Bændablaðið - 03.12.2020, Blaðsíða 49
Bændablaðið | Fimmtudagur 3. desember 2020 49
KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10
104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is
Við bjóðum upp á allar stærðir
og gerðir af Ingersoll Rand loftpressum.
Mjög hljóðlátar og einfaldar í viðhaldi.
Bjóðum upp á þjónustusamninga
og leggjum mikla áherslu á að veita
góða viðgerðar- og varahlutaþjónustu.
Gerðu kröfur — hafðu samband við
Gunnar í síma 590 5135 eða sendu línu
á gma@klettur.is og kynntu þér þína
möguleika.
Loftpressur
í hæsta
gæðaflokki
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
HAUGSUGU-
DÆLUR
6,500 - 9,500
11,000 - 13,500 lítra
HAUGSUGUHLUTIR
VARAHLUTIR
Þaulreynd hús við Íslenskar aðstæður
Stuttur afgreiðslutími
Z STÁLGRINDARHÚS
TÖLVUPÓSTUR
sala@bkhonnun . is
SÍMI
571-3535
VEFFANG
www .bkhonnun . is
ÆVISAGA STEFÁNS,
HREINDÝRABÓNDA
Á GRÆNLANDI
I S O R T O Q
Stefán hreindýrabóndi
Svava Jónsdótt i r
Ævi Stefáns Hrafns Magnússonar er ævintýri líkust.
Hann var alltaf í sveitinni fyrir vestan á sumrin.
Hann vildi verða bóndi og á unglingsárunum hafði
hann meiri áhuga á pólförum og landkönnuðum
heldur en popptónlist. Hann fór til Grænlands 15
ára gamall, hann útskrifaðist sem búfræðingur, vann
við hreindýrasmölun hjá Sömum í Noregi, lærði
hreindýrarækt í Svíþjóð, hann kenndi hreindýrarækt
í Alaska og tók flugmannspróf í Kanada. Hann fór
að vinna með grænlenska hreindýrabóndanum Ole
og hóf samstarf við hann og hefur verið í rúm 30 ár
hreindýrabóndi á jörðinni Isortoq á Suður-Grænlandi
þar sem Grænlandsjökull er í næsta nágrenni. Þetta
hafa verið áskoranir í gegnum árin. Stefán togaði mann
og vélsleða með tengivagni með handaflinu upp úr
ísilögðu vatni sem skemmdi á honum bakið. Hann skaut
björn og sér eftir því. Loftslagsbreytingar hafa haft
áhrif á reksturinn. Lax-á byggði í samvinnu við Stefán
glæsilegar veiðibúðir á landinu sem hann hefur til
umráða en veiðimenn víða að úr heiminum dvelja þar
við hreindýraveiði og silungsveiði.
S IMLA
IS
O
R
T
O
Q
S
te
fá
n
h
re
in
d
ý
ra
b
ó
n
d
i
S
v
a
v
a
J
ó
n
sd
ó
ttir
Bænda
bbl.is Facebook
Nánari upplýsingar gefur:
Grétar Hrafn Harðarson
Sími 892-1480
Nf: gretarhrafn@simnet.is
GRÆNU VELFERÐARGÓLFIN
www.comfortslatmat.com
BÆKUR&MENNING
Íslandsdætur
Íslandsdætur eftir
Nínu Björk Jónsdóttur
er komin út hjá
Sölku. Í henni er sögð
saga rúmlega 40
framúrskarandi kvenna
sem spanna tímann allt
frá upphafi byggðar á
Íslandi til dagsins í dag.
Bókin segir meðal
annars frá Hallveigu
Fróðadóttur, fyrstu nafn-
kenndu landnámskon-
unni, Fjalla-Höllu, sem
dvaldi áratugum saman á
hálendinu á flótta undan
réttvísinni, Vilhelmínu
Lever, fyrstu íslensku
konunni sem kaus í kosn-
ingum (heilum 19 árum
áður en konur fengu
þann rétt) og Ástu mál-
ara, sem einsetti sér að
finna starf þar sem hún
fengi borgað sömu laun
og karlmaður og varð
fyrst Íslendinga til að
ljúka meistaraprófi í
iðngrein. Í bókinni má
einnig lesa um fyrstu konurnar sem
gerðu ritstörf, myndlist, tónsmíðar,
leiklist og höggmyndalist að starfs-
vettvangi sínum, sem og frá fyrsta
kvenprófessornum, fyrstu konunni
sem lauk einkaflugmannsprófi, fyrstu
konunum sem tóku sæti í borgar-
stjórn, Alþingi, ríkisstjórn og fyrstu
konunni til að verða forseti Íslands.
Hér er einnig sögð saga kvenna sem
hafa skarað fram úr í íþróttum og list-
um, hafa ekki látið erfiðar aðstæður
stöðva sig eða hafa komist til æðstu
metorða á sínu sviði. Yngstu kon-
urnar í bókinni eru rétt að byrja að
láta til sín taka.
Um höfundinn
Nína Björk Jóns-
dóttir er með MA-próf
í alþjóðastjórnmálum,
próf í hagnýtri fjölmið-
lun og BA próf í frönsku
og stjórnmálafræði.
Hún er sendifulltrúi í
utanríkisþjónustunni og
g gnir í dag starfi for-
stöðumanns viðskipta-
þjónustu, en hefur m.a.
starfað í París og Genf.
Þá starfaði hún áður
sem blaða- og frétta-
maður í nokkur ár og
var friðargæsluliði á
Balkanskaganum.
Hugmyndina að bók-
inni fékk Nína þegar
hún var búsett erlendis
ásamt börnum sínum og
uppgötvaði að það vant-
aði bók um merkilegar
konur í Íslandssögunni.
Íslandsdætur er fyrsta
bók Nínu Bjarkar en hún
hefur einnig skrifað leikrit
sem sett hafa verið upp af
áhugaleikfélögum.
Auður Ýr Elísabetardóttir teiknar
fallegu myndir bókarinnar. Auður
Ýr er myndhöfundur, húðflúrari og
sjálfstætt starfandi listakona. Hún
lærði myndskreytingar í Academy
of Art í San Francisco.