Bændablaðið - 03.12.2020, Side 4

Bændablaðið - 03.12.2020, Side 4
Bændablaðið | Fimmtudagur 3. desember 20204 Líftæknifyrirtækið Ísteka nýtir gjafablóð úr fylfullum hryssum til framleiðslu á frjósemislyfjum sem selt er til stórra lyfjafyrirtækja út um allan heim. Fyrirtækið hefur vaxið jafnt og þétt undanfarin ár og jókst velta fyrirtækisins til muna á síðasta ári, eða um 80% á milli ára. Það óvenjustóra stökk má að miklu leyti þakka erlendu sérverkefni. Slagkraftinn sem þetta veitir fyrirtækinu hyggst það nýta til frekari vaxtar. „Við höfum verið hér í þessu húsi í 20 ár og einbeitt okkur að því að vaxa og styrkjast sem framúrskarandi framleiðandi á mikilvægri prótínafurð til útflutnings. Við einangrum prótínið úr blóði fylfullra hryssa og höfum skapað atvinnutækifæri og orðspor sem við erum afar stolt af. Við byggjum jafnframt á gömlum merg, því frumkvöðullinn Einar Birnir hjá G. Ólafsson hf. lagði grunninn að þessari starfsemi fyrir um 35 árum,“ segir Arnþór Guðlaugsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, en í dag eru um 40 starfsmenn hjá Ísteka. Fimm mínútna blóðgjöf Starfsstöðvar fyrirtækisins eru tvær í Reykjavík. Annars vegar á Grensásvegi þar sem húsnæðið hefur á fáeinum árum verið fjórfaldað og hins vegar á Höfðanum þar sem fyrirtækið hefur undanfarin ár fært út kvíarnar. „Uppi á Höfða erum við með hráefnismóttöku og frumvinn- um þar blóðið í blóðplasma sem er upphafsefni framleiðslunnar á Grensásvegi. Við höfum mest verið að fá blóð frá bændum á Suðurlandi, í Húnavatnssýslum og eins úr Skagafirði en einnig eru nokkrir bæir á Vesturlandi og Norð-Austurlandi. Svo höfum við hvatt bændur í öðrum landshlut- um til að taka upp þessa búgrein. Í ár hófust blóðgjafir í fyrsta skipti austur á Héraði og því má segja að við höfum lokað hringnum, en hann má enn þétta. Dýralæknar á þessum stöðum sjá um blóðgjafirn- ar fyrir okkur,“ útskýrir Arnþór og segir jafnframt að „dýralæknarnir staðdeyfi hryssuna fyrir blóðgjöfina sem tekur um fimm til tíu mínútur þannig að á hverju ári er þetta um klukkutíma löng blóðgjöf hjá hrys- sunni. Hver hryssa gefur að meðal- tali 5-6 sinnum og í mesta lagi átta sinnum á sumri og í hvert sinn aldrei meira en fimm lítra af blóði.“ Sérstaða íslenska hestsins Framleiðsla fyrirtækisins og velta hefur vaxið jafnt og þétt hin síðustu ár og tók stökk á síðasta ári. Árið 2016 hagnaðist fyrirtækið um 68 milljónir og hefur afkoman ríflega sjöfald- ast á fjórum árum. „Við tókum að okkur erlent sérverkefni í fyrra sem skýrir þessa miklu veltuaukningu og mun það einnig hafa áhrif á niðurstöðu þessa árs. Vonast er til þess að veltutölur lækki ekki mikið þegar áhrifa þessa verk- efnis dvína. Því hyggjumst við ná með áframhaldandi fram- leiðsluaukningu úr blóði frá íslenskum sveitum. Fyrir all- mörgum árum var verksmiðj- an skoðuð af Lyfjastofnun Bandaríkjanna (FDA) og framleiðsla lyfjaefnisins sam- þykkt fyrir Bandaríkjamarkað sem var ákveðin viðurkenn- ing fyrir okkur. Starfsemin