Skessuhorn


Skessuhorn - 04.03.2020, Blaðsíða 8

Skessuhorn - 04.03.2020, Blaðsíða 8
MIÐVIKUDAGUR 4. MARs 20208 Fauk út af SNÆFELLSBÆR: Bíll fauk út af veginum milli Ólafsvíkur og Grundarfjarð- ar á mánudagskvöld. Öku- maður var á um 50 km hraða í hvössum vindi þegar hviða kom á bílinn sem skautaði við það út af veginum, rakst á skilti og endaði í skafli þar sem hann festist. Ungbarn var með í för í bílnum og var haft samband við Neyðar- línu. Engin slys urðu á fólki en skilja þurfti bílinn eftir og koma fólkinu heim. -kgk Innbrot í Hólminum STYKKISH: Á mánudags- morgun var tilkynnt um mann sem væri að brjót- ast inn í húsnæði sæferða í stykkishólmi. Maður- inn var handtekinn, flutt- ur á lögreglustöð og vistað- ur í fangaklefa. Játning ligg- ur fyrir, að sögn lögreglu. Maðurinn vísaði á tösku með munum sem höfðu ver- ið teknir frá sæferðum og sömuleiðis úr vigtarskúrnum og var ætlað þýfið haldlagt. Lögregla kveðst einnig hafa upplýsingar um að maður- inn hafi brotið rúðu í hóp- ferðabifreið í stykkishólmi, farið inn í hana og tæmt þar úr slökkvitæki. Þá hafði skip- stjóri Breiðafjarðarferjunar Baldurs tilkynnt lögreglu að farið hefði verið inn í skip- ið og tæmt úr skökkvitæki á bíladekki ferjunnar. Málið er til rannsóknar. Aðfararnótt þriðjudags var síðan tilkynnt um innbrot í hús við Hafn- argötu í stykkishólmi. Þegar lögregla kom á vettvang var einnig búið að brjóta rúðu í útidyrahurð ráðhússins og sást maður þar í anddyrinu með áhald í hönd. Hann var afvopnaður og færður á lög- reglustöð. Lögregla vill ekki tjá sig um það að svo stöddu hvort þessi atvik tengjast at- burðum næturinnar á undan. -kgk Fastir í snjó SNÆFELLSNES: Tvær rútur festust í snjó á Útnes- vegi um tvöleytið síðastlið- inn fimmtudag, með samtals 54 ferðamenn innanborðs. Ferðamenn óskuðu eftir að- stoð laust eftir kl. 1:00 að- fararnótt þriðjudags eftir að hafa fest bifreið sína á snæ- fellsnesvegi. sátu þeir fimm saman í bílnum, fastir á ak- brautinni. Bíllinn var í gangi og ekki náðist í bílaleiguna. Haft var samband við fyrir- tæki á snæfellsnesi sem fór á vettvang og kom fólkinu til aðstoðar. Um hálftíma áður voru ferðamenn aðstoðaðir sem festu sig á Fróðárheiði. Að sögn lögreglu var heiðin ófær þegar þarna var kom- ið við sögu, en það virðist ekki hafa skilað sér til þess- ara vegfarenda. Á mánudag lentu vegfarendur í vand- ræðum við Kirkjufell. Fólk komst ekki inn á bílastæðið og bílum hafði verið lagt á þjóðveginn. Tilkynnt var um þetta um 10:00 að morgni, en þá var ófært inn á bíla- stæðið. Haft var samband við Vegagerðina og óskað eftir mokstri. -kgk Mottumarssokk- ar komnir í sölu LANDIÐ: Mottumars er ár- legt átaksverkefni Krabba- meinsfélagsins tileinkað bar- áttunni gegn krabbamein- um hjá körlum. „Mottum- ars er í senn vitundarvakn- ing um krabbamein hjá körl- um og fjáröflun fyrir félagið. Í ár leggjum við áherslu á gildi hreyfingar sem forvarnar gegn krabbameinum. Rannsókn- ir sýna að reglubundin hreyf- ing dregur úr líkum á krabba- meinum auk þess sem hreyfing er til góðs fyrir fólk sem hefur greinst með krabbamein. Með heilsusamlegum lífsstíl er hægt að koma í veg fyrir fjóra af hverjum tíu krabbameinum. Krabbameinsfélagið vinnur að forvörnum gegn krabbamein- um og hefur það að markmiði að fækka þeim sem grein- ast með krabbamein. starf- semi félagsins byggir alfar- ið á styrkjum einstaklinga og fyrirtækja og með kaupum á Mottumarssokkum leggur fólk stórt lóð á vogarskálarn- ar. Kæru landsmenn, upp með sokkana,“ segir í tilkynningu frá Krabbameinsfélaginu. -mm Aflatölur fyrir Vesturland 22.-28. febrúar Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu Akranes: 3 bátar. Heildarlöndun: 43.307 kg. Mestur afli: Eskey ÓF: 31.586 kg í þremur róðrum. Arnarstapi: 1 bátur. Heildarlöndun: 29.776 kg. Mestur afli: særif sH: 29.776 kg í tveimur löndunum. Grundarfjörður: 8 bátar. Heildarlöndun: 568.294 kg. Mestur afli: Kap II VE: 127.935 kg í þremur róðrum. Ólafsvík: 18 bátar. Heildarlöndun: 720.850 kg. Mestur afli: Bárður sH: 154.982 kg í sjö löndunum. Rif: 13 bátar. Heildarlöndun: 632.296 kg. Mestur afli: Rifsnes sH: 119.531 kg í tveimur róðrum. Stykkishólmur: 5 bátar. Heildarlöndun: 181.905 kg. Mestur afli: Þórsnes sH: 170.024 kg í tveimur löndun- um. Topp fimm landanir á tímabilinu: 1. Tjaldur SH - RIF: 95.854 kg. 25. febrúar. 