Skessuhorn - 04.03.2020, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 4. MARs 20206
Aðgerð lögreglu
HVALFJ: Viðamikil aðgerð
sérsveitar og almennrar lög-
reglu var í Hvalfjarðargöng-
unum síðastliðinn laugar-
dardagsmorgun. Þá voru alls
fimm manns, fjórir karlar og
ein kona, handtekin og úr-
skurðuð í gæsluvarðhald til 13.
mars í tengslum við rannsókn
Lögreglunnar á höfuðborgar-
svæðinu á fíkniefnamáli. Fólk-
ið var handtekið í og við Hval-
fjarðargöngin og hald var lagt
á talsvert magn af fíkniefn-
um. Umferð var stöðvuð um
göngin á meðan á aðgerðun-
um stóð. Fólkið er á þrítugs-,
fertugs- og fimmtugsaldri.
Þetta kom fram í tilkynningu
frá lögreglunni. -mm
Umferðarmál
áberandi
VESTURLAND: Einu sinni
sem oftar voru umferðarmál
áberandi í verkefnum Lög-
reglunnar á Vesturlandi í vik-
unni sem leið. Einn var sekt-
aður fyrir að nota ekki bílbelti
við aksturinn og enn fremur
kom í ljós við athugun lög-
reglu að vinstra afturdekk
bílsins var rennislétt. samtals
á viðkomandi yfir höfði sér 40
þús. króna sekt. Fjölmargir
voru sektaðir fyrir að aka ekki
með ljósabúnaðinn tendraðan,
einkum var mikið bókað um
ljósleysi í Borgarnesi, að sögn
lögreglu. Keyrt var á umferð-
armerki á vegamótum stykkis-
hólmsvegar og skógarstrand-
arvegar á sunnudaginn. Tölu-
vert mikið var um hraðakstur
í vikunni, eins og svo oft áður
og nokkrir voru sektaðir fyr-
ir að leggja bifreiðum sínum
á móti akstursstefnu. Ölvaður
maður átti í erfiðleikum með
að halda sér á fótunum fyrir
utan Dússabar í Borgarnesi í
vikunni og var honum komið
til síns heima.
-kgk
Stakk af á
hlaupum
BORGARBYGGÐ: Lögregla
stöðvaði för ökumanns í Borg-
arnesi við almennt umferðar-
eftirlit um áttaleytið á föstu-
dagskvöld. Þegar lögregla ætl-
aði að kanna með ástand öku-
manns tók hann á rás á hlaup-
um og hvarf lögreglu sjón-
um við Nettó. seinna kom í
ljós að maðurinn var í samfloti
með manni á öðrum bíl. sá var
stöðvaður á suðurleið af vega-
eftirlitsbíl lögreglu. Þá fannst
maðurinn úr fyrri bílnum í far-
angusgeymslu þess síðari. Var
hann handtekinn og við örygg-
isleit kom í ljós að hann hafði
hvítt efni í buxnavasa sínum. Er
hann grunaður um akstur undir
áhrifum ávana- og fíkniefna, en
neysla efna hefur verið staðfest
og vörslu og meðferð fíkniefna.