er einnig undir eftirliti Lyfjastofnunar. Við erum ekki ein um framleiðslu á efninu og eigum í samkeppni við nokkra erlenda aðila. Sérstaða Ísteka felst meðal annars í miklum stöð- ugleika framleiðsluvörunnar, þökk sé áreiðanlegum framleiðsluferlum, stöðluðum vinnubrögðum, stífu gæðaeftirliti og góðum orðstír sem spannar áratugi. Að auki má nefna að hér er lítið um smitsjúkdóma í hestum og staða og eftirfylgni með dýravelferð er hér mjög góð. Þetta er sem sagt framleitt víða í heiminum og við erum sérfræðingar á þessum sérhæfða markaði,“ segir Arnþór og bætir við: „Við vinnum á breiðu sviði sem byrjar úti í sveit hjá bóndan- um á blóðgjafartímabilinu sem er í ágúst og september ár hvert. Síðan fer blóðið í vinnslu hingað til Reykjavíkur og við vinnum efnið þá mánuði ársins sem blóðgjafir fara ekki fram. Að jafnaði líður um eitt ár frá því að hryssur gefa blóð uns lyfja- efnið er tilbúið til sölu til erlendra lyfjafyrirtækja. Fyrirtækin framleiða úr þessu frjósemislyf í lyfjaglösum sem seld eru til dýralækna um allan heim. Frjósemislyfið virkar í öllum spendýrum.“ Auka framleiðslugetuna „Bændum í samstarfi við okkur hefur fjölgað ár frá ári undanfarin ár og við óskum eftir fleirum. Verðflokkar til bóndans eru nokkrir, frá rúmum 8 þús. krónum og upp í rúmar 11 þús. krónur á hverja blóð- gjöf hryssu. Þetta útleggst því sem um 45-70 þús. krónur á hryssu á meðalbúi og einstaka hryssa getur skilað afurðum fyrir yfir 90 þús. krónur fyrir utan virðisaukaskatt, bara af blóðinu. Þá eru verðmæti folaldsins ekki talin með svo þetta er ágætis búbót. Faglega er að öllu staðið og gott eftirlit með skepn- unum og blóðgjöfunum. Blóðgjöfin sjálf er framkvæmd af dýralæknum öfugt við það sem þekkst hefur víða annars staðar. Ísteka heldur jafnframt úti sérstöku dýravel- ferðareftirliti og að sjálfsögðu eru allir sem í þessu eru undir eftirliti Matvælastofnunar. Því segi ég alltaf að það eru vandfundin húsdýr sem hafa það betra en blóðgefandi hryssur. Þær lifa við óvenju mikið frelsi og tiltölulega lítið áreiti frá manninum. Við höfum aukið fram- leiðslugetu okkar og sjáum fram á áframhaldandi vöxt með enn meira samstarfi við landbúnaðinn við öflun hráefnis til framleiðslunnar. Við óskum því eftir auknu samstarfi við bændur landsins.“ Þess má að lokum geta að verðþró- un á blóði til þessarar vinnslu hefur verið langt umfram aðrar landbún- aðarvörur. Verð hefur til langs tíma hækkað á hverju ári. Nýverið ákvað stjórn Ísteka að bjóða samstarfsbænd- um sínum eingreiðslu að verðmæti 6% af innlögðum afurðum ársins 2020, til að hjálpa þeim að kljást við áhrif kórónuveirufaraldursins sem nú geisar. Útgefin verðskrá með árlegum hækkunum gildir til ársins 2023. /ehg FRÉTTIR Arnþór Guðlaugsson, framkvæmdastjóri Ísteka, heldur hér á frystu milliefni úr gjafablóði frá fylfullum, íslenskum hryssum. Myndir / ehg Alexander Ingvarsson fylgist hér með hitastigi á lífefninu í sérherbergi þar sem eitt fjölmargra framleiðslu- skrefa