Bændablaðið - 03.12.2020, Blaðsíða 24
Bændablaðið | Fimmtudagur 3. desember 202024
Þann 5. nóvember síðastliðinn
urðu Samtök smáframleiðenda
matvæla (SSFM) eins árs. Af því
tilefni stakk framkvæmdastjóri
þeirra niður penna og fór yfir
umgjörð og helstu áherslumál
samtakanna á liðnu ári.
Ekki er hægt að segja annað en
að árið hafi verið viðburðaríkt og
margt áunnist. Félagsmönnum með
fulla aðild hefur fjölgað jafnt og
þétt, eru í dag á annað hundrað. Að
auki er á fimmta tug með aukaaðild
sem er fyrir þá sem styðja markmið
samtakanna en eru ekki smáfram-
leiðendur.
Framkvæmdastjórinn er eini
starfsmaðurinn, en fjölbreytt
stjórn veitir honum ráð og stuðn-
ing og beitir sér eftir þörfum. Að
auki eru samtökin með ráðgjafa-
ráð sem einstaklingar með reynslu
og þekkingu á sviði samtakanna
sitja í sem bæði eflir þau og styrk-
ir. Það gerir einnig aðild þeirra að
Samtökum iðnaðarins. Í gegnum
hana eru félagsmenn sjálfkrafa
með aðild og hafa þannig aðgang
að þeirri þjónustu sem þau veita
sínum félagsmönnum.
Við viljum nota tækifærið og
þakka bakhjörlum okkar, Matarauði
Íslands og Landbúnaðarklasanum,
fyrir sinn þátt í að samtökin komust
á koppinn. Þau tóku virkan þátt í
undirbúningsferlinu og veittu
samtökunum myndarlega styrki.
Verkefnastjóri Matarauðs Íslands
sér samtökin taka að hluta til við
þeim áherslum Matarauðs að þétta
samvinnu smærri framleiðenda og
mynda þannig hreyfiafl til framfara,
ásamt því að halda á lofti íslenskri
framleiðslu og matarhandverki.
Fjölbreytt flóra
Fyrsta stóra verkefnið var að koma
upp vef fyrir samtökin sem er upp-
færður reglulega, en þar má meðal
annars finna lista yfir félagsmenn
sem eru ótrúlega fjölbreyttir. Þvílík
flóra af flottum matarfrumkvöðlum
um land allt sem spanna allt lit-
rófið. Við erum sífellt að rekast á
nýja frumkvöðla með spennandi
nýjungar. Tengingin við neytendur
er svo í gegnum „like-síðu“ sam-
takanna á Facebook og Instagram-
reikning.
Afsláttarkjör og tilboð
Í gegnum samtakamáttinn höfum við
getað samið um tilboð og afslætti frá
ólíkum aðilum sem smáframleið-
endur skipta gjarnan við, en félags-
menn geta nálgast upplýsingar um
það og fleira inn á læstu svæði fyrir
félagsmenn á vefnum okkar.
Fjölbreyttar
söluleiðir
Mikil áhersla er á
að þróa og kynna
söluleiðir sem eru
sérstaklega fyrir
smáframleiðendur, en
þeim fer sífellt fjölg-
andi í takt við áhug-
ann og eftirspurnina.
Stærsta samstarfs-
verkefnið því tengdu
er með Krónunni. Það
gengur út á að setja
upp sérstök svæði
í völdum verslun-
um sem eru merkt
„Matarbúr - hnoss-
gæti frá íslenskum
smáframle iðend-
um“. Árinu er skipt
upp í sex tímabil. Á
þessu tímabili, nóv-
ember-desember, eru
28 félagsmenn með
samtals 95 vörur í
Matarbúrinu, sem er
í tveimur verslunum, Lindum og
Selfossi.
Við gerðum einnig samstarfs-
samning við Kjörbúðina, en vinna
honum tengdum hefst á næsta ári.
Hann gengur út á að gera staðbundn-
ar vörur smáframleiðenda sýnilegri
í verslunum þeirra og stuðla að því
að þær vörur sem framleiddar eru
á hverju svæði séu seldar í þeim
verslunum. Fyrirmyndin tengist
Cittaslow hreyfingunni á Djúpavogi.
Í Kjörbúðinni þar margfaldaðist sala
þeirra vara eftir að þær voru merktar
sérstaklega og úrvalið aukið.
Vinna tengd samstarfssamn-
ingi við Samtök sveitarfélaga á
Suðurlandi hefst á næsta ári, en
markmið hans er að auka sölu og efla
söluleiðir smáframleiðenda matvæla
á Suðurlandi.
