Skessuhorn - 04.03.2020, Blaðsíða 31
MIÐVIKUDAGUR 4. MARs 2020 31
Fimm sundmenn frá sundfélagi
Akraness kepptu um helgina á
opnu meistaramóti í Lettlandi. Það
eru þau Atli Vikar Ingimundarson,
Brynhildur Traustadóttir, Enrique
snær Llorens, Ragnheiður Kar-
en Ólafsdóttir og sindri Andreas
Bjarnason. Alls tóku 528 keppend-
ur frá sjö löndum þátt í mótinu.
Enrique snær Llorens setti nýtt
Akranesmet í 400 m skriðsundi,
sem hann synti á 4.17,94. Eldra
met var 4.17,94 sem Gunnar smári
Jónbjörnsson setti árið 2004. Hann
setti síðan annað Akranesmet á
laugardaginn þegar hann synti 400
m fjórsundið á 4.49,46 og bætti þar
með met Hrafns Traustasonar frá
2009 um rétt rúmar sex sekúnd-
ur. Enrique bætti sig í bæði 200 m
flugsundi og 200 m fjórsundi. Hann
hafnaði í topp átta en fékk ekki að
synda til úrslita þar sem einung-
is fjórir keppendur utan Lettlands
fengu að keppa í úrslitum.
Brynhildur Traustadóttir vann
brons í 400 m skriðsundi og synti til
úrslita í 200 m skriðsundi þar sem
hún var alveg við sinn besta tíma.
Hún hafnaði í fjórða sæti, aðeins
0,17 sekúndum frá bronsinu. Hún
hafnaði einnig í fjórða sæti í 800 m
skriðsundi, þar sem hún synti einn-
ig mjög nálægt sínum besta tíma.
Ragnheiður Karen Ólafsdóttir
bætti sinn besta tíma í 200 m fjór-
sundi um eina sekúndu og sindri
Andreas Bjarnason bætti sig um
eina sekúndu í 100 m skriðsundi.
kgk
Um helgina fór fram Bikarmeist-
armót Íslands í klifri. Þar kepptu
klifrarar í C-flokki. Eftir erfiða
undankeppni fóru sex stigahæstu
keppendur áfram í úrslit og þar
voru skagamenn með fjórar stúlkur
og tvo drengi. Eftir harða úrlista-
keppni stal skagamærin Þórkatla
Þyrí sturludóttir sigrinum með
frábærri frammistöðu í síðustu leið
mótsins. Tinna Rós Halldórsdóttir,
Klifurfélag ÍA, hafnaði í þriðja sæti
og var ekki langt frá silfurverðlaun-
um.
Á sunnudeginum mættu yngri
hópar Klifurfélags ÍA til leiks á
skemmtimóti ÍA og spreyttu sig
á verkefnum á klifurveggnum,
ásamt klifrurum frá Laugarvatni og
Reykjavík.
Helginni lauk svo með landslið-
sæfingu fyrir A- og B-flokk en þessi
hópur er á leiðinni til þátttöku á
Norðurlandamótinu i grjótglímu
sem fram fer helgina 14.-15. mars
í Kaupmannahöfn. Frá Klifurfélagi
ÍA fara þær Brimrún Eir Óðins-
dóttir í ungmennaflokki og sylvía
Þórðardóttir í B-flokki.
Um næstu helgi verður Bikar-
meistarmót fyrir eldri flokka hald-
ið í Klifurhúsinu í Reykjavík en þar
mætir ÍA til leiks með fimm kepp-
endur. þs
snæfellskonur biðu lægri hlut gegn
Íslandsmeisturum Vals, 74-99, þeg-
ar liðin mættust í Domino‘s deild
kvenna í körfuknattleik. Leikið
var í stykkishólmi á miðvikudags-
kvöld.
Jafnt var á með liðunum í upp-
hafsfjórðungnum. snæfell komst
í 7-2 áður en Valur náði foryst-
unni og leiddi með örfáum stigum
framan af fjórðungnum. Undir lok
fyrsta leikhluta komst snæfell yfir
að nýju og hafði tveggja stiga for-
skot að honum loknum, 24-22. Val-
ur komst yfir í upphafi annars leik-
hluta en snæfellskonur fylgdu fast
á hæla gestanna. Þegar stutt var til
hálfleiks munaði sjö stigum á liðun-
um, í stöðunni 39-46. Þá tóku Vals-
konur mikla og góða rispu, skoruðu
15 stig gegn tveimur og fóru með
20 stiga forskot inn í hálfleikinn,
41-61.
snæfellskonur voru ívið öflugri
eftir hléið, skoruðu 17 stig gegn 14
í þriðja leikhluta og munaði 17 stig-
um á liðunum fyrir lokafjórðung-
inn, 58-75. sú brekka var einfald-
lega of brött gegn sterku liði Vals.
snæfellskonur minnkuðu muninn
í 15 stig snemma í fjórða leikhluta
en nær komust þær ekki. Valskonur
léku vel það sem eftir lifði leiks og
sigruðu að lokum með 25 stigum,
74-99.
