Bændablaðið - 03.12.2020, Page 37
Bændablaðið | Fimmtudagur 3. desember 2020 37
byko.is
YLEININGAR ERU LÉTTAR
STÁLKLÆDDAR SAMLOKU-
EININGAR SEM FÁST
MEÐ ÞÉTTIFRAUÐS- EÐA
STEINULLARKJARNA.
Einingarnar eru sterkar og burðarmiklar og fást
með mismunandi yfirborði og litum að eigin vali.
Helstu kostir þess að nota samlokueiningar er
auðveld og fljót uppsetning, auðveld þrif, mikil
burðargeta, mikið einangrunargildi og er ódýr
kostur ef miðað er við hefðbundnar lausnir.
Yleiningar henta vel fyrir eldri gripahús þar sem
skipta þarf út þak- og eða vegg jaklæðningum.
BALEX yleiningar eru framleiddar undir
ströngu eftirliti samkvæmt viðurkenndum
evrópskum stöðlum.
Hafðu samband: bondi@byko.is
YLEININGAR
Íslensk framleiðsla
á Bílskúrs- og Iðnaðarhurðum
564-0013 | 865-1237
REKSTRARLAND ER BAKHJARL BÆNDA
Í Rekstrarlandi fást allar almennar rekstrarvörur fyrir landbúnað. Nilfisk háþrýstidælur,
Exide rafgeymar, gæðasmurefni og olíur á vélarnar, Ecolab lágþrýstiþvottatæki ásamt
hreinsiefnum, sótthreinsandi og græðandi vökvar fyrir spena og júgur.
Rekstrarland | Vatnagörðum 10 | 104 Reykjavík | 515 1100 | Austurvegi 69 | 800 Selfossi | 480 1306 | rekstrarland.is
NÝ VERSLUN Á SELFOSSI
Bænda 56-30-300
UTAN ÚR HEIMI
Klárir fuglar:
Mávar tímasetja
heimsóknir sínar
Nýlegar rannsóknir
Háskólans í Bristol á
Englandi benda til að
mávar tímasetji komu
sína og heimsæki
ólíka staði þar sem er
von um æti eftir því
hvenær ætisvonin er
mest. Þetta og aukin
lífrænn úrgangur er
meðal annars talið geta
skýrt gríðarlega fjölgun
máva í heiminum síð-
ustu 40 ár.
Skoðun á atferli
máv anna sem var gerð
sýndi að þeir áttu það
til að koma á skólalóðir
skömmu áður en frímín-
útur hæfust og sérstak-
lega þær frímínútur sem
börnin borðuðu yfirleitt
nestið sitt utandyra. Um
leið og skólabjallan
hringdi inn og frímínút-
unum lauk helltu máva-
rnir sér yfir skólalóðina
og hirtu afganga eða mat
sem börnin skildu eftir.
Rannsóknin sýndi einnig
að um helgar sætu máva-
rnir um svæði þar sem lík-
legast væri æti og sniðgengu skólana.
Í rannsókninni var fylgst með
hópi máva sem hafa aðsetur í Bristol
með GPS-staðsetningartækjum
sem komið var fyrir á fuglunum.
Niðurstöður rannsóknanna var birt í
IBIS, International journal og Avian
science.
Auk þess er talið að mávarnir
séu orðnir áræðnari þegar kemur
að því að stela mat úr höndunum á
fólki og jafnvel steikum af grillinu
eins og dæmi eru um hér á landi.
Í kjölfar rannsóknanna bár-
ust aðstandendum hennar fjöldi
ábendinga víða að í heiminum um
svipaða hegðun og að svo virð-
ist sem hegðun mávanna sé orðin
ágengari.
Gríðarleg aukning lífræns
úrgangs og hæfileiki mávanna
til að læra og aðlagast er meðal
annars talin vera ástæða þess að
mávum hefur fjölgað gríðarlega
í heiminum á síðustu áratugum.
/VH
Mávarnir eru orðnir áræðnari þegar kemur að því að stela mat úr höndunum
á fólki og jafnvel steikum af grillinu eins og dæmi eru um hér á landi.