á sér stað. Anna María Trang Davíðsdóttir að störfum í vinnslusal fyrirtækisins á Grensásvegi. Meðal framleiðslutími frá blóðgjöf hryssu að lyfjaefni er um eitt ár. Lyfjaefnið er selt til erlendra lyfjafyrirtækja sem nota það í frjó- semislyf fyrir spendýr. Líftæknifyrirtækið Ísteka nýtir blóð úr fylfullum hryssum til framleiðslu á frjósemislyfjum: Fyrirtækið í örum vexti og hefur fjórfaldað húsnæðið á þremur árum Landsnet hefur sent Orkustofnun tillögu að nýrri gjaldskrá sem áætlað er að taki gildi 1. janúar 2021. Fyrirhuguð breyting felur í sér að gjaldskrá til dreifiveitna hækkar um 9,9%. Samband garðyrkjubænda, Sölufélag garðyrkjumanna og Bændasamtök Íslands lýsa miklum áhyggjum af þeim hækkunum á gjaldskrá sem Landsnet hefur boðað. Í frétt á heimasíðu segir að Landsnet segi að þar sem kostnað- ur við flutning til heimila og smærri fyrirtækja er einungis 10–15% af rafmagnsreikningnum þá mun kostnaður þeirra einungis hækka um 1–1,5% vegna þessarar hækkunar. Ástæða hækkunarinnar er fyrst og fremst miklar framkvæmdir í flutningskerfinu sem eru nauðsyn- legar til þess að tryggja íbúum landsins öruggt aðgengi að raf- magni í takt við kröfur samtímans. Í óveðrunum síðasta vetur blöstu veikleikar kerfisins við og Landsnet er undir miklum þrýstingi að ráðast í úrbætur um allt land. Áhyggjur af hækkunum á gjaldskrá Samband garðyrkjubænda, Sölu- félag garðyrkjumanna og Bænda- samtök Íslands lýsa miklum áhyggjum af þeim hækkunum á gjaldskrá sem Landsnet hefur boðað frá og með 1. janúar næst- komandi. Sú hækkun sem boðuð hefur verið til dreifiveitna er 9,9% og mun koma til hækkunar á framleiðslu- kostnaði í landbúnaði, ekki síst á ylræktuðum garðyrkjuafurðum, þar sem orkukaup eru einn stærsti þátturinn í framleiðslukostnaði, auk launakostnaðar. Gjaldskrárhækkun á flutnings- og dreifingarkostnaði raforku vegna hækkana Landsnets mun leggjast á framleiðslukostnað til viðbótar þeim hækkunum sem verða vegna aukinna álagna á jarðefnaeldsneyti /flutningskostnað og kjarasamningsbundinna launahækkana. 275% hækkun frá 2005 Í yfirlýsingu frá SG, SFG og BÍ segir meðal annars að verð á flutningi og dreifingu raforku í dreifbýli hefur samtals hækkað um 275% frá 2005. Hækkunin er rúm 180% ef tekið er tillit til jöfnunargjalds stjórnvalda. Það er tæplega 179% umfram hækkun almenns verðlags (VNV) á sama tímabili, eða 84% hækkun umfram VNV að teknu tilliti til jöfnunargjaldsins. /VH Aukið úrval - nú fást 18m og 20m breið bogahús hjá okkur. BOGAHÚS TÖLVUPÓSTUR sala@bkhonnun . is SÍMI 571-3535 VEFFANG www .bkhonnun . is 12m - 15m - 18m & 20m breið Miklar áhyggjur meðal bænda vegna 9,9% boðaðra hækkana Landsnets á verði raforkudreifingar í dreifbýli: Verð á dreifingu í dreifbýli hefur hækkað um 275% frá 2005 Sú hækkun sem boðuð hefur verið til dreifiveitna er 9,9% og mun koma til hækkunar á framleiðslukostnaði í landbúnaði, ekki síst á ylræktuðum garðyrkjuafurðum. Mynd / HKr.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.