Amarah Coleman var atkvæða-
mest í liði snæfells með 24 stig og
sjö fráköst. Emese Vida skoraði 16
stig og tók tíu fráköst, Gunnhildur
Gunnarsdóttir var með ellefu stig
og sex fráköst, Tinna Guðrún Alex-
andersdóttir skoraði sjö stig, Veera
Pirttinen skoraði sex stig, Anna
soffía Lárusdóttir var með fjögur
stig og þær Björg Guðrún Einars-
dóttir og Rebekka Rán Karlsdóttir
skoruðu þrjú stig hvor.
Kiana Johnson skoraði 28 stig
og tók tólf fráköst í liði Vals, Dag-
björt Dögg Káradóttir var með 20
stig og fimm fráköst, Helena sverr-
isdóttir skoraði 13 stig, tók sjö frá-
köst og gaf fimm stoðsendingar og
Dagbjört samúelsdóttir skoraði tíu
stig.
snæfell situr í sjötta sæti deildar-
innar með 14 stig, er tólf stigum á
eftir Haukum og skallagrími í sæt-
unum fyrir ofan en hefur átta stiga
forskot á Breiðablik. Næsti leikur
snæfellskvenna er Vesturlandsslag-
ur gegn skallagrími í kvöld, mið-
vikudaginn 4. mars. sá leikur fer
fram í Borgarnesi. kgk
skallagrímur lyfti sér upp í þriðja
sæti Domino‘s deildar kvenna í
körfuknattleik með tveimur góð-
um útisigrum í vikunni. síðastlið-
inn miðvikudag sóttu skallagríms-
konur sigur á endasprettinum gegn
Grindavík, 66-76 og á sunnudag
unnu þær mikilvægan sigur á Hauk-
um í baráttunni um sæti í úrslita-
keppninni. Þær höfðu undirtökin
stærstan hluta leiksins gegn Hauk-
um og sigruðu að lokum með sjö
stigum, 69-76.
Jafnræði var með liðunum í upp-
hafi leiks og mjótt á mununum.
skallagrímskonur voru þó heldur
ákveðnari og höfðu fjögurra stiga
forskot eftir upphafsfjórðunginn,
18-22. Þær höfðu áfram undirtökin
í öðrum leikhluta en náðu þó ekki
að slíta sig frá Haukum. Borgnes-
ingar leiddu með fjórum stigum í
hálfleik, 29-33.
skallagrímskonur voru sterkari
eftir hléið en eins og í fyrri hálf-
leik náðu þær aldrei almennilega að
hrista Haukakonur af sér. Tvisvar
náðu þær níu stiga forskoti í þriðja
leikhluta en Haukar svöruðu fyr-
ir sig í bæði skiptin. skallagrímur
leiddi með sjö stigum fyrir loka-
fjórðunginn, 44-51. Haukakonur
voru mjög ákveðnar í upphafi fjórða
leikhluta og komust yfir í fyrsta sinn
í leiknum í stöðunni 52-51. Þá tóku
skallagrímskonur sig til og skoruðu
átta stig í röð og tóku stjórn leiks-
ins í sínar hendur á ný. Virtist það
koma illa við Haukaliðið, sem átti
nokkrar sóknir í röð sem runnu út
í sandinn. Því fór svo að lokum að
skallagrímur sigraði með sjö stig-
um, 69-76.
Keira Robinson átti stórgóðan
leik í liði skallagríms, skoraði 26
stig, tók tíu fráköst og gaf sex stoð-
sendingar. Mathilde Colding-Poul-
sen skoraði 19 stig, Maja Michalska
var með 15 stig, Emilie Hesseldal
skoraði 14 stig, tók tólf fráköst og
gaf sex stoðsendingar, sigrún sjöfn
Ámundadóttir skoraði eitt stig og
tók sex fráköst og Árnína Lena Rún-
arsdóttir skoraði eitt stig einnig.
Randi Brown var atkvæðamest í
liði Hauka með 31 stig og ellefu frá-
köst, Rósa Björk Pétursdóttir skor-
aði 16 stig og tók sex fráköst en aðr-
ar höfðu minna.
skallagrímskonur hafa 28 stig í
þriðja sæti deildarinnar, jafn mörg
og Keflavík í sætinu fyrir neðan en
Keflvíkingar eiga þó leik til góða.
Haukar eru tveimur stigum þar
fyrir neðan, en skallagrímur hefur
sigrað þrjár af fjórum innbyrðis við-
ureignum liðanna í vetur.
Næsti leikur Borgnesinga er Vest-
urlandsslagur gegn snæfelli í kvöld,
miðvikudaginn 4. mars. sá leikur
fer fram í Borgarnesi.
kgk/ Ljósm. úr safni/ kgk.
Emese Vida í baráttu við Helenu
Sverrisdóttur, leikmann Vals.
Ljósm. sá.
Íslandsmeistararnir of stór biti
Lyftu sér upp í þriðja sæti
Hópurinn frá Akranesi sem keppti í Lettlandi um helgina.
Ljósm. Sundfélag Akraness.
Eitt brons og tvö
Akranesmet í Lettlandi
Landsliðshópur A-B.
Fréttir frá Klifurfélagi ÍA
Bikarmeistararnir.