Skessuhorn - 04.03.2020, Page 24
MIÐVIKUDAGUR 4. MARs 202024
Fasteignamiðlun Vesturlands opn-
aði á nýjum stað 17. janúar síð-
astliðinn. skrifstofur fyrirtækisins
voru þó ekki færðar um langan veg,
því heimilisfangið er enn það sama.
FastVest var flutt úr enda Kirkju-
brautar 40 í rýmið fyrir miðju húsi.
Gengið er beint inn á nýju skrifstof-
una frá Kirkjubraut. skessuhorn leit
við á hjá FastVest á mánudagsmorg-
un, fékk að litast um á nýju skrif-
stofunni og ræddi við mæðgurn-
ar soffíu sóleyju Magnúsdóttur og
Ragnheiði Rún Gísladóttur og stef-
án Bjarka Ólafsson um flutningana
og fasteignamarkaðinn á Akranesi
almennt.
Breyttu húsnæðinu
soffía segir að þau uni sér vel í nýju
og stærra rými. „Við fórum úr 93
fermetrum í 230 og finnst þetta bara
alveg æðislegt. Við fluttum inn 17.
janúar eftir að hafa tekið svolítinn
tíma í að taka húsið í gegn,“ segir
soffía, enda hefur það breyst tölu-
vert frá því sem áður var. „Hér voru
bara tvær skrifstofur,“ segir stefán.
„Hitt var bara salur,“ segir soffía.
„Við bjuggum til þrjár skrifstofur í
viðbót og fundaherbergi úr salnum,
auk móttöku í opnu rými og svo er
auðvitað kaffistofa og salerni,“ bæt-
ir Ragnheiður við. „Nú þegar hefur
rótgróin lögmannsstofa hafið störf
hjá okkur og eigum þá eftir að koma
tveimur skrifstofum í leigu,“ segja
þær soffía og Ragnheiður. „Við vilj-
um endilega fá fleiri fyrirtæki inn til
okkar og styðja þannig við rekstur
á Akranesi,“ segir soffía. „Við erum
nýlega byrjuð í samstarfi við Blik
stúdíó, sem hefur nýverið opnað
stofu hér á Akranesi. Þau koma til
með að annast ljósmyndun á eign-
um sem eru til sölu hjá okkur. Við
viljum kaupa þá þjónustu sem við
þurfum á að halda í heimabyggð ef
þess er nokkur kostur,“ bætir Ragn-
heiður við.
Fínt að breyta til
En hvernig kom það til að þau
ákváðu yfirleitt að flytja sig um set á
sama heimilisfanginu? Ragnheiður
hlær og kveðst eiga sök á því. „Það
er mér að kenna,“ segir Ragnheið-
ur. „Mér fannst við orðin svolítið
ein þarna úti í enda og vildi fjölga
á vinnustaðnum. Það var líka kom-
inn tíma á að fara að taka í gegn og
okkur fannst þá bara tilvalið að taka
þetta skref,“ segir hún. „Er ekki
fínt að breyta til eftir 25 ár á sama
stað?“ spyr soffía. „Við erum sýni-
legri núna en áður og hér er betri
aðstaða,“ bætir hún við. „Hér höf-
um við opið frá kl. 9:30 til 17 og
fólk getur alltaf litið inn, það er allt-
af einhver á staðnum en slíkt er alls
ekki algilt á öðrum fasteignasöl-
um,“ segir stefán. „Fólk vill mæta
á staðinn og ræða málin, gefa sér
tíma og fær ráðgjöf. Ég vann á fast-
eignasölum í Reykjavík í fimm ár og
þangað kom nánast enginn. Hérna
er miklu meira innlit, fólk mætir og
fær ráðgjöf,“ segir hann. „Það er
um margt að velja hjá bæði bönkum
og lífeyrissjóðum varðandi lánamál.
Við bendum á kosti og galla og svo
bara velur fólk sjálft. Við viljum að
fólk taki upplýsta ákvörðun,“ segir
soffía.
Markaðurinn alltaf
að breytast
Undanfarið hefur fasteignasölum á
Akranesi líka fjölgað. Þær eru orðn-
ar fimm í dag en lengi vel voru þær
ekki nema tvær talsins, FastVest og
Hákot. samkeppnin er þar af leið-
andi meiri og þá segir soffía kost að
vera sýnilegri en áður. „Við viljum
taka vel á móti okkar fólki og halda
áfram að veita góða þjónustu,“ segir
soffía. Fjölgun fasteignasala á Akra-
nesi tengist auðvitað breytingum á
fasteignamarkaði. Þau hjá Fast-
Vest segja að markaðurinn sé allt-
af að breytast og hafi tekið umtals-
verðum breytingum bara á síðustu
árum. „Verð hefur hækkað mikið
hér, eins og flestir vita. Þannig að
það er ekki lengur hægt að tala um
sama verðmun hér og á höfuðborg-
arsvæðinu og var bara fyrir örfáum
árum síðan,“ segir soffía. „Það er
mikið af nýbyggingum að koma inn
á markaðinn núna og á sama tíma
kemur töluvert inn af eldri eign-
um, sem þeir sem eru að færa sig í
nýtt húsnæði eru að selja. Framboð
á eignum hefur því aukist töluvert
og spurning hvernig hlutirnir þró-
ast,“ bætir soffía við.
