Morgunblaðið - 25.05.2020, Síða 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. MAÍ 2020
Fyrir líkama og sál
Laugarnar í Reykjavík
Frá
morgnifyrir alla
fjölskylduna
í þínu
hverfi t i l kvölds
Sími: 411 5000
www.itr.is
„KRAKKASKRATTINN SEM REKUR
FYRIRTÆKIÐ ÁSAKAR OKKUR UM AÐ
HAGA OKKUR BARNALEGA.”
„HVAÐ MEINARÐU MEÐ ÞRÍBURAR! HANN
VAR Á UNDAN MÉR!”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að deila tilfinningum
ykkar.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
FÉLAGAR, ÉG VIL EKKI SJÁ YKKUR
SÆRÐA OG BLÓÐUGA EFTIR
ORRUSTU DAGSINS!
HRÓLFUR,
ÞÚ ERT SVO
UMHYGGJU-
SAMUR!
AUÐVITAÐ! ÞAÐ KOSTAÐI FORMÚU
AÐ HREINSA FÖTIN YKKAR EFTIR
SÍÐUSTU ORRUSTU!
HAHA, ÞÚ
LEIST VIÐ!
HEI, LJÓTI
HUNDUR!
ÉG HEF VERIÐ
AÐ SEMJA FYRIR
ÍKORNANA
VOFF!
VOFF!
VOFF!
FÆÐINGADEILD
Orra, f. 1999; 2) Ellert Kristófer, f.
22.11. 1974, húsasmiður og verktaki,
búsettur í Garðabæ. Eiginkona hans
er Hjördís Jóhannsdóttir og dætur
þeirra eru Anna Katrín, f. 2013, og
Matthildur Marín, f. 2015. Fyrir átti
Ellert, með Hönnu Óladóttur, synina
Kristófer Bjarma, f. 1997, Tind Snæ,
f. 1999, og Maríus Högna, f. 2005; 3)
Anna Marín, f. 14.7. 1980, ljósmynd-
ari, gift Karsten Holm og býr í Dan-
mörku. Börn hennar eru Marín, f.
2007, og Illugi Knútur, f. 2012; dætur
Ólafs og Jóhönnu S. Vilbergsdóttur, f.
29.1. 1969, skólastjóra eru 4) Unnur
Egla, f. 1.8. 2000, kvennaskólagengin,
og 5) Magdalena, f. 26.11. 2001, nemi í
Danmörku. Stjúpdóttir Ólafs og dótt-
ir Kate er India Samantha, f. 26.11.
2001.
Systkini Ólafs eru Bryndís, f. 9.7.
1938, Ellert, f. 10.10. 1939, Margrét, f.
18.1 1943, Björgvin, f. 6.6. 1945,
Magdalena, f. 11.8. 1948, d. 9.6. 1993,
Anna Helga, f. 25.9. 1957, og fóstur-
systir er Aldís, f. 21.1. 1959.
Foreldrar Ólafs voru hjónin
Björgvin Schram, f. 3.10.1912, d. 24.3.
2001, knattspyrnukappi og stór-
kaupmaður, og Aldís Þorbjörg Brynj-
ólfsdóttir f. 23.3. 1917, d. 5.5. 1991,
húsmóðir.
Úr frændgarði Ólafs Schram
Ólafur Magnús
Schram
Aldís Helgadóttir
húsfreyja í Litla-
landi, af Bergsætt
Margrét Magnúsdóttir
húsfreyja í Rvík
Brynjólfur Jónsson
sjómaður í Reykjavík
Aldís Þorbjörg
Brynjólfsdóttir
húsfreyja í Rvík
Þorbjörg
Nikulásdóttir
húsfr. í Klauf
Jón Brynjólfsson
b. í Klauf í Landeyjum
Jónína Vigdís
Schram
læknaritari í Rvík
Kristján Schram
skipstj. í Rvík
Karl Schram
verslunarm. í Rvík
Hrafnhildur Schram
listfræðingur
Gunnar Schram
símstöðvarstj. á
Akureyri
Margrét Gestsdóttir
húsfreyja í Rvík
Árni Hannesson
fræðim. í Rvík
Magdalena Árnadóttir
húsfreyja í Reykjavík
Ellert K. Schram
skipstj. í Rvík
Björgvin Schram
stórkaupm. og form.
KSÍ, í Reykjavík
Hallbjörg
Guðmundsdóttir
húsfreyja í Innri-
Njarðvík
Kristján Schram
timbursmiður í Innri-Njarðvík
Árni Tómas
Ragnarsson
læknir
Gunnar G. Schram
lagaprófessor
Ásta K.
Ragnarsdóttir
framkvstj.
Margrét G. Schram
kennari
Magnús Magnússon
bóndi í Litlalandi í Ölfusi, af Bergsætt
Gunnar
Helgason
leikari
Hallgrímur
Helgason
rithöfundur
Ellert B. Schram
fv. alþm. og
ritstjóri
Höskuldur Kári
Schram
fréttamaður
Margrét Schram
sjúkraliði
Árni Hauksson
verkfr. og fjárfestir
Eva Þorbjörg
Schram
ljósmyndari
Ég fékk góðan póst á fimmtudagfrá Árna Björnssyni: „Ég sá í
vísnahorninu hjá þér um daginn al-
kunna vísu eftir Guðmund á Kirkju-
bóli um minn gamla Þorstein sýslu-
mann. Svo vildi til að ég var
nýbúinn að rekast í rusli á vísu um
sýsla án höfundar þar sem alþekkt
orðalag hans að druslast‘ er notað
sem innrím. Hann nennti tam helst
ekki ótilneyddur að druslast til að
taka bruggara:
Forðumst usla í lengstu lög
lítt mun buslið duga.
Hann er að druslast mæddur mjög
með sitt rusl í huga.
Þekktari voru vísurnar sem fóru
á milli Bjarna Ásgeirssonar alþing-
ismanns og Ragnars Ásgeirssonar
garðyrkjuráðunautar. Bjarni kom
til Ragnars í leit að Þorsteini með
þessum orðum:
Vísaðu mér á þrjótinn þann
Þorstein Dalasýslumann.
Kom ég víða en hvergi fann
karlhelvítisandskotann.
Ragnar á að hafa svarað á sinni
kverkmælsku:
Blótaðu ekki Bjagni minn
bíddu heldug ljúfuginn
hveg veit nema komi inn
kaglhelvítisandskotinn.“
Góður var pósturinn og þætti mér
gott að fá fleiri slíka!
Pétur Stefánsson yrkir á uppstig-
ingardegi á Leir:
Kátur syng með dáð og dug,
depurð þvinga úr vegi.
Ekkert þyngir okkar hug
á uppstigningardegi.
Ingólfur Ómar kvartar yfir því að
einhver ritstífla aftri sér þessa dag-
ana, – „en þó datt þetta vísukorn út úr
mér í morgun hvað svo sem verður“:
Öllu breytir gefur grið
gleði veitir sanna.
Ef ég leita inn á við
andans reit að kanna.
Regnið var kærkomið Sunnlend-
ingum. Á miðvikudag orti Ólafur
Stefánsson og kallaði „Ekkert efni“:
Hægan strýkur regnið rúður,
rykið sjatnar, jörðin grær.
Í vísu minni er varla púður,
varla meira’en þeirri í gær.
Guðmundur B. Guðmundsson
svaraði:
Hérna lemur regnið rúður
og ryk er tæpast sjáanlegt.
Í vísu þessa vantar púður
sem víst er hvergi fáanlegt.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Enn um Dalasýslumann
og sunnlenskt regn