Ægir

Árgangur

Ægir - 2019, Síða 12

Ægir - 2019, Síða 12
12 „Á því er enginn vafi að þessi nýi fjölgeisla dýptar- mælir frá Furuno er mikið framfaraspor í fiskileitar- tækninni og notendur fá í þessu tæki mjög mikið fyrir peninginn. Enda hefur mæl- irinn vakið mikinn áhuga hjá viðskiptavinum okkar og fyrstu tveir eru komnir í notkun í Steinunni SH-167 og Saxhamari SH-50. Og fleiri skip eru að fylgja í kjölfarið,“ segja þeir Sveinn K. Sveinsson og Richard Már Jónsson hjá Brimrún. Fyrir- tækið er umboðsaðili Fur- uno hér á landi og býður breiða línu fiskileitar-, sigl- inga- og fjarskiptatækja. Á sýningunni Sjávarútvegur 2019 í Laugardalshöll í lok september mun Brimrún kynna nýja tækið, m.a. með lifandi myndefni og geta skipstjórnendur fengið góða innsýn í hvernig búnaður- inn vinnur. Dýptarmælir, fisksjá og sónar Furuno DFF­3D er, líkt og nafnið bendir til, þrívíddar dýptarmælir, fisksjá og sónar. Tækið byggir á fjölgeislatækni, þ.e. geislum sem sendir eru út frá botnstykki, annars vegar beint niður á botn og hins vegar út frá skipinu á sitt hvort borð. Miðgeislinn getur náð niður á 300 metra dýpi og hliðargeislarnir mest náð 200 metra dýpi miðað við 120 gráðu heildar geislabreidd. Sú stilling geisla gefur alls um 700 metra breitt svæði sem tækið myndar. Mesta geisla­ breidd hvers geisla er 40 gráð­ ur en hægt að stilla þá þrengri ef vill. Með háþróaðri tækni Fur­ uno á úrvinnslu þeirra upp­ lýsinga sem geislarnir gefa verður til nákvæm þrívíddar­ mynd af botninum, fiskitorfum og öðrum því neðansjávar sem skipstjórnendur vilja sjá til að ná sem bestum árangri í veiðum. Nákvæmar myndir af botninum sýna mishæðir, skurði, hóla og hæðir og fisk sem getur leynst á slíkum stöðum þannig að segja má að sé fiskur á annað borð á slóð­ inni þá fari hann ekki framhjá vökulu auga tækisins. Sveinn og Richard segja að smáatriðin sem mælirinn get­ ur birt komi notendum skemmtilega á óvart. Richard bendir á að eitt af mikilvægum atriðum í þessari nýju tækni felist í botnstykkinu en það er með innbyggðum hreyfiskynj­ ara sem leiðréttir skjámyndir sem birtast fyrir veltu skips­ ins, þó í vondum veðrum sé. Fullkomin samhæfing með MaxSea TimeZero „Þrívíddarmyndirnar sem fást með Furuno DFF­3D er með auðveldum hætti hægt að vinna með í MaxSea TimeZero hugbúnaðinum og vista myndirnar í gagnagrunni hans. TimeZero er orðið eitt algengasta plotterforritið í skipum í dag og því er mikill ávinningur af þeirri samhæfni sem er milli forritsins og nýja mælisins. Þannig er hægt að geyma botnmyndir í gagna­ grunninum og varðveita upp­ lýsingar um hvar afli fékkst sem nýtist vel ef aftur er kom­ ið á sömu veiðislóð. Botn­ myndirnar sem birtast eru mjög nákvæmar og skýrar og lykilatriðið í því er innbyggði Fiskileitartækni Fjölgeisla dýptarmælir frá Furuno mikið framfaraspor segja Sveinn K. Sveinsson og Richard Már Jónsson hjá Brimrún ■ Þriggja geisla, 3d-mynd og 120° botnmynd. ■ 120° botnmynd sem sýnir fisktorfu til hliðar við stefnu báts. ■ 3D botnsöfnun í MaxSea TimeZero.

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.