Morgunblaðið - 25.05.2020, Side 32

Morgunblaðið - 25.05.2020, Side 32
Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Póstkort hafa lengi yljað mörgum um hjartarætur. Nú hefur barna- bókahöfundurinn og teiknarinn Bergrún Íris Sævarsdóttir, bæjar- listamaður Hafnarfjarðar 2020, útbúið og dreift 1.200 póstkortum á heilbrigðisstofn- anir og hjúkr- unarheimili víða um land til að auðvelda heim- ilisfólkinu að vera í sambandi við ættingja, ekki síst börnin, og til að viðhalda góð- um sið í leiðinni. „Börnum þykir allt- af gaman að fá póstkort,“ segir hún. Heimilisfólk á hjúkrunarheimilum hefur þurft að búa við heimsókna- bann í kórónuveirufaraldrinum og Bergrún segist hafa fundið til með því í einangruninni, ekki síst íbúum heimila þar sem smit hafi verið meiri en annars staðar. Því hafi hún lagt áherslu á að Berg í Bolungarvík fengi nóg af kortum og eins hjúkr- unarheimilið í Grindavík, þar sem íbúarnir búi við tvöfalda ógn, veir- una og virkt gossvæði. Vildi gefa af sér í faraldrinum „Fyrir um mánuði fór ég að velta því fyrir mér hvort ég gæti ekki gert eitthvað fyrir þetta fólk,“ segir Bergrún um verkefnið. „Ég er ekki í framlínusveit og mér fannst ég vera frekar gagnslaus á vinnustofunni minni, þótt ég hafi haft nóg fyrir stafni. Ég vildi gefa eitthvað af mér sem gæti orðið til þess að gera ástandið þó ekki væri nema örlítið bærilegra og þetta var niðurstaðan.“ Bergrún bætir við að hún sé búin að missa bæði ömmur sína og afa. Hún hafi hugsað með sér hvað myndi trufla þau mest væru þau á lífi og það væri að geta ekki hitt langömmubörnin sín. Með því að út- búa póstkort með kveðjum og dreifa þeim gæti hún tryggt fólki einhvers konar samskipti. Í því sambandi bendir hún á að ömmusystir sín búi í Bretlandi og geti ekki hitt ástvini sína. Hún hafi því sent henni kort í tölvupósti, sem hún geti prentað út og sent barnabörnum. „Eldra fólk er mér sérstaklega kært,“ segir Berg- rún, sem hefur meðal annars unnið á hjúkrunarheimilum og þekkir vel til þarfa íbúanna, en ein bóka hennar gerist einmitt á hjúkrunarheimili. Viðbrögðin vegna kortanna hafa ekki látið á sér standa. „Þau hafa verið mögnuð og góð og greinilegt er að kortin hafa snert einhvern streng.“ Bergrún segist meðal ann- ars hafa fengið kveðju frá Hjúkr- unarheimilinu Eir í Reykjavík. „Gaman var að heyra að kortin urðu til þess að fólk fór að bera saman bækur sínar, telja hvað það ætti marga afkomendur, nöfnin og fleira.“ Póstkortin voru prentuð hjá Prentun.is í Hafnarfirði, Bergrúnu að kostnaðarlausu. „Vinir mínir í fyrirtækinu voru strax tilbúnir að vera með í verkefninu og þegar ég spurði hvort þeir væru tilbúnir að borga kostnaðinn að hálfu á móti mér sögðust þeir sjá um þetta alfar- ið.“ Kortin eru með mismunandi áletr- unum. „Afi saknar þín svo mikið“ er til dæmis ein og „Langamma elskar þig langmest“ önnur. Komi fram óskir um fleiri kort segir Bergrún að ekkert standi í vegi fyrir því að verða við þeim. Póstkort fá nýtt líf í höndum Bergrúnar Gjafapakkar Bergrún Íris setur kortin í öskjur og dreifir þeim.  Listakonan hefur útbúið og gefið öldruðum kort til að senda Skilaboð Kortin eru með mismun- andi uppörvandi áletrunum. FÆST Í NÆSTU BÓKAVERSLUN OG Á EDDA.IS Barir og tónleikastaðir verða opnaðir á ný í dag og mun hljómsveitin Hvanndalsbræður ríða á vaðið á Græna hattinum á Akureyri og halda tónleika í kvöld og öll kvöld til og með 31. maí. Hvanndalsbræður vinna nú að áttundu hljómplötu sinni og fara í hljóðver í júní til að taka hana upp. Nýtt efni er því á leiðinni frá hljómsveit- inni og munu gestir Græna hattsins fá að heyra nokkur ný lög. Allir tónleikarnir hefjast klukkan 21 og húsið verður opnað klukkustund fyrr. Miðasala fer fram á tix.is og graenihatturinn.is. Hvanndalsbræður halda tónleika sjö kvöld í röð á Græna hattinum MÁNUDAGUR 25. MAÍ 146. DAGUR ÁRSINS 2020 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 697 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. Kristinn Freyr Sigurðsson, miðjumaður knattspyrnuliðs Vals, segir að leikmenn Hlíðarendaliðsins mæti til leiks á Íslandsmótinu með það í huga að láta stórslys síð- asta tímabils ekki endurtaka sig. Valsmenn voru þá sig- urstranglegir en enduðu í sjötta sæti. „Það er ekkert launungarmál að við ætlum okkur titilinn og það væru vonbrigði að ná því ekki. Það er krafa um titil á Hlíðar- enda,“ segir Kristinn Freyr. »26 Látum stórslys síðasta tímabils ekki endurtaka sig í ár ÍÞRÓTTIR MENNING

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.