Morgunblaðið - 29.05.2020, Qupperneq 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 2020
Tveir Íslendingar eru gengnir í
raðir þýska handboltaliðsins Aue
sem leikur í b-deildinni þar í landi.
Ásamt Arnari Birki Hálfdánssyni
hefur félagið samið við markvörð-
inn Sveinbjörn Pétursson.
Sveinbjörn er raunar fyrrverandi
leikmaður Aue og var hjá félaginu
frá 2012-2016. Hann lék síðast með
Stjörnunni hér heima en hefur
glímt við bakmeiðsli frá því hann
lenti í bílveltu á síðasta ári. Mark-
vörður Aue sleit krossband í hné og
var félagið því á höttunum eftir
markverði fyrir næsta tímabil.
Sveinbjörn
aftur til Aue
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Endurkoma Sveinbjörn lagði skóna
á hilluna en er nú kominn aftur.
HANDBOLTI
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Það hefur komið handknattleiks-
kappanum Arnari Birki Hálfdáns-
syni á óvart hversu mikið lúxuslíf
það er að vera atvinnumaður í
íþróttinni.
Arnar Birkir, sem er 26 ára,
gekk til liðs við danska úrvalsdeild-
arfélagið SönderjyskE frá Fram
sumarið 2018, en eftir tvö ár í Dan-
mörku hefur hægri skyttan ákveðið
að söðla um.
Hann skrifaði undir samning við
þýska B-deildarfélagið Aue og
verður hann sjöundi íslenski leik-
maðurinn sem skrifar undir leik-
mannasamning við félagið en fyrr-
verandi landsliðsmaðurinn Rúnar
Sigtryggsson þjálfaði liðið á ár-
unum 2012 til ársins 2016.
„Það eru tæpar tvær vikur síðan
ég skrifaði undir samning við Aue
og ég reikna með því að þetta verði
staðfest á morgun (í dag),“ sagði
Arnar Birkir í samtali við Morgun-
blaðið í gær. „Það er eitthvað síðan
ég frétti fyrst af áhuga þýska liðs-
ins. Þeir voru búnir að vera á eftir
mér í einhvern tíma og aðdragand-
inn var kannski aðeins lengri fyrir
þá heldur en mig. Þeir höfðu fyrst
samband við mig í byrjun árs, áður
en kórónuveirufaraldurinn blossaði
upp í Evrópu, en á þeim tímapunkti
var ég með nokkur tilboð á borð-
inu.
Möguleikum mínum fækkaði svo
umtalsvert eftir að faraldurinn fór
yfir Evrópu. Þetta var skrítinn tími
og það voru einhver lið sem dæmi
sem tjáðu mér að þau vildu áfram
fá mig en gætu ekki boðið mér
samning fyrr en í fyrsta lagi eftir
tvo mánuði. Svo fylgdi það oft sög-
unni líka að þetta gæti jafnvel tekið
lengri tíma en tvo mánuði, ef af
þessu yrði þá. Aue var hins vegar
skýrt við mig allan tímann, þeir
vildu fá mig og lögðu mikla áherslu
á það, og þess vegna ákvað ég að
skrifa undir þar.“
Kveikjan að áhuga Aue
Arnar Birkir er uppalinn hjá
Fram í Safamýrinni en hann hefur
einnig leikið með FH og ÍR hér á
landi. Hann hefur spilað mjög vel
með SönderjyskE, undanfarin tvö
tímabil, og skoraði meðal annars 51
mark í dönsku úrvalsdeildinni á síð-
ustu leiktíð.
„Ég get ekki sagt að atvinnu-
mennskan hafi komið mér mikið á
óvart ef ég á að vera alveg hreinskil-
inn. Það er skrítið að segja það en
ég held að ég hafi æft jafn mikið, ef
ekki meira bara, þegar ég var leik-
maður Fram á Íslandi heldur en í
Danmörku. Ég hef hins vegar reynt
að æfa eins mikið aukalega og ég
get hérna úti, þegar ég hef haft
orku til þess.
Það sem hefur komið mér mest á
óvart er hversu mikið lúxuslíf þetta
er. Danska deildin er klárlega
sterkari en sú íslenska, á því leikur
enginn vafi. Það eru margir frábær-
ir leikmenn sem spila í deildinni og
gæðin á æfingum eru mikil.
