Morgunblaðið - 29.05.2020, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 2020
www.kofaroghus.is - sími 553 1545
339.000 kr.
Tilboðsverð
BREKKA 34 - 9 fm
518.000 kr.
Tilboðsverð
STAPI - 14,98 fm
389.000 kr.
Tilboðsverð
NAUST - 14,44 fm
34mm
34mm44mm
Ítarlegar upplýsingar og teikningar ásamt ýmsum öðrum fróðleik
má finna á vef okkar
VORTILBOÐ Á GARÐHÚSUM!
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Keppni hófst í skólahreysti á ný í gær eftir hlé
sem gert var vegna veirufaraldursins. Undan-
keppni var í Laugardalshöll í gær og verður aft-
ur í dag og síðan fara úrslit fram á laugardag.
Keppnin í Laugardalshöll var án áhorfenda en
sjónvarpsáhorfendur RÚV gátu séð Ásdísi
Aþenu Magnúsdóttur, sem er fremst á myndinni,
tryggja Grunnskóla Húnaþings vestra sæti í úr-
slitum með því að hanga á rá í heilar 8 mínútur.
Keppt í skólahreysti á ný
Morgunblaðið/Eggert
Hékk í 8 mínútur og tryggði úrslitasæti
Erla María Markúsdóttir
erla@mbl.is
Samkvæmt mælingum Íslenskrar
erfðagreiningar hafa 0,9% íslensku
þjóðarinnar, fyrir utan þau sem voru
með staðfest smit og fóru í sóttkví,
myndað mótefni gegn kórónuveir-
unni. Þetta kom fram í máli Kára
Stefánssonar á fræðslufundi vegna
kórónuveirunnar sem fór fram hjá
ÍE í gærkvöldi.
Kári sagði einnig að Íslensk erfða-
greining hefði verið í samstarfi við
vísindamenn í Bresku Kólumbíu í
Kanada við að reyna að búa til mót-
efni til lækninga. Tekið hefði verið
mikið af hvítum blóðkornum úr fjór-
um einstaklingum sem tóku þátt í
rannsókninni. Þessi sýni hefðu verið
send til rannsóknarstofunnar í Kan-
ada þar sem hefðu verið einangraðar
þær frumur sem búa til mótefni gegn
ákveðnu eggjahvítuefni í þessari
veiru. Hugmyndin er sú að það mót-
efni eigi að koma í veg fyrir að veiran
komist inn í frumur líkamans. „Þetta
er að komast af stað og hefur gengið
ævintýralega vel en þetta er mjög
snemma í sögunni. Það er langt í að
hægt sé að búa til lyf á þessum
grundvelli,“ sagði Kári.
Mælt meira en allir aðrir
Alma Möller landlæknir sagði að
Íslendingar hefðu mælt meira en all-
ar aðrar þjóðir í heiminum fyrir CO-
VID-19 sjúkdómnum og bæri að
þakka Íslenskri erfðagreiningu fyrir
það. Hún sagði sjúkdóminn mjög
fjölbreyttan. Hann gæti verið ein-
kennalaus hjá sumum en banvænn
hjá öðrum. Alma sagði að ljóst hefði
verið í janúar að um alvarlegan sjúk-
dóm væri að ræða þegar myndir og
fréttir fóru að berast frá Kína. Þá
strax hefði verið ljóst að þetta væri
engin venjuleg flensa. Tölfræði sýnir
að 5% veikist alvarlega en 80% veik-
ist lítið. Fólki versnar oft skyndilega
á degi sjö til níu. Hún fór yfir hversu
miklu það skipti að hér á landi hefði
verið brugðist snemma við og sagði
að fyrsta minnisblað vegna sjúk-
dómsins hefði verið sent til ráðherra
27. janúar. Sýni hefðu verið tekin hjá
fólki fjórum vikum áður en fyrsta
smit greindist og það hefði verið
gríðarlega mikilvægt. Sá einstaki ár-
angur að 57% þeirra sem greindust
með sjúkdóminn hér á landi hefðu
þegar verið í sóttkví hefði einnig ver-
ið gríðarlega mikilvægur.
Fram kom í máli Þórólfs Guðna-
sonar sóttvarnalæknis að litlar líkur
væru á stórum faraldri hér á landi á
næstunni. Þórólfur sagðist ekki vilja
opna landið alveg, en ekki hafa það
lokað heldur. Opna ætti eins og til
stæði að gera. Hann sagði að sér
þætti koma til greina að taka gild
skimunarvottorð frá öðrum löndum
ef þau væru gefin út skömmu áður
en ferðamenn koma hingað til lands.