sömuleiðis fyrir að aka svipt-
ur ökuréttindum öðru sinni og
á hann yfir höfði sér háa fjár-
sekt vegna þess. Hinn ökumað-
urinn á yfir höfði sér sekt fyrir
að aka með farþega í farangurs-
geymslu bifreiðar. seinna, eftir
að fyrri ökumaðurinn hafði ver-
ið látinn laus úr haldi, var bókað
að hann hefði verið aðstoðaður
við að leita að bíllyklum sínum,
sem hann týndi á hlaupunum
þegar hann reyndi að flýja lag-
anna verði. -kgk
Velti við að
sinna barni
BORGARBYGGÐ: Ökumað-
ur missti stjórn á bifreið sinni
á sunnanverðri Holtavörðu-
heiði síðdegis á þriðjudaginn í
síðustu viku. Ökumaður var að
sinna barni sem sat í bílstól í aft-
ursæti þegar óhappið varð. Bíll-
inn lenti á vegriði og valt. Lög-
regla segir mildi að engin slys
hafi orðið á fólki. Ökumanni
og barni var ekið í Borgarnes
að eigin ósk. Bifreiðin er mikið
skemmd og þurfti að fjarlægja
hana með kranabíl. -kgk
Árekstur við
Bauluna
BORGARBYGGÐ: Árekst-
ur varð á gatnamótum Vestur-
landsvegar og Borgarfjarðar-
brautar laust eftir kl. 16:00 á
laugardaginn. Engin slys urðu
á fólki. Þegar lögregla kom á
staðinn var búið að fjarlægja
báða bílana af vettvangi og
leggja þeim við verslun Baul-
unnar. Ökumaður kvaðst hafa
ekið eftir Vesturlandsvegi á um
60 km/klst., þar sem aðstæður
hafi verið erfiðar, þegar bíl hafi
verið ekið í veg fyrir hann af
Borgarfjarðarbraut. Bílarnir eru
ekki mikið skemmdir, að sögn
lögreglu, en eitthvað þó. -kgk
Ljóslaus og
dópaður
AKRANES: Lögregla stöðv-
aði för ökumanns á Akranesi
að kvöldi sunnudags, grunaðan
um akstur undir áhrifum ávana-
og fíkniefna. Auk þess var notk-
un ljósabúnaðar bifreiðarinnar
ábótavant við aksturinn. strok-
próf sem framkvæmt var á vett-
vangi gaf jákvæða svörun á
neyslu og viðurkenndi maður-
inn að hafa neytt kókaíns fyrr
um daginn. Ökumaðurinn var
handtekinn, færður á lögreglu-
stöðina á Akranesi og gert að
gefa blóðsýni. -kgk
Bæjarráð Akraness samþykkti á
fundi sínum í síðustu viku ályktun
sem snýr að orkufrekum iðnaði hér
á landi og framgöngu Landsvirkj-
unar í samskiptum við stóriðjufyr-
irtæki. Þar segir í upphafi: „Í ágúst-
mánuði síðasta árs sendu sveitar-
stjórn Hvalfjarðarsveitar og bæjar-
stjórn Akraness sameiginlega frá sér
áskorun til ríkisstjórnar Íslands um
stefnubreytingu í málefnum orku-
sækins iðnaðar, þar sem vakin var
athygli ríkisstjórnarinnar á því að
ríkisfyrirtækið Landsvirkjun, hefði
í krafti yfirburðastöðu í raforkusölu
á stórnotendamarkaði knúið fram
mjög miklar hækkanir á raforku-
verði til orkusækins iðnaðar sem
leitt gæti til verulegs samdráttar í
starfsemi stórfyrirtækja á Grund-
artanga með tilheyrandi fækkun
starfa. Þar væri einvörðungu hugs-
að um að hámarka arðsemi Lands-
virkjunar en ekki að horft til heild-
arhagsmuna þjóðarinnar.“
Í kjölfar áskorunar sveitarfélag-
anna ákvað Þórdís Kolbrún Reyk-
fjörð Gylfadóttir iðnaðarráðherra
að láta kanna samkeppnishæfni
orkusækins iðnaðar fyrsta sinni á
Íslandi og færir bæjarráð ráðherra
þakkir fyrir það. „Nú hafa fleiri fyr-
irtæki í orkusæknum iðnaði stig-
ið fram og vakið athygli á þessari
stefnu Landsvirkjunar og alvar-