Frá því að ég kom fyrst til Sön-
derjyskE 2018 höfum við alltaf farið
út til Þýskalands á lítil æfingamót í
janúar á undirbúningstímabilinu.
Ég hef spilað vel á báðum æfinga-
mótunum og Aue hafði samband við
mig í janúar 2019 en þá var ég á
þeim stað að ég vildi klára samning
minn í Danmörku. Það má því segja
að það hafi verið frammistaða mín í
þessum æfingamótum sem hafi ver-
ið kveikjan að áhuga Aue.“
Kippt úr þægindarammanum
Arnar er ekki byrjaður að
undirbúa flutninga til Þýskalands
og ítrekar að hann sé ekki mikið
að stressa sig á því. Hann er hins
vegar byrjaður að æfa sig í þýsk-
unni og er spenntur fyrir næsta
skrefi á sínum ferli.
„Ég hef lítið sem ekkert fylgst
með þýsku B-deildinni á undan-
förnum árum en engu að síður
leggjast þessi skipti gríðarlega
vel í mig og ég er virkilga spennt-
ur. Það verður áhugavert að þurfa
að læra annað tungumál núna,
hálfu ári eftir að ég komst upp á
lagið með dönskuna og gat farið
að tjá mig af einhverju viti við
Danann.
Það mætti því segja að það sé
aðeins búið að kippa manni aftur
út úr þægindarammanum og núna
þarf maður að fara á fullt að læra
þýskuna. Ég sótti ágætis snjall-
símaforrit á dögunum sem von-
andi hjálpar mér við tungu-
málalærdóminn og ég hef tekið
rispur á kvöldin þar sem ég hef
reynt að æfa mig aðeins, hingað
til hefur það gengið nokkuð vel.“
Eftirsóttur á Íslandi
Skyttan telur sig eiga nóg eftir í
handboltanum og er með háleit
markmið. Hann ætlar engu að síð-
ur að taka eitt skref í einu og ein-
beita sér að því að láta verkin tala
inni á handboltavellinum.
„Mér stóð til boða að vera áfram í
Danmörku en að lokum ákvað ég að
prófa eitthvað nýtt. Heilt yfir er ég
mjög ánægður með þessi tvö tímabil
mín í Danmörku. Mér stóð líka til
boða að koma aftur heim og það var
þónokkur fjöldi liða hér
heima sem vildi
fá mig.
Ég vildi hins
vegar halda áfram að spila áfram er-
lendis sem atvinnumaður. Ég er
ennþá ungur og ég tel mig eiga sjö
til tíu góð ár eftir í þessu. Þýska B-
deildin ætti að vera frábær stökk-
pallur fyrir mig sem leikmann og
markmiðið er að sjálfsögðu að spila í
þýsku úrvalsdeildinni einn daginn.
Þegar allt kemur til alls þá er
þetta undir sjálfum mér komið og ég
gæti blaðrað endalaust um það hvað
ég ætla mér að gera í framtíðinni.
Það sem gildir hins vegar er hvernig
maður stendur sig inni á vellinum
sjálfum og það ætla ég mér svo
sannarlega að gera,“ bætti Arnar
Birkir við í samtali við Morgun-
blaðið.
Lúxuslíf að vera atvinnu-
maður í handbolta
Arnar Birkir Hálfdánsson sjöundi Íslendingurinn sem spilar fyrir Aue frá 2012
Morgunblaðið/Hari
Þýskaland Arnar Birkir Hálfdánsson er á leið til B-deildarliðs Aue eftir tvö ár með SönderjyskE í Danmörku.
Stórstjarnan Luc Abalo er óvænt
gengin til liðs við Elverum í Noregi en
handboltakappinn er tvöfaldur ólymp-
íumeistari og á meðal sigursælustu
leikmanna heims í áraraðir. Hann er 35
ára gamall Frakki og var á mála hjá
PSG í heimalandinu frá árinu 2012 og
hafði hugsað sér að ljúka ferlinum á
Ólympíuleikunum í Tókýó í sumar.
