Bændablaðið - 03.12.2020, Qupperneq 15
Bændablaðið | Fimmtudagur 3. desember 2020 15
Hamar ehf. hefur formlegt sam
starf við Alfa Laval Nordic A/S og
mun með því renna enn styrkari
stoðum undir þjónustu fyrirtæk
isins við íslenskan sjávarútveg og
matvælaframleiðslu
Markmið Hamars er að vera
leiðandi fyrirtæki í þjónustu við
sjávarútveg á Íslandi. Er þetta einn
hlekkur í áætlunum Hamars á þeirri
vegferð.
Frá og með 1. desember 2020 er
í gildi samkomulag á milli Hamars
ehf. og Alfa Laval Nordic A/S,
food and water division, um að hið
fyrrnefnda verði formlegur umboðs-
aðili á Íslandi. Í þessu samstarfi falla
saman tvö sterk fyrirtæki á sínu sviði
sem mun skila sér í öflugri þjónustu
til viðskiptavina beggja fyrirtækja
á Íslandi. Hamar ehf. mun sjá um
sölu og ráðgjöf á vörulínu Alfa
Laval Nordic A/S, food and water
division. Hamar mun einnig veita
viðgerðarþjónustu og útvega Alfa
Laval varahluti.
„Hamar hefur á liðnum árum stát-
að af úrvals þjónustu við viðskipta-
vini og er þetta skref liður í að efla
þá þjónustu sem fyrir er. Hamar ehf.
sinnir þjónustu við íslenskan sjávar-
útveg og viljum við meina að Alfa
Laval sé eitt besta og áreiðanlegasta
merki í skilvindum, mjölvindum og
varmaskiptum. Við erum ákaflega
spennt fyrir því að geta nú verið hluti
af þeirri löngu og merkilegu sögu
sem tengist Alfa Laval.“
Að sögn Kára Pálssonar, fram-
kvæmdastjóra og annars stofnenda
Hamars, er mikil tilhlökkun fólgin
í þessari tilkynningu.
„Með þekkingu Hamars, færni
og getu í sambland við vörulínu
og sérfræðiþekkingu Alfa Laval
er íslenskum sjávarútvegi og mat-
vælaframleiðslu veittur aðgangur
að nýju og sterku samstarfi. Við
erum þess vegna full eftirvæntingar
og hlökkum til samstarfs við Alfa
Laval með það í huga að efla enn
frekar þjónustu við okkar viðskipta-
vini.“
Lars Bloch Area, sölustjóri hjá
Alfa Laval Nordic, er einnig ákaf-
lega ánægður með að þessi samvinna
sé komin á það stig sem nú hefur
verið náð.
Að sögn Lars, sem er ábyrgur
fyrir markaðssetningu og þjón-
ustu Alfa Laval á Íslandi, mun það
styrkja stöðu þeirra á Íslandi að vera
í sambandi við Hamar ehf. Lars segir
einnig að það hafi verið ásetningur
þeirra lengi að verða meira áberandi
á Íslandi og það mun verða raunin
með því samkomulagi sem hefur
verið undirritað og mun færa Alfa
Laval nær sínum viðskiptavinum á
Íslandi. /HKr.
H
U
GV
IT HRÁEFN
I
H
R E I N L E
IK
I
Hamar ehf. hefur formlegt samstarf við Alfa Laval Nordic A/S
– Íslenskum sjávarútvegi og matvælaframleiðslu veittur aðgangur að nýju og sterku samstarfi
Landnámshænan:
Fróðleikur
um fiðurfé
Nýtt tölublað af Landnáms
hænunni, blaði eigenda og
ræktenda félags landnámshænsna,
er komið út og er það 1. tölublað
ársins 2020. Að vanda eru í blað
inu áhugaverðar, skemmtilegar
og fræðandi greinar sem höfðar
til alls áhugafólks um íslensku
landnámshænunnar og ræktun
hennar.
Í formála segja ritstjórar að
blaðið sé frábrugðið síðasta blað
að því leyti að lítið sé af fréttum af
félagsstarfinu enda hafi það verið í
lágmarki á þessu ári. Þrátt fyrir það
er blaðið efnismikið og fjölbreytt.
Fjallað er um samkomu-
lag Eigenda og ræktendafélags
landnáms hænsna og Slow Food-
samtakanna sem felst í því að félagið
hefur fengið leyfi til að nota Rauða
snigilinn, merki samtakanna, á
afurðir sínar.
Í blaðinu er einnig fjallað um
fiðurfellingu og drykkjarvatn fyrir
hænur og landnámshænur í Hrísey.
Brigitte Brugger, dýralæknir ali-
fuglasjúkdóma hjá Matvælastofnun,
ritar grein um frjóegg sem geta borið
sjúkdóma og bendir á að gríðarleg
áhætta geti fylgt því að smygla eggj-
um til landsins.
Einnig er í blaðinu að finna grein
sem fjallar um félagslíf og hvort það
sé mögulegt að hænum leiðist. /VH
Bænda
17.
desember
56-30-300