Bændablaðið - 03.12.2020, Blaðsíða 34
Bændablaðið | Fimmtudagur 3. desember 202034
Tvíeldsneytis-dráttarvél
úr smiðju New Holland
– Gengur fyrir blöndu af dísilolíu og vetni
Fyrsta tvíeldsneytis-dráttarvélin
(duel fuel) frá New Holland var
kynnt í Hollandi 3. október
síðastliðinn. Þessi dráttarvél
er óvenjuleg að því leyti að
hún gengur fyrir dísilolíu sem
blönduð er með sérstökum
búnaði í 30-60% hlutfalli með
vetni.
Vélin er hönnuð af New Holland
í samvinnu við Blue Fuel Solutions.
Hún er með fimm vetnistanka á
þakinu sem rúma 11,5 kg af vetni,
eða sem samsvarar 470 lítrum af
vatni. Vetnisblandan er mismunandi
eftir álagi og í sterkustu hlutfalli
þegar dráttarvélin er undir litlu
álagi í akstri. Eftir því sem álagið
eykst minnkar vetnishlutfallið í
eldsneytisblöndunni. Með slíkri
álagsstýringu telja sérfræðingar
New Holland að vetnistankarnir
eigi að duga út einn vinnudag.
Kostnaðurinn við þetta kerfi er
ansi hár, eða nærri 70.000 evrur á
hverja dráttarvél, sem gerir rúmar
11,3 milljónir íslenskar krónur.
Líklegt er að það eitt og sér fæli
menn snarlega frá að gera tilraun
með þennan búnað, auk þess sem
óljóst er hvaða áhrif eldsneytisbruni
sem væntanlega er við mun hærri
hita með vetninu hefur á endingu
mótoranna. Arjan Verweij hjá
New Holland í Hollandi er samt
ekki mjög svartsýnn og telur að
opinberir styrkir sem fást fyrir
að draga úr losun koltvísýrings
(CO2) geti lækkað þennan kostnað
verulega. /HKr.
Ný New Holland dráttarvél sem kynnt var í Hollandi 3. október gengur fyrir
dísilolíu sem blönduð er með sérstökum búnaði í 30–60% hlutfalli með
vetni.
UTAN ÚR HEIMI
Ástralir hyggjast hefja framleiðslu á vetnisknúnum
jeppum, trukkum, rútum og dráttarvélum
– Fyrirtækið H2X stefnir á að hefja framleiðslu á vetnisknúnum farartækjum í júlí 2021
Ástralska fyrirtækið H2X kynnti
í sumar þau metnaðarfullu mark-
mið að koma í framleiðslu jeppum,
trukkum, rútum og dráttarvélum
sem búin verði vetnis-efnarafölum
sem knýja rafmótora.
Fyrirtækið hefur þegar smíðað
frumgerð jeppa eða jepplings sem
heitir Snowy og er með 60 kW
vetnis-efnarafal og með heildarafl
drifbúnaðar upp á 190 kW, eða sem
samsvarar 255 hestöflum. Það eru
þó ekki bara fólksbílar sem menn
hafa áhuga á að framleiða hjá H2X,
því hugur eigenda stefnir líka á
hönnun á þungum ökutækjum eins
og trukkum, rútum og jafnvel drátt-
arvélum. Til að knýja þessi stóru
tæki verða efnarafalar upp á 300
til 550 kW. Ráðgera forsvarsmenn
H2X að framleiðsla geti hafist í júlí
2021.
Ef allt gengur upp mun H2X verða
fyrsta fyrirtækið til að framleiða
dráttarvél á ástralskri grundu síðan
1986 þegar International Harvester
lokaði dráttarvéla verksmiðju sinni
í Geeloc, Victoríuríki.
Höfuðstöðvar H2X verða í Port
Kembal nærri Wollongong, en þar
er einmitt staðsett vetnisverksmiðja.
Yfirmenn H2X eru síður en
svo nýgræðingar í bílaframleiðslu-
heiminum. Framkvæmdastjóri fyr-
irtækisins heitir Brendan Norman,
en lykilmaður og hönnuður með
honum er Chris Reitz, sem starfað
hefur m.a. með Audi, VW, Nissan
og Fiat. Hönnuður drifbúnaðarins er
Peter Zienau, sem starfað hefur með
General Motors. Tæknistjórinn er Ian
Thompson, sem á sinn bakgrunn í
bílaiðnaði hjá Lotus og Aston Martin.
Þá sér Alan Marder um stefnumörk-
un fyrirtækisins, en hann starfaði
áður hjá Toyota. /HKr.
Frumgerð af vetnisknúna jepplingn-
um Snowy frá H2X í Ástralíu.
