Bændablaðið - 03.12.2020, Blaðsíða 4
Bændablaðið | Fimmtudagur 3. desember 20204
Líftæknifyrirtækið Ísteka
nýtir gjafablóð úr fylfullum
hryssum til framleiðslu á
frjósemislyfjum sem selt er
til stórra lyfjafyrirtækja út
um allan heim. Fyrirtækið
hefur vaxið jafnt og þétt
undanfarin ár og jókst
velta fyrirtækisins til muna
á síðasta ári, eða um 80% á
milli ára. Það óvenjustóra
stökk má að miklu leyti
þakka erlendu sérverkefni.
Slagkraftinn sem þetta
veitir fyrirtækinu hyggst
það nýta til frekari vaxtar.
„Við höfum verið hér
í þessu húsi í 20 ár og
einbeitt okkur að því að
vaxa og styrkjast sem
framúrskarandi framleiðandi
á mikilvægri prótínafurð til
útflutnings. Við einangrum
prótínið úr blóði fylfullra
hryssa og höfum skapað
atvinnutækifæri og orðspor
sem við erum afar stolt af. Við
byggjum jafnframt á gömlum merg,
því frumkvöðullinn Einar Birnir
hjá G. Ólafsson hf. lagði grunninn
að þessari starfsemi fyrir um 35
árum,“ segir Arnþór Guðlaugsson,
framkvæmdastjóri fyrirtækisins, en í
dag eru um 40 starfsmenn hjá Ísteka.
Fimm mínútna blóðgjöf
Starfsstöðvar fyrirtækisins eru
tvær í Reykjavík. Annars vegar á
Grensásvegi þar sem húsnæðið hefur
á fáeinum árum verið fjórfaldað og
hins vegar á Höfðanum þar sem
fyrirtækið hefur undanfarin ár fært
út kvíarnar.
„Uppi á Höfða erum við með
hráefnismóttöku og frumvinn-
um þar blóðið í blóðplasma sem
er upphafsefni framleiðslunnar
á Grensásvegi. Við höfum mest
verið að fá blóð frá bændum á
Suðurlandi, í Húnavatnssýslum
og eins úr Skagafirði en einnig
eru nokkrir bæir á Vesturlandi og
Norð-Austurlandi. Svo höfum við
hvatt bændur í öðrum landshlut-
um til að taka upp þessa búgrein.
Í ár hófust blóðgjafir í fyrsta skipti
austur á Héraði og því má segja
að við höfum lokað hringnum, en
hann má enn þétta. Dýralæknar á
þessum stöðum sjá um blóðgjafirn-
ar fyrir okkur,“ útskýrir Arnþór og
segir jafnframt að „dýralæknarnir
staðdeyfi hryssuna fyrir blóðgjöfina
sem tekur um fimm til tíu mínútur
þannig að á hverju ári er þetta um
klukkutíma löng blóðgjöf hjá hrys-
sunni. Hver hryssa gefur að meðal-
tali 5-6 sinnum og í mesta lagi átta
sinnum á sumri og í hvert sinn aldrei
meira en fimm lítra af blóði.“
Sérstaða íslenska hestsins
Framleiðsla fyrirtækisins og
velta hefur vaxið jafnt og þétt
hin síðustu ár og tók stökk á
síðasta ári. Árið 2016 hagnaðist
fyrirtækið um 68 milljónir og
hefur afkoman ríflega sjöfald-
ast á fjórum árum.
„Við tókum að okkur erlent
sérverkefni í fyrra sem skýrir
þessa miklu veltuaukningu og
mun það einnig hafa áhrif á
niðurstöðu þessa árs. Vonast er
til þess að veltutölur lækki ekki
mikið þegar áhrifa þessa verk-
efnis dvína. Því hyggjumst við
ná með áframhaldandi fram-
leiðsluaukningu úr blóði frá
íslenskum sveitum. Fyrir all-
mörgum árum var verksmiðj-
an skoðuð af Lyfjastofnun
Bandaríkjanna (FDA) og
framleiðsla lyfjaefnisins sam-
þykkt fyrir Bandaríkjamarkað
sem var ákveðin viðurkenn-
ing fyrir okkur. Starfsemin er
einnig undir eftirliti Lyfjastofnunar.
