Skessuhorn


Skessuhorn - 04.03.2020, Blaðsíða 23

Skessuhorn - 04.03.2020, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR 4. MARs 2020 23 SK ES SU H O R N 2 02 0 Bæjarstjórnarfundur 1309. fundur bæjarstjórnar Akraness verður haldinn í bæjar- þingsalnum að Stillholti 16-18, þriðjudaginn 10. mars kl. 17:00. Fundirnir eru öllum opnir og eru bæjarbúar hvattir til að mæta og kynna sér bæjarmálin. Vakin er athygli á því að hægt er að hlusta á fundinn á FM 95,0 og horfa á beina útsendingu á facebooksíðu Akraneskaupstaðar. Bæjarmálafundir flokkanna verða sem hér segir: Framsókn og frjálsir á Garðavöllum, • mánudaginn 9. mars kl. 20:00 Samfylkingin í Stjórnsýsluhúsinu, 1. hæð, Stillholti 16-18, • mánudaginn 9. mars kl. 20:00 Sjálfstæðisflokkurinn að Kirkjubraut 8, • laugardaginn 7. mars kl. 10: SK ES SU H O R N 2 02 0 Laus störf hjá Akraneskaupstað Eftirfarandi störf eru laus til umsóknar: Velferðar- og mannréttindasvið Störf í stuðningsþjónustu (liðveislu)• Starf í stuðningsþjónustu (heimaþjónusta)• Sumarstörf: Störf flokkstjóra við vinnuskólann, fyrir 20 ára og eldri• Störf við rekstur og umhirðu á opnum svæðum, • fyrir 18 ára og eldri Sumarafleysing, karl og kona, í Íþróttahúsinu • á Jaðarsbökkum Sumarafleysing í Guðlaugu á Langasandi• Nánari upplýsingar ásamt umsóknareyðublaði má finna á www.akranes.is/lausstorf T ó n l e i k a r K arlakórar nir Svanir, Söngbræður og Þrestir halda saman tónleik a í Tónbergi 14. mars kl. 17:00. Miðaverð 2.500 kr, enginn posi. Knattspyrnudómarafélag Akraness blæs til firmamóts í knatt- spyrnu laugardaginn 24. mars næstkomandi. Leikið verður í Akraneshöllinni og hefst mótið kl. 10:30. Fyrirkomulagið er þannig að leiknar verða 1x12 mínútna leikir, fimm leikmenn í hvoru liði inni á vellinum í einu, þar af einn markmaður, en að sjálfsögðu má hvert lið vera skipað fleirum. skráning fer fram í gegnum netfangið ivarorri@gmail.com. Knattspyrnudómarafélagið mun annast dómgæslu á mótinu. Mótið er öllum opið og þátttökugjald er kr. 3.000 á hvern leikmann. sigurlið mótsins hlýtur að launum vegleg verðlaun. kgk Fiskbúðin skagafiskur var form- lega opnuð klukkan ellefu í gær- morgun. Margir lögðu leið sína í búðina við opnun og strax var nóg að gera. Í borðinu var mik- ið úrval af bæði ferskum fiski og fiskréttum auk þess sem hægt var að kaupa tilbúið meðlæti. sjómaðurinn Kristófer Bjarna- son var fyrsti viðskiptavinurinn í skagafiski. arg sveitakeppni Bridgefélags Borg- arfjarðar lauk á mánudagskvöld- ið með þátttöku sex sveita. Mikil spenna var við lok mótsins en svo fór að einungis munaði 1,5 stigi á 1. og 3. sæti. sigurvegarar urðu sveit- in Bannað börnum en hana skipuðu þeir Jóhann Oddsson, Kristján Ax- elsson, Viktor Björnsson, Magnús Magnússon og Guðmundur stein- ar Jóhannsson. Í öðru sæti var sveit- in Blessað barnalán, en hana skip- uðu Helga Jónsdóttir, sveinbjörn Eyjólfsson, Logi sigurðsson, Heið- ar Árni Baldursson og Guðmund- ur Ólafsson, sem lánsmaður síð- asta kvöldið. Þriðja sætið hrepptu Blái hnötturinn en sveitina skipuðu þeir Einar Guðmundsson, Bjarni Guðmundsson, Lárus Pétursson og Eyjólfur Kristinn Örnólfsson, en þeir síðasttöldu urðu sömuleiðis efstir í Bötlerútreikningnum. Næsta mánudagskvöld verður ár- legur einmenningur félagsins spil- aður. ij Fiskbúðin Skagafiskur opnuð Kristófer Bjarnason var fyrsti viðskiptavinur Skagafisks. Úrvalið í borðinu við opnun. Hjónin Pétur Ingason og Jónheiður Gunnbjörnsdóttir opnuðu Skagafisk á Akranesi. Á milli þeirra á myndinn er sonur þeirra, Björgvin Ingi. Sigursveitin Bannað börnum. F.v. Jóhann, Viktor, Magnús og Guðmundur Steinar. Auk þess spilaði Kristján Axelsson með sveitinni. Ljósm. ij. Sveitin Bannað börnum bar sigur úr býtum Firmamót framundan í Akraneshöll

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.