Svona sjá hönnuðir H2X í Ástralíu að vetnisknúin dráttarvél geti litið út. Þeir veðja á að vetnið verði framtíðareldsneyti
fyrir trukka, rútur og þungar vinnuvélar í framtíðinni og hyggjast hefja framleiðslu á einhverjum þessara hugverka
sinna næsta ári. Mynd / H2X
Vélaframleiðandi Yanmar hefur keypt
Solis-dráttarvélaverksmiðjuna í Tyrklandi
Vélaframleiðandinn Yanmar,
sem íslenskir útgerðarmenn
þekkja vel, hefur nú lokið við
kaup á dráttarvélaverksmiðju
Solis Traktör Sanayi A.Ş. í Izmir
Menderes ITOB í Tyrklandi. Með
kaupunum styrkir Yanmar enn
frekar stöðu sína í Tyrklandi.
Iðnfyrirtækið Yanmar var stofnað
í Osaka í Japan árið 1912 og var fyrst
til að ná árangri í smíði dísilvélar
af hagnýtri stærð árið 1933. Hafa
dísilvélar síðan verið hornsteinn í
framleiðslu fyrirtækisins.
Yanmar er mjög framsækið fyr-
irtæki og vinnur nú m.a. að hönnun
vetnisvéla í samvinnu við Toyota í
Japan. Þá hefur Yanmar líka verið
í fararbroddi fyrirtækja sem fram-
leiða vélar sem brenna bæði fljótandi
gasi (LNG) og dísilolíu, eða það sem
kallað er „dual fuel“.
Yanmar hóf starfsemi í Tyrklandi
árið 2017 með stofnun á fyrirtæk-
inu Yanmar Turkey Liaison Office,
sem hóf starfsemi sína í Izmir árið
2016. Síðan var Yanmar Turkey
Makine A.Ş stofnað árið 2017. Þá
hefur Yanmar verið hluthafi í Solis
síðan 2016.
Yanmar hefur vaxið hratt í Tyrk-
landi og náð miklum árangri frá
2016. Það hefur nú aukið fjárfest-
ingar sínar í Tyrklandi með því
að bæta dráttarvélaverksmiðju
inn í reksturinn. Kaupin á Solis
Traktör Sanayi A.Ş. voru undir-
rituð í Istanbúl, en seljandinn er
samstarfsaðili Yanmar í Tyrklandi,
International Tractor Limited (ITL).
Einn þekktasti framleiðandi
dísilvéla í heimi
Yanmar bátavélar hafa verið mjög
vinsælar hér á landi. Er hægt að
fá vélar í stærðum allt frá 6-6.400
hestöfl. Meðal fyrirtækja sem hafa
selt Yanmar vélar á Íslandi eru
Marás í Garðabæ. Þá hefur Merkúr
í Reykjavík m.a. boðið upp á belta-
gröfur frá Yanmar.
Solis líka á Íslandi
Vallarbraut er með umboð fyrir
Solis dráttarvélamerkið og hófst
innflutningur þeirra árið 2016, fyrst í
gegnum fyrirtækið Vallarnaut. Solis
dráttarvélafyrirtækið var stofnað á
Indlandi 1969. Solis dráttarvélarnar
hafa verið fáanlegar í Evrópu frá
2012 og töluvert hefur selst af þeim.
Þá eru þær mikið seldar á Írlandi,
Bretlandi, Þýskalandi og Danmörku
en þær hafa selst við góðan orðstír í
yfir 80 löndum.
Vélarnar hafa einkum notið vin-
sælda vegna einfaldleika í hönnun
og búnaði.
Yanmar mun líka framleiða
dráttarvélar undir eigin nafni
Mun Yanmar halda áfram að fram-
leiða Solis dráttarvél og einnig drátt-
arvélar undir merki Yanmar.
„Yanmar hefur verið í samstarfi
við ITL síðan 2005,“ sagði Mustafa
Kemal Erdogan, stjórnarformaður
Yanmar Tyrklands Makine A.Ş.
Framleiðir Yanmar reyndar þegar
nokkrar gerðir lítilla dráttarvéla eins
og YT235, YT347 og YT349 sem
fæst með 47 til 59 hestafla mótorum.
Væntanlega munu nást talsverð sam-
legðaráhrif með kaupunum á Solis
sem framleiðir talsvert breiðari línu
dráttarvéla.
„Við höldum áfram þessu sam-
starfi sem einn af stærstu hluthöfum
Solis Traktör frá og með 2016. Við
erum ánægð með að Solis Tractor
Industry and Trade Inc., sem grund-
völlur var lagður að í Izmir árið
2017, hefur nú gengið til liðs við
Yanmar,“ sagði Erdogan.
Yanmar hefur verið framleið-
andi lítilla og stórra véla fyrir
alþjóðlegan atvinnurekstur á sjó og
landi. Markmið Yanmar er að koma
með lausnir í greinum sem tengjast
matvælaiðnaði undir kjörorðunum
„Sjálfbær framtíð“. /HKr.
Solis S90 Kabinli, sem er 84.3 hestafla dráttarvél.
Yanmar „dual fuel“ dísilvél sem
brennir líka gasi. Hún minnkar CO2
útblástur um 25% miðað við hefð-
bundna dísilvél, brennisteinsoxíð,
SOx, um 99% og NOx um 80%.
Bænda
17. desember