Skessuhorn - 04.03.2020, Blaðsíða 18
MIÐVIKUDAGUR 4. MARs 202018
„Við höfum svo sem alveg verið að
halda hálfum dampi í vetur,“ segir
Þorsteinn Bergsson, framkvæmda-
stjóri Minjaverndar, spurður hvern-
ig framkvæmdir í Ólafsdal gangi.
Veðrið hefur sett strik í reikninginn
í framkvæmdunum við Gilsfjörð
eins og víða annars staðar á landinu
í vetur. Að framkvæmdum hafa að
mestu komið heimamenn úr Döl-
um og frá stykkishólmi.
„Við vorum þarna með mann-
skap í veðrinu umtalaða í desemb-
er en urðum frá að hverfa því Kári
fór þannig með okkur að allt varð
rafmagnslaust, eins og víða,“ segir
hann. Lítið var um framkvæmd-
ir í Ólafsdal í upphafi árs en farn-
ar voru tvær ferðir í febrúar. „Við
erum búin að róa okkar aðeins
núna fram í apríl en þá verður fán-
inn dreginn að húni á ný og hald-
ið af stað,“ segir Þorsteinn og bæt-
ir því við að frá lokum síðasta árs
hefur verið unnið að fjórum verk-
þáttum. „Unnið hefur verið að við-
gerð á gamla skólahúsinu að utan,
eina húsinu sem stóð uppi af þeim
hátt í 20 húsum sem Torfi skildi þar
eftir sig. síðan höfum við verið að
vinna við mjólkurhúsið og fjósið,
endurhlaða það og lagfæra og kom
yfir það þaki. Til viðbótar höfum
við sett upp geymsluskemmu sem
nýtist núna í framkvæmdunum og
í rekstri á svæðinu í framhaldinu.
skemman verður jörðuð getum við
sagt, því þetta er nýbygging sem
við viljum ekki hafa mjög áberandi
í þessu gamla umhverfi sem þarna
er,“ segir Þorsteinn.
Eins og skessuhorn greindi frá
síðasta haust bar leit að heitu vatni í
Ólafsdal árangur og segir Þorsteinn
það koma til með að hafa mikil áhrif
á uppbyggingu á svæðinu í framtíð-
inni. Þegar framkvæmdir komast
að fullu í gang á ný verða verkefni
sem þegar eru hafin kláruð auk þess
sem ráðist verður í næstu áfanga
verksins, sem eru lagfæringar á
skólahúsininu að innan og að reisa
viðbyggingar. „Nútíminn heimtar
flóttaleiðir og greiðari samskipta-
leiðir milli hæða, heldur en fortíð-
in hafði uppá að bjóða. Við tökum
húsið því töluvert mikið í gegn en
reynum samt sem áður að halda
öllum karaktereinkennum þess
vel til haga. En það er mikilvægt
að huga vel að eldvörnum, hljóð-
vist og öllum öðrum nútímaþáttum
sem þarf fyrir þann rekstur sem við
erum að horfa á til framtíðar,“ seg-
ir Þorsteinn. Aðspurður segir hann
að stefnt sé að því að rekstur geti
hafist á svæðinu í sumarbyrjun að
rúmu ári liðnu. „Hvenær verkinu
lýkur nákvæmlega á eftir að koma í
ljós en við erum bjartsýn að göml-
um sið og gælum við að geta haldið
þessari stefnu okkar, en það þarf þó
allt að ganga mjög vel til að svo geti
orðið,“ segir Þorsteinn Bergsson að
endingu. arg/ Ljósm. sá
Veðrið hefur haft áhrif á framkvæmdir í Ólafsdal í vetur
Framkvæmdir standa yfir í Ólafsdal.
Aðeins sest niður með kaffibolla milli þess sem unnið er.
Hér er verið að steypa í kringum sökkulunn á Fjósinu í Ólafsdal í október.
Fjósið í Ólafsdal. Veðrið hefur aðeins verið erfitt fyrir framkvæmdir á svæðinu.
Horft að gaflinum að fjósinu.