Við höfum svo átt í farsælu sam-
starfi við forsvarsmenn Gott og
blessað sem er vefverslun og lítil
kjörbúð í Hafnarfirði. Þau sérhæfa
sig í að selja og keyra heim vörur
frá smáframleiðendum um land
allt og valdar „gourmet“ vörur.
Félagsmenn hafa tekið vel í þessa
nýjung, á fjórða tug þeirra selja nú
vörur sínar í gegnum þau.
Við erum einnig í nánum tengsl-
um við Matarbúðina Nándina í
Hafnarfirði sem sérhæfir sig í plast-
lausum vörum. Félagsmenn hafa
einnig tekið vel í þá nýjung og selja
vel á þriðja tug félagsmanna vörur
sínar hjá þeim. Þau undirbúa nú
opnun vefverslunar.
Nýlega ákvað vefverslunin
Austur lands Food Coop – sem sér-
hæfir sig í innflutningi á lífrænt
vottuðum ávöxtum og grænmeti –
að bjóða einnig vörur frá íslenskum
smá framleiðendum og hafa nokkrir
félagsmenn þegar nýtt sér það, en
þau eru bæði með lager á Seyðisfirði
og í Reykjavík.
Á vef Beint frá býli, sem margir
okkar félagsmanna sem eru á lögbýl-
um selja í gegnum, er hægt að senda
fyrirspurn – um þær vörutegundir
sem áhugi er fyrir – á þá framleið-
endur sem bjóða þær vörur.
Smáframleiðendur á Norður-
landi vestra eru svo með sína eigin
vefverslun í gegnum Vörusmiðjuna
BioPol og keyra pantanirnar út á sér-
merktum bíl smáframleiðenda sem
hefur gefist afar vel.
Eins eru til bæði Facebook-síður
og hópar sem eru eins konar mark-
aðstorg, til dæmis fyrir veitinga-
menn sem hafa áhuga á að kaupa
vörur smáframleiðenda. Má þar
helst nefna hina svokölluðu REKO
hringi sem ganga út á milliliðalaus
viðskipti milli neytenda og smá-
framleiðenda. REKO Reykjavík
hópurinn hefur sem dæmi verið
með mánaðarlegar afhendingar frá
upphafi og REKO Vesturland annan
hvern mánuð. Svo má ekki gleyma
því að allir félagsmenn okkar eru
með eigin Facebook-síðu og oft líka
Instagram og vef sem margir selja
í gegnum.
Upplagt í jólapakkann
og á jólaborðið
Fyrir þessi jólin hafa smáframleið-
endur á ólíkum svæðum á landinu
tekið sig saman og sett saman jóla-
körfur eða jólapakka og auglýst
sérstaklega og svo eru sumir með
sína eigin.
Við sendum hvatningu til félags-
manna að skoða þann möguleika,
þar sem þessi jólin er lítið um mat-
armarkaði og hvetjum neytendur
jafnframt til að styðja smáframleið-
endur með að setja matvæli frá þeim
í jólapakkann og á jólaborðið.
Matarhandverk
Í vor skrifuðum við undir samstarfs-
samning við Matarauð Íslands um
að festa matarhandverk og mat-
arhandverkskeppnir í sessi í þeim
tilgangi að efla skilning á verðmæti
matarhandverks og menningarlegri
sérstöðu. Fyrirmyndin er Eldrimner,
miðstöð matarhandverks í Svíþjóð
og þeirra vottun.
Í kjölfar mikillar undirbúnings-
vinnu settum við saman fimm
hópa, skipaða félagsmönnum sem
framleiða vörur í ólíkum flokkum.
Hóparnir funduðu tvisvar til að
ræða markmiðin og hvernig ætti
að skilgreina matarhandverk al-
mennt og í þeirra flokki. Þátttaka
var framar vonum, á fimmta tug
félagsmanna tók þátt í vinnunni.
Samskipti, samstarf
og samtakamáttur
Stór hluti af starfi framkvæmda-
stjóra er að vera í beinu sambandi
Smáframleiðendur matvæla
smáframleiðenda
matvæla
Oddný Anna Björnsdóttir,
framkvæmdastjóri SSFM.
Matarbúrið Krónunni Lindum. Mynd / Arnþór Birkisson.
Jólakarfa smáframleiðenda af Héraði.
Mynd / Anna Birna Jakobsdóttir
Stuðningur við skógrækt félaga og samtaka
NÝIR STYRKIR TIL KOLEFNISBINDINGAR:
UPPLÝSINGAR OG UMSÓKNIR:
www.skogur.is/vorvidur
C
M
Y
CM
MY
CY
CMY
K
Vorvidur-auglýsing_des2020_bbl151x113.pdf 1 1.12.2020 13:56:37