Skessuhorn - 04.03.2020, Síða 22
MIÐVIKUDAGUR 4. MARs 202022
Leiklistarklúbbur Nemendafélags
Fjölbrautaskóla Vesturlands á
Akranesi vinnur nú að uppsetningu
á leikritinu Dýrin í Hálsaskógi.
Æfingar eru nú í fullum gangi en
frumsýning verður sunnudaginn
15. mars næstkomandi í Bíóhöll-
inni á Akranesi. Að sögn Garðars
snæs Bragasonar, formanns leik-
listarklúbbsins, ganga æfingar mjög
vel. „Þetta er hörku leikhópur sem
kemur að þessu og þetta er allt að
smella. Við erum bara að fínstilla
verkið núna og leggja lokahönd á
þetta. Leikmyndin er næstum til-
búin en við erum með frekar ein-
falda leikmynd og leggjum áherlu á
mikið ljósashow,“ segir Garðar.
Flestir þekkja leikritið Dýrin í
Hálsaskógi og hafa margir séð aðr-
ar uppsetningar af sýningunni. Að-
spurður segir Garðar þessa sýningu
nokkuð hefðbundna en tónlistin er
nokkuð frábrugðin. Tónlistin spilar
mikilvægan part af sýningunni en í
þessari uppsetningu verður ekki
sinfóníutónlist eins og oft er. „Við
verðum með gítar, bassa, trommur
og reyndar líka þverflautu,“ seg-
ir Garðar. Leikstjórn er í höndum
Gunnars Björns Guðmundssonar,
en þetta er þriðja sýningin í röð á
vegum Leiklistarklúbbs NFFA sem
hann stýrir. Eðvarð Lárusson, kenn-
ari við Tónlistarskóla Akraness, sér
um að stýra tónlistinni í samvinnu
við Elfu Margréti sem sér um söng-
inn. Aðspurður segir Garðar sýn-
inguna í ár vera fjölskyldusýningu
sem er sérstaklega miðuð fyrir börn
og verða bæði sýningar á kvöldin
og að degi til.
Búið er að skipuleggja fjórar sýn-
ingar en þeim verður fjölgað ef eft-
irspurn verður mikil. Miðasala mun
fljótlega fara af stað og verður hægt
að kaupa miða á Tix.is. arg
Björgvin Hólm Hagalínsson á
Akranesi sá í síðasta skessuhorni
mynd af Bjarna skúla Ketilssyni
myndlistarmanni, þar sem hann
var staddur við opnun mynlist-
arsýningar sinnar í gamla Iðn-
skólanum á Akranesi. Baski mál-
aði veisluborð með öllum helstu
íslensku hnallþórunum og stillti
upp fyrir framan verkið borði
með samskonar hnallþórum og
kallaði verkið; „Fyrirgefið þetta
lítilræði,“ í orðastað gömlu hús-
mæðranna. Björgvin orti af því
tilefni:
Hnallþóruborðið hans Basta er lyst,
bragðgott og holt fyrir landann.
Uppi á veggnum er lifandi list,
ljúf fyrir sálina og andann.
sigurður Höskuldsson bauð á
stofutónleika á heimili sínu í Ólafs-
vík um síðustu helgi. Þar bauðst
gestum og gangandi að koma við
og hlýða á ljúfa tóna, falleg lög og
ljóð um fólk, umhverfi og tilfinn-
ingar. Auk sigga Hösk, eins og
hann er venjulega kallaður, sungu
þau Aðalsteinn Kristófersson sem
einnig spilaði á gítar og Olga Guð-
rún Gunnarsdóttir lög sigga sem
og annarra. sveinn Þór Elínbergs-
son sá svo um að halda taktinum
réttum. Vel var mætt á þessa ljúfu
og skemmtilegu tónleika og fullt út
úr dyrum á heimili sigga. þa
Fyrsta keppniskvöldið í Vestur-
landsdeildinni í hestaíþróttum fór
fram í Faxaborg í Borgarnesi á
föstudaginn þegar keppt var í fjór-
gangi. Í deildinni keppa sex lið sem
hvert hefur á að skipa fimm knöp-
um en þrír knapar taka þátt í hverri
keppnisgrein. Keppt er bæði til A-
úrslita og B-úrslita en eins og tíðk-
ast nú í mörgum deildum þá ríður
sigurvegari B-úrslita ekki til A-úr-
slita. Flýtir það fyrirkomulag við
framkvæmd mótsins.
sigurvegari B-úrslita var sigurð-
ur Rúnar Pálsson á Bessa frá Húsa-
vík með einkunnina 6,63. Þær Ið-
unn svandóttir á sigurrós frá söð-
ulsholti og Hrefna María Ómars-
dóttir urðu jafnar í 7.-8. sæti með
einkunnina 6,47. Það var hins vegar
Þórdís Erla Gunnarsdóttir sem stóð
uppi sem sigurvegari að loknum
A-úrslitum með einkunnina 7,17
en þetta var þeirra fyrsta keppni í
fjórgangi innandyra. siguroddur
Pétursson varð annar með 7,03 og
í þriðja sæti Randi Holaker með
6,83 í einkunn. Jafnir í 4.-5. sætinu
urðu þeir Guðmar Þór Pétursson
og Haukur Bjarnason.
Það voru stelpurnar í slippfélag-
inu sem voru stigahæsta lið kvölds-
ins en úr því liði komust allir knap-
ar í úrslit; þær Þórdís Erla, Hrefna
María og Iðunn silja. Næsta mót í
Vesturlandsdeildinni er 13. mars en
þá verður keppt í slaktaumatölti.
A-úrslit
1. Þórdís Erla Gunnarsdótt-
ir & Fengur frá Auðsholtshjáleigu;
7,17
2. siguroddur Pétursson &
Eyja frá Hrísdal; 7,03
3. Randi Holaker & Þytur frá
skáney; 6,83
4. Guðmar Þór Pétursson &
Ástarpungur frá staðarhúsum: 6,67
5. Haukur Bjarnason & Ísar
frá skáney; 6,67.
B-úrslit
1. sigurður R. Pálsson &
Bessi frá Húsavík; 6,63
2. Hrefna María Ómarsdóttir
& Eva frá Álfhólum; 6,47
3. Iðunn Lilja svansdóttir &
sigurrós frá söðulsholti; 6,47
4. Leifur George Gunnarsson
& sveðja frá skipaskaga; 6,40
5. Linda Rún Pétursdótttir &
Baltasar frá Korpu; 6,30
6. Berglind Ragnarsdóttir &
smyrill frá Vorsabæ II; 6,30.
mm/iss
Frá æfingu í byrjun
febrúar.
Ljósm. aðsend.
Dýrin í Hálsaskógi á
leið í Bíóhöllina
Siggi Hösk bauð til
stofutónleika
Sendir Baska kveðju
Stelpurnar í Slippfélaginu hæstar eftir fyrsta kvöld Vesturlandsdeildarinnar
Þórdís Erla Gunnarsdóttir og Fengur frá Auðholtshjáleigu urðu hæst í A úrslitum
með einkunnina 7,17.
Stelpurnar í Slippfélaginu voru stigahæsta lið kvöldsins.