legum afleiðingum hennar fyrir
rekstur fyrirtækjanna og framtíð-
arfjárfestingar á Íslandi og lýst því
yfir að komið gæti til þess að fyrir-
tækin hætti starfsemi á Íslandi sem
hefði alvarlegar afleiðingar fyrir at-
vinnu fjölmargra starfsmanna og ís-
lenskt þjóðarbú. samtök iðnaðarins
hafa einnig vakið athygli á þeirri
stöðu sem uppi er.“ Þá segir í álykt-
un bæjarráðs að forstjóri Lands-
virkjunar hafi komið fram í öllum
helstu fjölmiðlum landsins og varið
stefnu Landsvirkjunar með óvenju-
mikilli hörku. „Bæjarráð harmar
að forstjórinn skuli í málflutningi
sínum reyna að tortryggja erlent
eignarhald orkusækinna iðnfyrir-
tækja sem og innri viðskipti þeirra
og reyni að mála þá mynd að hags-
munir fyrirtækjanna og hagsmuna-
samtaka þeirra fari ekki saman með
hagsmunum íslensku þjóðarinnar.“
Að lokum segir í ályktun bæjar-
ráðs Akraness: „stjórn Landsvirkj-
unar ber alla ábyrgð á stefnu fyrir-
tækisins og framgöngu forstjórans
og því kallar bæjarráð eftir því að
stjórnarmenn Landsvirkjunar, og
þá sérstaklega stjórnarformaðurinn
Jónas Þór Guðmundsson, stígi fram
úr skugga forstjórans og útskýri
fyrir íslensku þjóðinni hvert stjórn
Landsvirkjunar sæki umboð sitt til
að ganga fram með þessum hætti
ásamt því að skýra opinberlega frá
því hver stefna Landsvirkjunar er í
málefnum orkusækins iðnaðar og
hvernig hún samræmist leiðarljós-
um fyrirhugaðrar orkustefnu um:
Að hámarka samfélagslegan ávinn-
ing af nýtingu orku, styðja við at-
vinnustefnu í samspili við lykilat-
vinnugreinar og styðja við byggða-
stefnu og jákvæða byggðaþróun til
lengri tíma. Einnig kallar bæjarráð
eftir aðkomu samkeppniseftirlits-
ins til að kanna og meta samkeppn-
isumhverfi í sölu á raforku til orku-
sækins iðnaðar og skýra þær leik-
reglur sem þar gilda.“
mm
Vilja vita hvort stjórn Landsvirkjunar
styðji aðgerðir forstjórans
Gunnar Þorgeirsson garðyrkju-
bóndi í Ártanga í Grímsnesi var í
gær kosinn nýr formaður stjórnar
Bændasamtaka Íslands. Í kosningu á
búnaðarþingi fékk hann 29 atkvæði
á móti 21 atkvæði sem sitjandi for-
maður, Guðrún s. Tryggvadóttir
hlaut. Tveir skiluðu auðu. Í kjölfar
formannskjörs var kosið til stjórnar
BÍ. Eftirtaldir hlutu kosningu í
stjórn: Oddný steina Valsdóttir
Butru í Fljótshlíð, Halldóra Krist-
ín Hauksdóttir Græneggjum ehf. í
svalbarðsstrandarhreppi, Halla Ei-
ríksdóttir Hákonarstöðum á Jökul-
dal og Hermann Ingi Gunnarssom
Klauf í Eyjafirði. Þess má geta að
þrír fyrrverandi stjórnarmenn, þau
Guðrún Lárusdóttir, Einar Ófeigur
Björnsson og Eiríkur Blöndal gáfu
ekki kost á sér til áframhaldandi
stjórnarsetu. Aðrir stjórnarmenn
hlutu ekki endurkosningu og tekur
því ný stjórn við. Þess má geta að
slagorð búnaðarþings var: „stönd-
um þétt saman!“
Varamenn í stjórn BÍ verða: Guð-
mundur svavarsson, Gunnar Kr.
Eiríksson, Jóna Björg Hlöðvers-
dótttir, Ingvar Björnsson og Guð-
finna Harpa Árnadóttir. mm
Ný stjórn Bændasamtaka Íslands. Halla Eiríksdóttir, Gunnar Þorgeirsson,
Hermann Ingi Gunnarsson, Oddný Steina Valsdóttir og Halldóra Kristín Hauks-
dóttir. Ljósm. Hörður Kristjánsson.
Bændahallarbylting