Við erum ekki ein um framleiðslu
á efninu og eigum í samkeppni við
nokkra erlenda aðila. Sérstaða Ísteka
felst meðal annars í miklum stöð-
ugleika framleiðsluvörunnar, þökk
sé áreiðanlegum framleiðsluferlum,
stöðluðum vinnubrögðum, stífu
gæðaeftirliti og góðum orðstír sem
spannar áratugi. Að auki má nefna
að hér er lítið um smitsjúkdóma í
hestum og staða og eftirfylgni með
dýravelferð er hér mjög góð. Þetta er
sem sagt framleitt víða í heiminum
og við erum sérfræðingar á þessum
sérhæfða markaði,“ segir Arnþór og
bætir við:
„Við vinnum á breiðu sviði
sem byrjar úti í sveit hjá bóndan-
um á blóðgjafartímabilinu sem
er í ágúst og september ár hvert.
Síðan fer blóðið í vinnslu hingað til
Reykjavíkur og við vinnum efnið þá
mánuði ársins sem blóðgjafir fara
ekki fram. Að jafnaði líður um eitt ár
frá því að hryssur gefa blóð uns lyfja-
efnið er tilbúið til sölu til erlendra
lyfjafyrirtækja. Fyrirtækin framleiða
úr þessu frjósemislyf í lyfjaglösum
sem seld eru til dýralækna um allan
heim. Frjósemislyfið virkar í öllum
spendýrum.“
Auka framleiðslugetuna
„Bændum í samstarfi við okkur
hefur fjölgað ár frá ári undanfarin
ár og við óskum eftir fleirum.
Verðflokkar til bóndans eru nokkrir,
frá rúmum 8 þús. krónum og upp í
rúmar 11 þús. krónur á hverja blóð-
gjöf hryssu. Þetta útleggst því sem
um 45-70 þús. krónur á hryssu á
meðalbúi og einstaka hryssa getur
skilað afurðum fyrir yfir 90 þús.
krónur fyrir utan virðisaukaskatt,
bara af blóðinu. Þá eru verðmæti
folaldsins ekki talin með svo þetta
er ágætis búbót. Faglega er að öllu
staðið og gott eftirlit með skepn-
unum og blóðgjöfunum. Blóðgjöfin
sjálf er framkvæmd af dýralæknum
öfugt við það sem þekkst hefur
víða annars staðar. Ísteka heldur
jafnframt úti sérstöku dýravel-
ferðareftirliti og að sjálfsögðu eru
allir sem í þessu eru undir eftirliti
Matvælastofnunar. Því segi ég alltaf
að það eru vandfundin húsdýr sem
hafa það betra en blóðgefandi
hryssur. Þær lifa við óvenju mikið
frelsi og tiltölulega lítið áreiti frá
manninum. Við höfum aukið fram-
leiðslugetu okkar og sjáum fram á
áframhaldandi vöxt með enn meira
samstarfi við landbúnaðinn við
öflun hráefnis til framleiðslunnar.
Við óskum því eftir auknu samstarfi
við bændur landsins.“
Þess má að lokum geta að verðþró-
un á blóði til þessarar vinnslu hefur
verið langt umfram aðrar landbún-
aðarvörur. Verð hefur til langs tíma
hækkað á hverju ári. Nýverið ákvað
stjórn Ísteka að bjóða samstarfsbænd-
um sínum eingreiðslu að verðmæti
6% af innlögðum afurðum ársins
2020, til að hjálpa þeim að kljást
við áhrif kórónuveirufaraldursins
sem nú geisar. Útgefin verðskrá með
árlegum hækkunum gildir til ársins
2023. /ehg
FRÉTTIR
Arnþór Guðlaugsson, framkvæmdastjóri Ísteka,
heldur hér á frystu milliefni úr gjafablóði frá fylfullum,
íslenskum hryssum. Myndir / ehg
Alexander Ingvarsson fylgist hér
með hitastigi á lífefninu í sérherbergi
þar sem eitt fjölmargra framleiðslu-
skrefa á sér stað.
