Morgunblaðið - 25.05.2020, Síða 15
15
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. MAÍ 2020
Dýpt Tíminn er eins og vatnið, og vatnið er kalt og djúpt eins og vitund mín sjálfs, kann þessi steggur að hafa hugsað þegar hann speglaði sig í stilltu Elliðavatninu í blíðviðri um helgina.
Eggert
Það hriktir í stoðum atvinnulífs
um víða veröld í kjölfar COVID-
veirufaraldursins. Spurningar
hrannast upp um hvað sé í vænd-
um og hvernig koma megi at-
vinnustarfsemi í viðunandi horf.
Þó að mikill léttir geri vart við sig
hérlendis í kjölfar árangursríkra
varnaraðgerða er langt frá því að
mannlíf sé að færast hér í fyrra
horf, að ekki sé talað um ná-
grannalönd og heimsbyggðina
alla. Stærsta dýfan hérlendis
tengist ferðaþjónustu sem atvinnugrein í kjölfar
mikils og ósjálfbærs vaxtar um nokkurra ára
skeið. Ári áður en kom til lokunar vegna veir-
unnar hafði WOW air orðið gjaldþrota. Það
kostaði mörg störf en bitnaði þó minna en búast
mátti við á fjölda erlendra ferðamanna sem
hingað komu á árinu 2019. Staðan nú er af allt
öðrum toga og fordæmalaus. Um leið og vænt-
ingar eru um að senn taki að opnast í nokkrum
mæli fyrir ferðalög milli landa er brýnt að
stjórnvöld í samvinnu við hagsmunaaðila fari yf-
ir sviðið, dragi lærdóma af liðinni tíð til að leggja
grunn að æskilegri framtíðarþróun í ferðaþjón-
ustu.
Róttækar breytingar
í efnahagsumhverfinu
Hérlendis hefur ríkisstjórn með samþykki
Alþingis boðið fram risafjárhæðir til bjargar at-
vinnulífi og almannahag. Það sama hefur verið
að gerast víða um heim sem viðbrögð við veir-
unni, nánast óháð pólitískum bakgrunni rík-
isstjórna. Alþjóðaviðskipti liggja í láginni og
ólíklegt að þau birtist á ný í sama mæli og áður
sem driffjöður viðskipta heimsálfa á milli. Hvert
þjóðríki hefur líkt og hér gripið til
sinna ráða til bjargar fyrirtækjum
og almenningi og lokað landa-
mærum sínum í nauðvörn, þvert á
settar reglur ríkjabandalaga og
alþjóðastofnana. Margar ríkis-
stjórnir setja nú fram kröfur um
samfélagsaðild að stjórnum mik-
ilvægra einkafyrirtækja eins og
flugfélaga samhliða fjárhags-
legum stuðningi til að verja þau
falli. Þannig er ekki aðeins staðan
hérlendis, það sama er uppi á ten-
ingnum gagnvart Lufthansa í
Þýskalandi, Air France í Frakk-
landi og KLM í Hollandi. Evrópusambandið
reyndist ekki sá bjarghringur sem margir
væntu, heldur voru það þjóðríkin sem tóku til
sinna ráða þegar að kreppti. Veiran hratt af
stað breytingum, sem margir voru farnir að
hugsa til áður en hún brast á, og heimurinn
verður ekki samur þegar hún er liðin hjá. Al-
þjóðavæðingin svonefnda hefur beðið hnekki og
ósennilegt er að hún fylli á ný það rúm sem áður
var.
Viðvarandi stefnuleysi í ferðaþjónustu
Fjölgun ferðamanna hingað til lands síðasta
áratuginn hefur verið með ólíkindum. Enginn
neitar því að hún hefur haft jákvæð áhrif á þjóð-
arbúskapinn í kjölfar bankahrunsins 2008.