Þeim var hins vegar frestað um eitt ár
en hann var þegar búinn að tilkynna
Parísarliðinu um ákvörðun sína. Abalo
spilar mest í hægra horni og má segja
að hann leysi Íslendinginn Sigvalda
Björn Guðjónsson af hólmi sem hafði
félagaskipti frá Elverum yfir í Kielce í
Póllandi.
Ítölsk yfirvöld hafa gefið grænt ljós
á að deildarkeppnin í knattspyrnu geti
hafið göngu sína á ný í landinu. Öll fé-
lögin samþyktu tillöguna einróma og
munu fyrstu leikir fara fram 20. júní.
Birkir Bjarnason leikur með liði
Brescia. Ekki hefur verið tekin ákvörð-
un um hvort haldið verði áfram í neðri
deildunum. Sveinn Aron Guðjohnsen
leikur með Spezia í B-deildinni og Emil
Hallfreðsson með Padova í C-deildinni.
Knattspyrnukonan Laura Hughes er
gengin til liðs við Þrótt Reykjavík.
Þjálfari liðsins, Nik Chamberlain, stað-
festi þetta við mbl.is í gær. Hughes er
18 ára miðjumaður frá Ástralíu. Þrótt-
arar unnu fyrstu deildina í fyrra og
leika því í efstu deild í sumar.
Hamar frá Hveragerði og Þór Þor-
lákshöfn hafa ákveðið að sameina
krafta sína og senda sameiginlegt lið
til keppni í næstefstu deild kvenna á
Íslandsmótinu í körfuknattleik á
næsta keppnistímabili en þetta kom
fram í fréttatilkynningu sem félagið
sendi frá sér í gær. Hallgrímur Brynj-
ólfsson hefur verið ráðinn til að stýra
liðinu. Hann þjálfaði kvennalið Hamars
á árunum 2012 til 2015.
Víkingur Ólafsvík er að safna liði
fyrir átökin í 1. deildinni í knattspyrnu
og hafa tveir bæst í hópinn. Varn-
armaðurinn Kristófer Reyes, 22 ára,
mun spila með liðinu en hann stað-
festi það sjálfur við vefmiðilinn fót-
bolti.net í gær. Þá tilkynnti félagið á
samfélagsmiðlum sínum að miðju-
maðurinn Vitor Vieira Thomas hefur
gert samning um að spila með liðinu í
sumar. Vitor er fæddur í Brasilíu en
hefur búið á Íslandi frá átta ára aldri
og á 38 leiki að baki í 3. deildinni.
Knattspyrnumaðurinn Mauro Ic-
ardo er að ganga til liðs við Frakk-
landsmeistara PSG en það er ítalski
miðillinn Corriere dello Sport sem
greinir frá þessu. Ítalski miðillinn telur
að PSG muni tilkynna
um félagsskiptin um
helgina en Icardi,
sem er samn-
ingsbundinn
Inter Mílanó, var
á láni hjá PSG á
nýafstaðinni leik-
tíð. Icardi kostar í
kringum 60 milljónir
evra en hann er 27
ára gamall framherji
frá Argentínu. Hann hóf
atvinnumannaferil sinn
með Sampdoria. Eftir frá-
bæra frammistöðu þar var
hann keyptur til Inter Míl-
anó árið 2013.
Eitt
ogannað
Danska úrvalsdeildin í knattspyrnu
hóf göngu sína á ný í gærkvöldi eft-
ir hlé vegna kórónuveirunnar er
AGF tók á móti Randers. Leiknum
lauk 1:1 en Jón Dagur Þorsteinsson
var í byrjunarliði heimamanna.
Honum var skipt út af á 66. mínútu í
stöðunni 1:0 fyrir gestina og segir í
lýsingu Jyllands Posten frá leiknum
að Íslendingurinn hafi strunsað bál-
reiður af velli, ósáttur með skipt-
inguna. Það átti þó ekki eftir að
koma að sök er Patrick Mortensen
jafnaði metin og tryggði heima-
mönnum stig í uppbótartíma.
Jón Dagur fór
bálreiður út af
Morgunblaðið/Hari
Bálreiður Jón Dagur var ekki sáttur
með að vera skipt út af í gærkvöldi.