Aðlaðandi bær
Það er þekkt stef í tengslum við fast-
eignamarkaðinn á Akranesi að fólk
hafi flust til bæjarins frá höfuðborg-
arsvæðinu. slíkt hefur verið nokkuð
áberandi síðustu ár og þau soffía,
Ragnheiður og stefán hafa orð á því
að reynsla fólks af slíkum flutning-
um sé almennt góð. Hún hafi jafnvel
orðið til þess að fleiri, tengdir þeim
sem þegar hafa flutt, hafi ákveðið að
setjast að á Akranesi. „Ég veit um
fólk sem kom hingað úr Reykjavík,
án þess að eiga tengingu við bæinn
og nú tíu árum síðar eru mamma
þeirra og pabbi komin og systkinin
líka. Eftir að þetta fólk flutti fylgdi
nánast öll fjölskyldan á eftir,“ seg-
ir Ragnheiður. „Fólk sem kemur
hingað með börn og fjölskyldu á
vini og segir þeim sína sögu af því
hvað bærinn er í raun og veru að-
laðandi,“ bætir stefán við. „Við vor-
um einmitt að ræða það um daginn
hvað hér er margt í boði, til dæmis
í íþróttastarfi fyrir börn. Við vorum
eiginlega fljótari að telja upp hvað
væri ekki hérna,“ segir soffía.
Nægt framboð af lóðum
soffía segir bæjaryfirvöldum einn-
ig til hróss að hafa séð til þess að
nægt framboð sé á lóðum á Akra-
nesi. „Og þetta nýjasta útspil, hús-
næðisáætlunin sem var lögð fram
fyrir helgi, var gott að fá,“ segir
hún. „Grunnskipulagið hjá bæjar-
yfirvöldum hefur líka verið nokk-
uð gott í gegnum tíðina. Til dæm-
is sjáum við að íþróttasvæðið á Jað-
arsbökkum, sem er helsta íþrótta-
svæði bæjarins, er nokkuð miðsvæð-
is. sama gildir um verslunar- og
þjónustukjarnann við Dalbraut 1,
hann er miðsvæðis. Þannig að bær-
inn hefur staðið sig ágætlega í því
að staðsetja þjónustueiningarnar til
lengri tíma litið,“ segir stefán. „Við
sjáum líka að bærinn er ekki að vaxa
í eina áttina heldur er hann að verða
meira hringlaga,“ segir stefán.
Margt að bjóða
En fátt er svo frábært að ekki megi
bæta. Eitt þykir soffíu vanta á
Akranesi. „Það er t.d. fleiri búsetu-
úrræði fyrir eldri borgara, þar sem
þeir gætu búið saman undir einu
þaki á jarðhæð. Ég hef komið inn
í svona húsnæði á Blönduósi. Þar
eru minnir mig tíu eða tólf íbúðir
í tveimur byggingum með göngu-
götu á milli sem er undir glerþaki.
Í endanum er samverurými þar sem
fólk getur verið, t.d. lesið blöðin,
drukkið kaffisopa og fleira ef vill.
Íbúðirnar eru tveggja herbergja og
fullbúnar, með eldhúsi, þvottaað-
stöðu, stofu og verönd. Þar getur
fólk verið sem getur hugsað um sig
sjálft, en hefur samt ákveðið öryggi
og haft félagsskap hvert af öðru. Í
svona kjarna er líka auðveldara fyrir
fólk að standa saman við að kaupa
meiri þjónustu, ef á þarf að halda,“
segir soffía. „Annað úrræði vildi ég
líka sjá og það er einhvers konar
sambýli, sameiginlegt heimili með
möguleika á fullri þjónustu fyrir þá
íbúa sem það vilja. Þetta er nokkurs
konar millistig þar sem fólk gæti
búið um skeið, eftir að það flytur úr
stóru eigninni sinni úti í bæ, því að
ekki komast allir inn á hjúkrunar-
eða dvalarheimili,“ bætir hún við.
„Ég er þess fullviss að þetta væri eft-
irsótt búsetuúrræði, hvort sem það
væri til leigu eða sölu. svona vant-
ar á skagann og ég held að þetta
sé það eina,“ segir soffía og brosir.
stefán grípur þennan bolta á lofti.
„Það er eins og engum hafi dottið
í hug að byggja leiguhúsnæði fyrir
eldri hóp, kannski 60 ára og eldri,
sem gæti hugsað sér að selja sína
eign og flytja inn í úrræði eins og
soffía lýsir. Ég held að ef svona hús
væri rétt staðsett og veitt þar þjón-
usta sem þarf myndu eflaust margir
velta því fyrir sér að selja eigin eign
og flytja í einhverja þægilega leigu-
einingu. Losa jafnvel í leiðinni um
pening sem það fengi fyrir sölu á
sinni eign og nota hann í að gera
eitthvað skemmtilegt,“ segir hann.
„En okkur finnst Akranes hafa upp
á mjög margt að bjóða, alltaf verið
að bæta í og hér er gott að vera,“
segja þau soffía, Ragnheiður og
stefán að endingu.
kgk/ Ljósm. kgk.
FastVest flutt í nýtt húsnæði:
„Viljum halda áfram að veita góða þjónustu“
Hægindastólar í opna rýminu á nýju skrifstofu FastVest.
Starfsfólk Fasteignamiðlunar Vesturlands. F.v. Ragnheiður Rún Gísladóttir, Soffía Sóley Magnúsdóttir og Stefán Bjarki Ólafsson.
Soffía fasteignasali að störfum.