Ægir - 2019, Blaðsíða 11
11
Veðrið nægur hemill
„Þetta kerfi sem notað er við strandveið
arnar í dag hefur reynst vel. Eins og við
höfum alltaf haldið fram er veður og
fiskgengd á grunnslóð nægilegur hemill
á handfæraveiðar smábáta. Við sáum
það vel nú í ágúst þegar tíðarfarið var
alveg skelfilegt. Það var algengt að þeg
ar kom fram yfir miðjan mánuðinn þá
voru menn ekki búnir að ná nema þriðj
ungi eða helmingi þess róðrafjölda sem
þeir hafa náð að meðaltali í ágúst. Þetta
á við á bæði á svæðum A og B, þ.e. fyrir
vestan og norðan,“ segir Örn Pálsson,
framkvæmdastjóri Landssambands smá
bátaeigenda.
Þrátt fyrir fjölgun báta var aflinn
framan af ágústmánuði fjórðungi minni
en hann var á sama tíma í fyrra. Veiðar í
maí, júní og júlí gengu alveg þokkalega
og vega þeir mánuðir þetta eitthvað upp.
Reyndar var tíðarfarið fyrir norðan og
austan verið slæmt í allt sumar. Það kom
mikið niður á aflabrögðum hjá bátunum
almennt.
Meiri afli og hærra fiskverð
„Það sem hefur komið á móti og við
gleðjumst yfir er að mun fleiri bátar
voru á veiðum nú en í fyrra, um 60 til 70
fleiri eða um 13%. Nú voru 619 bátar
með löndun á móti 546 í fyrra. Við ætlum
okkur að sjálfsögðu að sækja fram í
strandveiðunum og efla þær. Nú er í
gangi endurskoðun á meðferð og ráð
stöfun aflaheimilda sem ríkið hefur for
ræði yfir, 5,3% pottinum. Þar eru undir
strandveiðar, línuívilnun, byggðakvóti
og uppbætur vegna skel og rækjuveiða.
Við teljum að strandveiðarnar eigi þar
að njóta mikils velvilja. Þær koma hinum
dreifðu byggðum landsins mjög vel og
eru gott innlegg í stjórnkerfi fiskveiða. Í
því kerfi þurfa menn ekki að kaupa sér
kvóta en veiðar eru takmarkaðar með
fjölda færarúlla, eignarhaldi, veiðisvæð
um og tímalengd en ekki síst af tíðarfari
og fiskgengd á slóðinni,“ segir Örn.
„Allir hafa hins vegar notið hækkun
ar á fiskverði á þessu ári og lægra veiði
gjalds. Því held ég að menn verði nokkuð
sáttir við árið,“ segir Örn.
■ Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda.
■ Heilarveiðin á strandveiðitímabilinu fór yfir 10 þúsund tonn, sem er metafli frá því strandveiðar hófust.
Smábátar
Frystigámar / Sala og leiga 10 / 20 og 40 ft.
Seljum einnig og leigjum gámahús, geymslugáma og salernishús í
ýmsum stærðum og gerðum. Fjöldi sérlausna í boði, sniðnar að
þörfum hvers og eins viðskiptavinar.
www.stolpigamar.is
Hafðu
samband
568 0100 Óseyrarbraut 12 | 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5 | 104 Reykjavík