Þá sagði hann að það væri lögbrot að
senda ferðamenn úr landi ef þeir
greinast smitaðir þegar þeir koma
hingað, tryggja yrði að þeir gætu
farið í sóttkví.
Fundinum var streymt á netinu en
nokkur hópur fólks fylgdist með
honum í fundarsal ÍE. Sérstakur
gestur var Svandís Svavarsdóttir
heilbrigðisráðherra. Hóf Kári Stef-
ánsson mál sitt í upphafi fundar á því
að bjóða hana sérstaklega velkomna
og þakkaði henni fyrir að koma,
þrátt fyrir að honum hefði „ekki tek-
ist að sitja á strák sínum“ í Kastljósi
RÚV á miðvikudagskvöld.
Innan við 1% hefur mótefni
ÍE í samstarfi við Kanadamenn um að búa til mótefni Íslendingar skimað meira en aðrar þjóðir
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir telur að taka eigi við nýjum skimunarvottorðum við landamærin
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Fundur Svandís Svavarsdóttir heil-
brigðisráðherra sat m.a. fundinn.
Meðaleinkunnir framhaldsskóla-
nema sem útskrifast hafa með stúd-
entspróf eftir þriggja ára nám eru
lægri en einkunnir nemenda sem
innrituðust í fjögurra ára langt nám
til stúdentsprófs. Þetta kemur fram
í skýrslu mennta- og menningar-
málaráðherra um árangur og áhrif
þess að námstími til stúdentsprófs
var styttur úr fjórum árum í þrjú ár
sem birt var á vef Alþingis í gær.
„Rektorar þriggja háskóla telja
erfitt að leggja mat á áhrif stytting-
arinnar á þessum tímapunkti, þó
greinast hjá Háskóla Íslands vís-
bendingar um að meðaleinkunn
nemenda af þriggja ára stúdents-
prófsbrautum sé örlítið lægri en hjá
þeim sem lokið hafa prófi á fjögurra
ára stúdentsprófsbrautum,“ segir
einnig í niðurstöðukafla.
Fram kemur að árlegt brotthvarf
nýnema hefur minnkað um 0,5 pró-
sentustig eftir að námstíminn var
styttur. Hins vegar virðist stytting-
in hafa haft óveruleg áhrif á þátt-
töku í félags- og tómstundastarfi.
Hlutfall nemenda sem vinna sam-
hliða námi hefur hækkað á seinustu
árum.
„Niðurstöður sýna að nemendur
telja að líkamleg heilsa sé svipuð og
undanfarin ár en að andlegri heilsu
hafi hrakað, einkum hjá stúlkum. Sú
þróun hófst þó talsvert fyrr en
skipulagður námstími til stúdents-
prófs var styttur í flestum fram-
haldsskólum,“ segir í skýrslunni.
omfr@mbl.is
Lægri einkunnir eftir stytt-
ingu náms til stúdentsprófs
Andlegri heilsu
meðal nemenda
hefur hrakað
Morgunblaðið/Kristinn
Stúdentar Rannsökuð voru áhrifin
af styttingu námstímans í þrjú ár.
Microsoft hefur
tilkynnt að hætt
verði að bjóða
upp á íslenska
útgáfu Outlook-
appsins fyrir
Apple-snjalltæki
í lok júní. Ís-
lenska er eitt 27
tungumála sem
fyrirtækið
hyggst taka af
lista sínum að þessu sinni, að því
er fram kemur í erlendum fjöl-
miðlum.
Norska Dagbladet greinir frá
þessu en nýnorska er eitt af um-
ræddum tungumálum sem hætt
verður að styðja. Áfram verður þó
boðið upp á norskt bókmál.
Að því er fram kemur á vefnum
OnMSft gefur Microsoft þær skýr-
ingar að ráðist sé í þessar breyt-
ingar til að viðhalda samhæfingu
á öllum öppum fyrirtækisins fyrir
Apple-snjalltæki.
Ekkert er minnst á þjónustu við
Android-tæki í skrifum áður-
nefndra miðla. Þýdd útgáfa Out-
look-appsins stendur nú Íslend-
ingum til boða en þó er íslenska
ekki á lista yfir tungumál sem í
boði eru fyrir Android-tæki á
heimasíðu Microsoft.
Þær upplýsingar fengust hjá
Microsoft á Íslandi að málið væri
til skoðunar. hdm@mbl.is
Fullyrt að íslenskan
sé á útleið í Outlook
fyrir iPhone
iPhone Breytingar
sagðar í vændum.