærslu er Live Hybrid sem er á 3.770.000 kr. Tvinnútgáfa Ford Fiesta er frá 3.090.000 kr., Suzuki Swift frá 3.275.000 kr. og Honda Jazz frá 3.990.000 kr. Aðeins Jazz er einnig í boði sjálfskiptur eins og Yaris í tvinnútfærslum en Fiesta og Swift aðeins beinskiptir. Toyota Yaris bætir um betur Útlit bílsins er mun sportlegra með ákveðnari línu og breiðari hjólaskálum. MYNDIR/TRYGGVI ÞORMÓÐSSON Innanrýmið er vel hannað og þægilegt að nota allan stjórnbúnað. Bíllinn liggur vel í akstri og þótt hann lyfti hér aðeins afturdekki þegar lagt er snöggt á hann er hann fljótur að ná gripinu aftur. Þriggja strokka 1,5 lítra vélin er að verða aðalvélin í Yaris-línunni. Höfuðrými er í minna lagi í aftur- sætum og þeir sem eru 180 sm og yfir munu reka sig upp undir. Farangursrými er talsvert minna en hjá helstu samkeppnisaðilum. Hliðarhurðir taka mikið af hliðarrými bílsins eins og sjá má en það auð- veldar aðgengi um þennan litla bíl til muna.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.