Bændablaðið - 03.12.2020, Side 42
Bændablaðið | Fimmtudagur 3. desember 202042
Döðluplómur eru áhugaverður
ávöxtur, eða öllu heldur ber, sem
er farinn að ryðja sér til rúms
hér á landi. Ávöxturinn er upp-
runninn í Kína og nýtu mikilla
vinsælda í Asíu, ekki síst í Japan.
Aldinanna er oftast neytt hrárra,
eftir að hýðið hefur verið fjarlægt,
eða þurrkaðra.
Áætluð heimsframleiðsla
FAOSTAD, Tölfræðideildar
Matvæla- og landbúnaðarstofnunar
Sam einuðu þjóðanna, af kakí árið
2018 er um 4,7 milljón tonn.
Þar af framleiddi Kína um 3,1
milljón tonn, eða 66% heimsfram-
leiðslunnar. Spánn var í öðru sæti
með um 500 þúsund kíló, Suður-
Kórea í því þriðja með 300 þúsund
kíló og Japan í fjórða sæti með um
200 þúsund kíló. Auk þess sem
aldinið er ræktað til útflutnings í
Aserbaídsjan, Taívan, Úsbekistan,
Ítalíu og Ísrael.
Samkvæmt upplýsingum á vef
Hagstofu Íslands voru flutt inn tæp
8,4 tonn af Persimóníum árið 2019
og kom allt magnið frá Spáni.
Ættkvíslin Diospyros
Diospyros er stór ættkvísl sem telur
yfir 700 tegundir af sígrænum og
lauffellandi trjám og runnum. Flestar
tegundirnar vaxa villtar í hitabeltinu
en nokkrar í tempruðu beltunum
beggja vegna miðbaugs. Innan ætt-
kvíslarinnar er að finna tegundir
sem eru nýttar vegna viðarins sem
er bæði harður og dökkur en aðrar
eru nýttar vegna aldinanna eða sem
punttré. Lauf allra tegundanna er
gagnstætt og heilrennt. Plönturnar
eru einkynja og gegna býflugur stóru
hlutverki í frjóvgun þeirra.
Nokkrar tegundir innan ætt-
kvíslarinnar gefa af sér æt aldin og
eru ræktuð sem aldintré, D. virgini-
ana, D. digyna, D. discolor, D. lotus
og D. texana. Sú tegund sem er mest
nýtt í dag til manneldis og aðallega
verður fjallað um hér er D. kaki.
Tegundin Diospyros kaki
Aldin D. kaki kallast persimóníur
á vef Hagstofunnar, döðluplóma
samkvæmt Wikipediu en hér verður
það kallað kakí, persimónía eða döð-
luplóma allt eftir kenjum höfundar.
Persimóníutré ná allt að 12 metra
hæð og eru með opna og hringlaga
greinabyggingu sem verður 4 til 5
metrar að þvermáli. Trén eru með
djúpt vaxandi trefjarót og lauf-
fellandi. Stofninn gráleitur og með
flögum. Laufið dökkblágrænt, egg-
eða lensulaga, heilrennt, stinnt og
leðurkennt viðkomu, 7 til 15 sentí-
metrar að lengd og 2 til 4 að breidd.
Fær fallega gula, appelsínugula og
rauða haustliti. Trén eru einkynja
en í einstaka tilfellum tvíkynja
og blómstra á þriðja til sjötta ári.
Blómstra yfirleitt í maí og júní en
geta myndað blóm á öllum árstímum
í hitabeltinu. Blómin 2 til 2,5 sentí-
metrar að þvermáli, eilítið lúðurlaga
og með fjórum kremhvítum krónu-
blöðum. Karlblómin stundum með
bleikleitum blæ og oft þrjú saman
í hnapp og hvert með 24 frævla.
Aldinið kúlu- eða sporöskjulaga,
appelsínugul, gul og rauð, leifar af
fjórum bikarblöðum og aldinstöngli
eru áberandi á því. Ávöxturinn full-
þroska í október og nóvember eða
eftir lauffall trjánna og vegur allt að
500 grömm að þyngd. Hýðið slétt
og vaxkennt, aldinkjötið ljóst og
þétt í sér. Ung aldin innihalda tals-
vert tannín og eru römm en bragðið
mildast og verður aldinið sætara
og mýkra með auknum þroska.
Grasafræðilega flokkast kakí sem
ber. Fræin brún að lit og yfirleitt
átta í hverju aldini, dropalaga og um
hálfur sentímetri að lengd. Líftími
trjánna er 40 til 60 ár.
Yrki í ræktun skipta þúsundum
og í ræktun hafa náðst fram plöntur
sem bera bæði karl- og kvenblóm
og jafnvel tvíkynja blóm. Blóm
sem ekki frjóvgast mynda aldin án
fræja. Aldinfall ófrjóvgaðra ávaxta
er talsvert vandamál í ræktun og ekki
óalgengt að um 50% aldina falli af
áður en þau ná neysluhæfum þroska.
Uppruni og útbreiðsla
Persimóníutré eru upprunnin í Kína
og breiddust þaðan út með ræktun
til Austur-Asíu. Ræktun á döð-
luplómum hófst á Spáni og víðar
í löndunum við Miðjarðarhafið,
í Kaliforníu, Suður-Afríku og í
Brasilíu um miðja og í lok nítjándu
aldar.
Ekki er langt síðan Ítalía var
mesti ræktandi og stærsti útflytj-
andi kakí í Evrópu og þar er mest
ræktað af yrki sem kallast 'Tipo'.
Spánn hefur náð forskoti á Ítalíu og
er stærsti framleiðandi aldinsins í
Evrópu í dag. Algengustu yrkin í
ræktun á Spáni eru 'Rojo Brillante'
HELSTU NYTJAJURTIR HEIMSINS
Kakí er ávöxtur guða
Vilmundur Hansen
vilmundur@bondi.is
Þverskorin 'Fuyu' döðluplóma.
Kakíaldin í þurrkun í Kanzo-héraði í Japan. Aldinin eru afhýdd áður en þau eru hengd upp.
Uppskera á kakíaldinum fer öll fram með höndum.