Anna María Trang Davíðsdóttir að
störfum í vinnslusal fyrirtækisins á
Grensásvegi. Meðal framleiðslutími
frá blóðgjöf hryssu að lyfjaefni er um
eitt ár. Lyfjaefnið er selt til erlendra
lyfjafyrirtækja sem nota það í frjó-
semislyf fyrir spendýr.
Líftæknifyrirtækið Ísteka nýtir blóð úr fylfullum hryssum til framleiðslu á frjósemislyfjum:
Fyrirtækið í örum vexti og hefur fjórfaldað
húsnæðið á þremur árum
Landsnet hefur sent Orkustofnun
tillögu að nýrri gjaldskrá sem
áætlað er að taki gildi 1. janúar
2021. Fyrirhuguð breyting felur
í sér að gjaldskrá til dreifiveitna
hækkar um 9,9%. Samband
garðyrkjubænda, Sölufélag
garðyrkjumanna og Bændasamtök
Íslands lýsa miklum áhyggjum af
þeim hækkunum á gjaldskrá sem
Landsnet hefur boðað.
Í frétt á heimasíðu segir að
Landsnet segi að þar sem kostnað-
ur við flutning til heimila og smærri
fyrirtækja er einungis 10–15% af
rafmagnsreikningnum þá mun
kostnaður þeirra einungis hækka um
1–1,5% vegna þessarar hækkunar.
Ástæða hækkunarinnar er fyrst
og fremst miklar framkvæmdir í
flutningskerfinu sem eru nauðsyn-
legar til þess að tryggja íbúum
landsins öruggt aðgengi að raf-
magni í takt við kröfur samtímans.
Í óveðrunum síðasta vetur blöstu
veikleikar kerfisins við og Landsnet
er undir miklum þrýstingi að ráðast
í úrbætur um allt land.
Áhyggjur af hækkunum
á gjaldskrá
Samband garðyrkjubænda, Sölu-
félag garðyrkjumanna og Bænda-
samtök Íslands lýsa miklum
áhyggjum af þeim hækkunum
á gjaldskrá sem Landsnet hefur
boðað frá og með 1. janúar næst-
komandi.
Sú hækkun sem boðuð hefur
verið til dreifiveitna er 9,9% og mun
koma til hækkunar á framleiðslu-
kostnaði í landbúnaði, ekki síst á
ylræktuðum garðyrkjuafurðum,
þar sem orkukaup eru einn stærsti
þátturinn í framleiðslukostnaði, auk
launakostnaðar.
Gjaldskrárhækkun á flutnings-
og dreifingarkostnaði raforku
vegna hækkana Landsnets mun
leggjast á framleiðslukostnað til
viðbótar þeim hækkunum sem
verða vegna aukinna álagna á
jarðefnaeldsneyti /flutningskostnað
og kjarasamningsbundinna
launahækkana.
275% hækkun frá 2005
Í yfirlýsingu frá SG, SFG og
BÍ segir meðal annars að verð á
flutningi og dreifingu raforku í
dreifbýli hefur samtals hækkað
um 275% frá 2005. Hækkunin
er rúm 180% ef tekið er tillit til
jöfnunargjalds stjórnvalda. Það er
tæplega 179% umfram hækkun
almenns verðlags (VNV) á
sama tímabili, eða 84% hækkun
umfram VNV að teknu tilliti til
jöfnunargjaldsins. /VH
Aukið úrval - nú fást 18m og 20m breið
bogahús hjá okkur.
BOGAHÚS
TÖLVUPÓSTUR
sala@bkhonnun . is
SÍMI
571-3535
VEFFANG
www .bkhonnun . is
12m - 15m - 18m & 20m breið
Miklar áhyggjur meðal bænda vegna 9,9% boðaðra hækkana Landsnets á verði raforkudreifingar í dreifbýli:
Verð á dreifingu í dreifbýli hefur hækkað um 275% frá 2005
Sú hækkun sem boðuð hefur verið til dreifiveitna er 9,9% og mun koma
til hækkunar á framleiðslukostnaði í landbúnaði, ekki síst á ylræktuðum
garðyrkjuafurðum. Mynd / HKr.