Bændablaðið - 03.12.2020, Síða 54
Bændablaðið | Fimmtudagur 3. desember 202054
Fyrstu tvinn-bílarnir frá Jeep
sem eru með fjórhjóladrif, hátt og
lágt drif og eru með hærra undir
lægsta punkt en 20 cm eru komnir
í sölu hjá Ísband. Um síðustu helgi
gafst mér tækifæri á að prófa einn
af þessum bílum, en fyrir valinu
var Jeep Compass Trailhawk.
Stuttur prufuakstur en
bíllinn kom verulega á óvart
Þegar ég kom að bílnum var hann
fullhlaðinn á bílastæðinu fyrir utan
Ísband og ekkert annað en að drífa
sig af stað áður en næsta él skylli á.
Í upphafi var ekið á rafmagninu
og á 90 km hraða var bíllinn hávaða-
mældur áður en að bensínvélin færi í
gang. Mér til furðu þrátt fyrir lítinn
bíl á grófum ónegldum vetrardekkj-
um mældist hávaðinn inni í bílnum
ekki nema 67,4 db. Þessi bíll er að
mælast betur en flestir rafmagnsbílar
sem ég hef prófað (oftast mælast
rafmagnsbílar á bilinu 68-71db).
Sætin í bílnum sérlega góð, fljót
að hitna. Hitinn í stýrinu var kær-
kominn á þessum kalda laugardegi,
en bíllinn var fljótur að hitna að
innan.
Alls keyrði ég bílinn ekki nema
um 60 km og þar sem snjór er yfir
öllu var ekki hægt að prófa bílinn á
holóttum malarvegi.
Þess í stað prófaði ég bílinn á
frosnum slóða og fannst virknin í
fjórhjóladrifinu fín og bíllinn lipur í
slóðaakstri þó svo að ég hefði viljað
reyna betur á fjöðrunina.
Í lok bíltúrsins hafði ég ekið á
rafmagninu um 25 km og eftir á raf-
hlöðunni var 22% sem er uppgefið
7 km.
Margar stillingar á drifbúnaði
Eins og áður sagði er bíllinn fjór-
hjóladrifinn, með hátt og lágt drif.
Sjálfskiptingin er 6 gíra, en still-
ingarnar á skiptingunni eru sex;
Auto, sport, snow, sand, mud og rock.
Ég prófaði allar þessar stillingar og
munurinn var mikill.
Að taka af stað í hálum snjónum
í „snow“ stillingunni er þannig að
bíllinn einfaldlega tekur ekki spól
á neinu hjóli. Þetta er fyrsta „snow“
stillingin sem virkilega virkar af þeim
bílum sem ég hef prófað til þessa.
Í sport-stillingunni er skemmtileg-
ast að keyra, en þá dettur rafmagns-
mótorinn út og 240 hestafla bens-
ínvélin er hættulega fljót að henda
bílnum á „ökuleyfissviptingarhraða“.
Mest keyrði ég á „auto-still-
ingunni“, þá var rafmagnið inni, en
uppgefin drægni á fullri rafhlöðu
eru 50 km. Í kulda gæti ég trúað að
það sé eitthvað styttra (u.þ.b. 30 km
mundi ég halda).
Þegar komið er í miklar torfærur
þá kemur lága drifið sér vel og þegar
það er komið á er hægt að læsa hjól-
um og setja „rock-stillinguna“ á.
Bara plúsar, fann engan mínus
Oft hef ég talið upp plúsa og síðan
mínusa, nú ber svo við að ég fann
ekki neina mínusa á þessum tæpu 70
km sem ég ók bílnum.
Það sem ég var hrifnastur af
voru þessar sex stillingar á skipt-
ingunni fyrir mismunandi aðstæður
og hrifnastur var ég af virkni á snjó-
stillingunni.
Ljósin kvikna allan hringinn, hit-
inn í stýrinu, bíllinn fljótur að hitna,
öll sætin eru þægileg í að sitja, 230
W tengill fyrir lítil rafmagnstæki er
í bílnum.
Öryggisbúnaðurinn er mikill.
Akreinalesari, blindhornsvörn,
árekstravari, hraðastillir, bílastæða-
aðstoð (leggur sjálfur í stæði) og
margt fleira.
Ég vil banna varadekkslausa
bíla, en þessi bíll er með fullbúið
varadekk (man ekki eftir rafmagns/
bensínbíl sem ég hef prófað og var
með fullbúið varadekk).
Ef eitthvað væri til að gefa mínus
þá er það verðið á bílnum, en ódýr-
asti Jeep Compass Limited bíllinn er
á 5.999.000. Bíllinn sem ég prófaði
kostar 6.499.000, en í honum er svo
mikið af góðum búnaði að það er
ósanngjarnt af mér að kvarta undan
verðinu og fyrir vikið sem sagt,
enginn mínus.
Þetta verð miðast við forsölu-
verð, en vegna veikingar á gengi
og hækkunar á VSK um áramótin
næstu verður einhver hækkun frá
þessu verði. Vilji einhver fræðast
meira um bílinn þá má finna meiri
upplýsingar um Jeep á vefsíðunni
www.jeep.is.
VÉLABÁSINN
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
Jeep Compass Trailhawk
bensín/rafmagnsjepplingur
Jeep Compass Trailhawk. Myndir / HLJ
Hann kom vel út á grófum grjótslóðanum. Snjóstillingin virkar eins og hún á að virka.
Það eru ekki margir bílar sem bjóða
upp á 230 V 150W rafmagn.
Öll sætin eru þægileg og meira að segja miðjusætið aftur í er það líka.
Alvöru varadekk.
Hljóðvistin var með því besta sem
mælt hefur verið inni í bíl sem ég
hef prófað.
Þyngd 1.770 kg
Hæð 1.640 mm
Breidd 1.870 mm
Lengd 4.400 mm
Helstu mál og upplýsingar