Morgunblaðið - 29.05.2020, Qupperneq 32
Síðustu tónleikar vordagskrár Jazzklúbbsins Múlans í
Hörpu verða í kvöld kl. 20. Þá mun bassaleikarinn Sig-
mar Þór Matthíasson koma fram með hljómsveit sinni
Metaphor í Flóa, sem er á jarðhæð Hörpu. Múlinn mun
svo snúa aftur með nýja dagskrá um miðjan júní.
Sigmar gaf út fyrstu sólóplötu sína, Áróru, í
september 2018 og hlaut fyrir hana tvær til-
nefningar til Íslensku tónlistarverð-
launanna 2019 í flokki djass- og blústónlist-
ar. Nú er að hefjast undirbúningur
fyrir aðra plötu þar sem áhrif frá
austrænni þjóðlagatónlist og ann-
arri heimstónlist munu blandast
við nútímadjass. Ætla Sigmar
og félagar að prufukeyra nýja
efnið fyrir tónleikagesti Múl-
ans í kvöld. Haukur Gröndal
leikur á klarínett og saxó-
fón, Ásgeir Ásgeirsson á gítar
og oud, Ingi Bjarni Skúlason á pí-
anó og Matthías Hemstock á
trommur.
Leika verk af væntanlegri plötu
FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 150. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
„Ég tel okkur vera að spila miklu betri fótbolta heldur
en í fyrra. Þó að við höfum náð einhverjum smá árangri
í byrjun, þá skulum við bara tala hreint út með það að
við gátum ekkert. Þetta var bara ekki nógu gott tímabil
en ég er hundrað prósent viss um að við munum geta
sýnt meiri gæði og stöðugleika yfir allt tímabilið í sum-
ar. Ég er mjög jákvæður eins og allir í liðinu,“ segir
Skagamaðurinn Stefán Teitur Þórðarson meðal annars
um fótboltasumarið sem framundan er, en rætt er við
hann í blaðinu í dag. »26
Telur Skagamenn spila miklu betri
fótbolta en þeir gerðu í fyrra
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Þegar Bergdís Ósk Sigmarsdóttir
flutti frá Skagaströnd til Reykjavík-
ur í janúar 1968 með samvinnuskóla-
próf frá Bifröst upp á vasann frá
1966 átti hún ekki von á því að hún
ætti eftir að vinna hjá fjórum ætt-
liðum eins og raunin varð. „Eitt hef-
ur leitt af öðru en þetta hefur verið
skemmtilegur tími,“ segir hún.
Hrun í norsk-íslenska síldarstofn-
inum fyrir um hálfri öld hafði mikil
neikvæð áhrif. Atvinnuleysi jókst og
erfitt var að fá vinnu. „Ég fór suður
af því að mig vantaði vinnu, sótti um
hér og þar og þegar mér bauðst
skrifstofuvinna hjá Fataverslun
Andrésar á Laugavegi sló ég til.“
Hún bætir við að hún hafi hafnað
öðru starfi áður en hún réð sig hjá
Andrési Andréssyni. „Þrátt fyrir
erfiða stöðu í samfélaginu var ég
ekki það svartsýn að ég þyrði ekki
að segja nei við einhverju sem mér
leist ekki á.“
Bergdís er ekkja en á tvo syni.
Þegar fyrri sonurinn fæddist 1971
byrjaði hún að vinna heima og gerði
það þar til verslunin hætti fyrir um
áratug, en áður hafði Þórarinn
Andrésson tekið við rekstrinum af
föður sínum. „Ég sá um bókhaldið
heima þar til verslunin hætti 2013 en
vann líka annars staðar,“ segir hún.
1996 byrjaði hún að vinna hjá Verk-
fræðistofunni Vista, þar sem hún er
enn. Andrés Þórarinsson stofnaði og
rak stofuna þar til Þórarinn, sonur
hans, tók við.
Djáknakandídat
Vinnan hefur mikið breyst á lið-
lega hálfri öld en Bergdís bendir á
að grundvöllur bókhaldsins breytist
seint. „Með tilkomu tölva hafa
vinnubrögðin breyst en ég hef
stundum hugsað um það að vinnan
hefur kannski ekki minnkað svo
mikið.“ Pappírseyðslan hafi líka auk-
ist með aukinni ljósprentun en áður
hafi hvert bóhaldsnúmer haft sitt
spjald. Engu að síður hafi prentun
með kalkípappír verið töluverð á ár-
um áður. „Sem betur fer er hún ekki
lengur.“
Bergdís segir að það hafi verið
mikil og góð tilbreyting að hafa byrj-
að að vinna aftur innan um fleira fólk
1996. „Rétt eins og hjá Andrési er
Vista afskaplega góður vinnu-
staður,“ segir hún. Til að geta veitt
enn betri þjónustu og náð betur eyr-
um viðskiptavina fór hún í há-
skólanám samfara vinnunni og út-
skrifaðist með BA-próf sem
djáknakandídat frá Háskóla Íslands
2008. „Ég var ánægð í mínu bókhaldi
auk þess sem ekki var verið að ráða
djákna í kjölfar hrunsins um haust-
ið,“ segir hún, spurð hvort hún hafi
hugleitt að skipta um starfsvett-
vang.
Starfsferillinn er orðinn langur og
Bergdís ætlar að hætta í sumar.
Hún leggur samt áherslu á að hún
ætli ekki að leggjast í kör. „Ég finn
mér alltaf eitthvað að gera, sjálf-
boðaliðastarf eða hvað sem er, auk
þess sem ég á sex barnabörn.“
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Bókari Bergdís Ósk Sigmarsdóttir hjá Verkfræðistofunni Vista hefur unnið hjá sömu fjölskyldunni í hálfa öld.
Hefur unnið hjá fjórum
ættliðum á hálfri öld
Frá Andrési til Þórarins, svo til Andrésar og loks til Þórarins