2. Þórsnes SH - STY: 88.277 kg. 23. febrúar. 3. Sigurborg SH - GRU: 83.955 kg. 24. febrúar. 4. Þórsnes SH - STY: 81.747 kg. 26. febrúar. 5. Rifsnes SH - RIF: 77.410 kg. 24. febrúar. -kgk Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála kvað upp þann úr- skurð 21. febrúar síðastliðinn að fella úr gildi ákvörðun bygging- arfulltrúans í Borgarbyggð frá 28. maí 2019 um að veita byggingar- leyfi fyrir legsteinaskála að Bæj- argili í landi Húsafells. Mál það á sér töluvert langa sögu og málsat- vik lesendum skessuhorns kunn. Vegna þessarar niðurstöðu úr- skurðarnefndarinnar nú hyggst Borgarbyggð bregðast við með því að leggja til við skipulags- og byggingarnefnd sveitarfélagsins að farið verði í aðalskipulagsbreyt- ingu á svæðinu. Þeirri vinnu verð- ur flýtt sem kostur er til að sátt ná- ist til frambúðar um þá starfsemi sem í Húsafelli er stunduð. „Ljóst er að úrskurðarnefnd um- hverfis- og auðlindamála komst að þeirri niðurstöðu að legsteina- skáli geti ekki risið á lóð eða jörð sem flokkast undir landbúnaðar- nýtingu samkvæmt gildandi aðal- skipulagi fyrir svæðið. Á Húsa- fellstorfunni í dag er ekki mikið um byggingar sem nýttar eru til landbúnaðarnota, en ferðaþjón- usta og menningartengd starf- semi eru hins vegar fyrirferðamikil á svæðinu og mikilvægt að skipu- lag heimili slíkt,“ sagði Lilja Björg Ágústsdóttir starfandi sveitarstjóra í samtali við skessuhorn í síðustu viku. Hún segir að haft hafi verið samband við hlutaðeigandi máls- aðila í Húsafelli, þeir boðaðir til fundar svo hægt verði að fá fram þeirra sjónarmið, áður en málið fer til frekari meðferðar innan stjórn- sýslunnar. „Það er allra hagur að hægt verði að vinna málin áfram hratt og vel og ná fram samkomu- lagi og sátt um skipulag á svæðinu í heild sinni,“ segir Lilja Björg. mm Björn Bjarki Þorsteinsson, fram- kvæmdastjóri Brákarhlíðar í Borg- arnesi, hefur sent heilbrigðisráð- herra og þingmönnum kjördæm- isins minnisblað um stöðu biðlista dvalar- og hjúkrunarheimila í heil- brigðisumdæmi Vesturlandis. Þar ítrekar hann, ásamt Jóni G. Guð- björnssyni formanni stjórnar Brák- arhlíðar, þá ósk stjórnenda Brák- arhlíðar að þau biðrými sem falla að óbreyttu út 1. apríl næstkom- andi verði gerð varanleg. „Enn fremur að tekið verði boði okk- ar um að útbúa tvö viðbótarrými, hjúkrunarrými, í Brákarhlíð í van- nýttum opnum rýmum og nýting opinberra fjármuna þar með bætt í þágu brýnnar þjóðarþarfar,“ segir í minnisblaðinu. Biðlistinn á Brákarhlíð taldi sam- tals 17 manns 12. febrúar síðastlið- inn og í minnisblaðinu segir að það sé um 4,2% af íbúafjölda á starfs- svæði heimilisins, þó heimilisfólk komi vissulega víðar að. „Mörgum er tíðrætt um langa biðlista höfuð- borgarsvæðisins en skv. upplýsing- um er hann þó töluvert fyrir inn- an 2% af heildaríbúafjölda höfuð- borgarsvæðisins. Rétt er einnig að benda á að þjónustustig varðandi t.d. heimahjúkrun er mun hærra á höfuðborgarsvæðinu heldur en það er á starfssvæði Brákarhlíðar, ekki er um þjónustu að ræða heim fyr- ir utan dagvinnutíma eða um helg- ar né á „rauðum“ dögum nema um alger bráðatilvik sé að ræða,“ segir í minnisblaðinu. „Við ósk- um liðsinnis heilbrigðisráðherra og alþingismanna NV-kjördæm- is í þá veru að þessi tillaga okkar verði rædd af alvöru og helst af- greidd sem allra, allra fyrst þann- ig að óvissunni um þessi tvö bið- rými verði eytt hið snarasta sem og að framkvæmdir geti hafist við hin tvö rýmin þannig að með haustinu verði hægt að taka þau í notkun,“ segir í minnisblaðinu sem Bjarki og Jón skrifa undir. kgk Hjúkrunar- og dvalarheimilið Brákarhlíð í Borgarnesi. Ljósm. úr safni. Vilja að biðrými verði gerð varanleg Einnig lagt til að útbúin verði tvö hjúkrunarrými til viðbótar Ráðist verður í gerð nýs aðalskipulags fyrir Húsafell

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.