Bændablaðið - 03.12.2020, Blaðsíða 41
Bændablaðið | Fimmtudagur 3. desember 2020 41
Á dögunum var haldinn staf ræni
leiðtogafundurinn Choos ing
Green, í aðdraganda loftslags
viðræðna COP26 í Glasgow,
sem Norræna ráðherranefndin
og Norðurlöndin í Brennidepli
stóðu fyrir. Þar komu saman
meira en 50 fulltrúar ungmenna
hreyfinga, iðnaðarins, félags
legra stofnana, félagasamtaka,
vísindafólks, aðgerðarsinna í
loftslagsmálum og stjórnmála
fólk til að ræða græn umskipti á
Norðurlöndunum í skugga kór
ónuveirunnar.
Áskoranir grænna umskipta
Á sex umræðufundum „Choosing
Green“ var rætt um flókin mál
efni sem snéru að hlutverki
Norðurlandanna í hnattrænum
loftslagsaðgerðum og áskorunum
sem snúa að því að tryggja fé
lagslega sjálfbær græn umskipti.
Árið 2020 átti að vera loftslags
árið. Hvernig virkjum við alla?
Og hvernig getur norræna vel
ferðarlíkanið orðið stuðningur, til
dæmis til að ná fram félagslegu
réttlæti? Afleiðingar hins nýja
græna veruleika fyrir vinnumark
aðinn, samkeppnishæfni og ekki
síst menntageirann var einnig
meðal umræðuefna á leiðtoga
fundinum.
Lögð var mikil áhersla á megin
regluna „Leave no one behind“
og slagsíða loftslagsáskorananna
þegar kemur að þjóðfélagshópum
sem eru í viðkvæmri stöðu var
til umræðu á leiðtogafundinum.
Einnig var bent á loftslagsspor
Norðurlandanna og því velt upp
hvort lífsstíll okkar sé raunverulega
til eftirbreytni. Við búum við þá
staðreynd í dag að 10% íbúa jarðar
nota meira en helming af sameigin
legum auðlindum jarðarinnar sem
er umhugsunarvert.
Allir þjóðfélagshópar
með í samtalinu
Norðurlöndin standa sig vel á
mörgum sviðum en það er einfald
lega ekki nóg og því verðum við
að vera metnaðarfull þegar það
kemur að aðgerðum vegna lofts
lagsvárinnar – það þarf að grípa til
nauðsynlegra aðgerða strax. Það
verður að leggja áherslu á raunveru
lega þátttöku ungs fólks í samtal
inu og sérstaklega í ákvarðanatöku.
Loftslagsváin er ekki einangrað mál
heldur mál sem verður að huga að
við ákvarðanatöku og stefnumótun á
öllum sviðum samfélagsins og brýnt
að rými sé fyrir ungt fólk til þátttöku
í þeirri vinnu.
Þörf er á að gæta þess að ein
stakl ingar úr mismunandi hópum
samfélagsins verði með í ákvarðana
töku í þessum málaflokki. Tryggja
þarf að þegar ráðist er í kerfislægar
breytingar á samfélaginu okkar í
þágu loftslagsins sé jafnrétti tryggt.
Við verðum að koma í veg fyrir það
ójafnrétti sem hlýst af loftslagsvánni
en einnig tryggja að okkar leiðir úr
henni stuðli að jöfnuði. Því er hér,
sem víðar, rými fyrir aukið norrænt
samstarf og er ekki úr vegi að hafa
lokaorðin hér eftir Paula Lehtomäki,
framkvæmdastjóra Norrænu ráð
herranefndarinnar sem lét eftirfar
andi orð falla á leiðtogafundinum:
„Við stöndum frammi fyrir mörgum
sameiginlegum áskorunum en við
eigum ekki síst fjölda sameiginlegra
lausna.“
Silja Dögg Gunnarsdóttir,
forseti Norðurlandaráðs,
Oddný Harðardóttir,
varaforseti Norðurlandaráðs,
Aldís Mjöll Geirsdóttir,
forseti Norðurlandaráðs
æskunnar.
Talinn galinn fjallar á opinskáan og
einlægan hátt um tilþrifamikið og fjölbreytt
líf Maggnúsar Víkings í 65 ár.
Það sem aðrir
íhuguðu
framkvæmdi
hann með
hvelli!
Fríar heimsendingar á
höfuðborgarsvæðinu
og á pósthús til
sendingar út á land.
Pantanir í síma 893-6599
HECHT rafmagns fjórhjól
Örugg og þægileg
Götuskráð fyrir 15ára og eldri
Verð 650.000 kr.
HECHT snjóblásari á beltum
7hp rafstart
Sex hraðar áfram og 2 aftuábak
Vinnslubreidd 66 cm
Verð 296.000 kr. m/vsk.
Helluhraun 4 Hafnarfirði
s. 565-2727 & 892-7502
Comac sótthreinsitæki
Sjáðu myndskeiðið á comac.is
Grensásvegi 16, Rvk. ✆ 445-4885
vortexvelar.is comac.is
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
GRAFAGRINDUR
GOTT ÚRVAL
KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10
104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is
Opnar stöðvar
Stöðvar í húsi
Stöðvar í gám
Aukabúnaður eins og sjálfvirkur
skiptirofi og fleira
Öflug og góð þjónusta
Gerðu kröfur — hafðu samband við
Karl í síma 590 5125 eða sendu línu
á kg@klettur.is og kynntu þér þína
möguleika.
Allar stærðir
af CAT raf-
stöðvum:
Hvernig virkjum við alla
til grænna umskipta?
LESENDABÁS
Aldís Mjöll Geirsdóttir. Oddný Harðardóttir. Silja Dögg Gunnarsdóttir.