Ægir - 2019, Blaðsíða 45
45
Þessa dagana er unnið að uppsetn-
ingu búnaðar á vinnsluþilfari nýjasta
togara landsmanna, Vestmannaey VE
54, sem kom í fyrsta skipti til heima-
hafnar í Vestmannaeyjum í sumar.
Skipið er það fyrsta af sjö samskonar
togurum sem smíðaðir eru fyrir ís-
lenskar útgerðir í Vard smiðasmíða-
stöðinn í Noregi en nú í lok september
er von á öðru skipi fyrir sömu útgerð,
Berg-Huginn ehf. í Vestmanneyjum,
sem ber nafnið Bergey VE. Í kjölfarið
fylgja síðan tvö skip fyrir Gjögur hf.,
tvö fyrir Skinney Þinganes hf. og eitt
fyrir Útgerðarfélag Akureyringa hf.
Gert er ráð fyrir að þau verði öll kom-
in til landsins fyrir áramót en í öllum
tilfellum er gengið frá vinnslubúnaði
á milliþilfari og fleiri þáttum í lokafrá-
gangi skipanna hér á landi.
Millidekkið stærsta breytingin
Nýja Vestmannaey VE tekur við af eldra
og samnefndu skipi útgerðarinnar.
Áhöfn flyst yfir á nýja skipið af því
gamla og segir Birgir Þór Sverrisson,
skipstjóri að umtalsverð breyting verði á
aðstöðu hennar með nýja skipinu en
Birgir fylgdist með smíði þess síðustu
mánuðina í Noregi og sigldi skipinu síð
an heim til Íslands.
„Mikilvægasta atriðið í mínum huga
er að í nýja skipinu erum við að fá mjög
stórt og rúmgott millidekk. Í nýja skipinu
er það um 170 fermetrar, sem er helm
ingi stærra en er í gamla skipinu. Miðað
við stærð skipsins þá er millidekkið hlut
fallslega mjög stórt og óhætt að orða það
sem svo að skipið sé hannað utan um
þetta mikilvæga rými. Fyrir utan meira
rými þá er líka öll hönnun betri og löguð
að þeim veiðiskap sem við erum á. Við
fáum öflugri þvott, kælingu og flokkun á
aflanum sem þýðir að vinnuaðstaðan
fyrir áhöfnina er allt önnur en er í þeim
gamla,“ segir Birgir Þór en eftir aðgerð,
þvott, flokkun og kælingu aflans fer
hann niður í lest þar sem við tekur svo
■ Vestmannaey VE 54 í innsiglingunni til Vestmannaeyja í fyrsta sinn. Myndir: Óskar Pétur Friðriksson
Ný Vestmannaey VE
senn tilbúin á veiðar
Nýtt fiskiskip