Margir þættir ýttu undir þessa þróun, meðvit-
aðir og óræðir. Undir það síðartalda má telja
eldgosið í Eyjafjallajökli vorið 2010 sem lokaði
um skeið á flugsamgöngur í Evrópu, en reynd-
ist ómæld auglýsing fyrir Ísland sem ferða-
mannastað. Aldrei hafa fyrr eða síðar verið
skrifaðar jafn margar fræðigreinar um eldgos
hérlendis, til viðbótar skrautlegri fjölmiðla-
umræðu. Það voru hins vegar íslensk stjórnvöld
sem brugðust, einkum á árunum 2014-2017,
þegar ljóst var í hvað stefndi með gífurlega
fjölgun ferðamanna. Fimbulfambað var árum
saman um gjöld á ferðaþjónustu og endaði með
að lunganum af henni var ætlað að greiða aðeins
11% virðisaukaskatt á meðan almenna skatt-
hlutfallið er 24%. Hriplek ákvæði um gistinátt-
gjöld voru áfram í gildi, en komugjöldum til
landsins var hafnað sem og hugmyndum um
gjaldtöku til stýringar á ferðamannastraumi
innanlands. Allt leiddi þetta til stjórnleysis og
þeirrar offjárfestingar í hótelbyggingum og
veitingaaðstöðu sem við blasir, að ekki sé talað
um lausagöngu Airbnb-kerfisins. Stuðningur
við dreifingu farþega erlendis frá með flugi til
fleiri staða hér innanlands en Keflavíkur hefur
einnig látið á sér standa.
Móta þarf forsendur og
stefnu til framtíðar
Ferðaþjónusta hér sem annars staðar er nú
lömuð. Þær aðstæður þarf að nota til að fara
gagnrýnið yfir liðna tíð og móta framsýna
stefnu út frá gefnum forsendum um æskilegan
vöxt og dreifingu ferðamanna um landið með til-
liti til náttúrufars, verndunar umhverfis og
áhættuþátta. Hafa ber í huga þau atriði sem
tengjast íslenskri náttúru, jafnt af völdum eld-
gosa, jarðskjálfta og veðurfars, það álag sem
þeim fylgir og að tryggja sem best öryggi ferða-
manna. Heimild þarf að vera til að takmarka
fjölda manna inn á tiltekin svæði. Marka þarf
stefnu um leiðsögn og réttindi leiðsögumanna
sem og starfsfólks sem vinnur við ferðaþjón-
ustu, m.a. um málakunnáttu, þar á meðal í ís-
lensku. Nauðsynlegt er að tengja ferðaþjónustu
við þá stefnu sem mörkuð verður um samdrátt í
losun gróðurhúsalofts. Hafa ber í huga þá miklu
mengun sem nú tengist flugsamgöngum og þær
skuldbindingar sem Ísland þarf að taka á sig til
að ná settum markmiðum um samdrátt í losun
gróðurhúsalofts. Þessu tengjast auðvitað ferðir
okkar Íslendinga um eigin land sem og til út-
landa, þar á meðal ferðir í opinberum erindum
og þróun slíkra samskipta, m.a. með fjar-
skiptum.
Ég er kominn upp á það …
Við sem nú lifum verðum væntanlega reynsl-
unni ríkari eftir að veiran þessi er gengin hjá, og
jafnframt ber okkur að minnast þess að hún
verður ekki sú síðasta til að koma mannkyni á
óvart. Í kjölfar pestarinnar kemur efnahags-
lægðin og viðleitni vonandi sem flestra til að ná
jafnvægi og góðu sambýli við umhverfi okkar.
Eitt af því sem þar kæmi til góða er að draga úr
því ferðaflandri sem svo mjög hefur undið upp á
sig síðustu áratugi. Margs í tilverunni má njóta
með öðrum hætti, af lestri góðra bóka og mynd-
efni sem nú lýsir inn í flesta kima á plánetu okk-
ar. Hafa má þá í huga vísu listaskáldsins Jón-
asar þegar hann segir:
Ég er kominn upp á það,
allra þakka verðast,
að sitja kyrr í sama stað,
og samt að vera að ferðast.
Góða ferð, lesandi góður.
Eftir Hjörleif Guttormsson »Móta þarf stefnu út frá
gefnum forsendum um
æskilegan vöxt og dreifingu
ferðamanna um landið, með
tilliti til náttúruverndar og
margra áhættuþátta.
Hjörleifur Guttormsson
Höfundur er náttúrufræðingur.
Ferðaþjónusta á sjálfbærum grunni