Fréttablaðið - 01.12.2020, Side 24

Fréttablaðið - 01.12.2020, Side 24
KOSTIR OG GALLAR Maxus Euniq MPV Grunnverð: Ekki fáanlegt Hestöfl: 177 Tog: 310 Nm Hámarkshraði: 160 km Rafhlaða: 52,5 kWst Hleðslutími AC: 8 klst. Hleðslutími DC 80%: 30 mín. Drægi skv. WLTP: 325 km Eigin þyngd: 1.810 kg Dráttargeta: 400 kg L/B/H: 4.825/1.825/1.778 mm Hjólhaf: 2.800 mm Veghæð: 164 mm Farangursrými: 1.026/485 lítrar n Rými n Verð n Felling miðjusætis n Enginn útihitamælir Maxus er eitt af nýju raf bíla- merkjunum sem nú hasla sér völl í Evrópu og á Íslandi og bjóða ört vaxandi úrval raf bíla. Enginn rafmagnsbíll fyrir f leiri en fimm farþega hefur verið í boði fyrir utan Tesla Model X, en nú er allt í einu svo að hægt er að velja um tvo slíka bíla í viðbót. Annar þeirra verður kynntur eftir ára- mót og er frá nýja Maxus-merkinu úr Skeifunni. Bíllinn heitir Maxus Euniq MPV og ber sannarlega nafn með rentu. Þetta er annar raf bíll merkisins á Íslandi en hann er framleiddur á SAIC sem einnig á MG. Maxus Euniq er einnig framleiddur með bruna- hreyf lum og er því engin nýsmíði, enda þegar verið framleiddur í stórum stíl fyrir Asíumarkað. Vel búinn í grunninn Það dylst engum að Maxusinn er stór bíll þegar komið er upp að honum. Það er nánast allt stórt við bílinn, hurðir, skjáir, sæti og margt f leira. Það verður enginn í vandræðum með að koma sér fyrir í þessum bíl og sjaldan eða aldrei hefur bílaprófari Frétta- blaðsins reynt bíl með jafn mikið höfuðrými og þennan. Bíllinn er vel búinn í grunninn, með stórum rafdrifnum leðursætum, rafdrifnu sólþaki, stórum upplýsingaskjá, 360 gráðu myndavél og meira að segja gamaldags sígarettukveikj- ara. Einnig má nefna neyðar- hemlun, blindhornsskynjara, fjar- lægðarskynjara og Apple CarPlay og Android Auto. Til að virkja Apple CarPlay þarf að nota snúru og þar sem hann er ekki búinn leiðsögubúnaði er gott að geta haft þann möguleika. Upplýs- ingaskjárinn í bílnum er af stærri gerðinni eða 12,3 tommur, en það dugir samt ekki til að sýna alla möguleikana á heimaskjánum. Þarf að renna fingri á skjánum til að færa útsýnið til sem verður að teljast ansi sérstakt. Annað sem vakti athygli undirritaðs er vöntun á útihitamæli, og ekki í fyrsta skipti í bílum frá SAIC. Maður hefði haldið að í jafn vel búnum bíl og þessum hefði verið hægt að splæsa í einn slíkan. Allt í yfirstærð Það er nánast alveg sama hvar það er skoðað, plássið er alls staðar Maxus Euniq MPV ber nafn með rentu Hliðarsvipur bílsins minnir einna helst á smárútu og hurðirnar eru risastórar en það auðveldar mikið umgengni um bílinn. MYNDIR: TRYGGVI ÞORMÓÐSSON Maxus Euniq MPV er byggður á bíl með brunahreyfli og því er nóg pláss í kringum rafmótorinn sem ekki er nýtt. Reynsluakstur Njáll Gunnlaugsson njall@frettabladid.is 6 BÍLAR 1 . D E S E M B E R 2 0 2 0 Þ R I ÐJ U DAG U R KOSTIR GALLAR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.