Bændablaðið - 03.12.2020, Side 57
Bændablaðið | Fimmtudagur 3. desember 2020 57
Prjónaðir ástarvettlingar og lúffur
fyrir dömur og herra úr DROPS
Eskimo. Stykkið er prjónað með
mynstri með hjörtum.
DROPS Design: Mynstur nr EE-292 og nr EE-293
LÚFFA:
Stærð: S (M/L)
Garn: DROPS ESKIMO (fæst í Handverkskúnst)
- Rauður nr 08: 150 (150) g
- Rjómahvítur nr 01: 50 (50) g
ÁSTARVETTLINGAR:
Stærð: S (M/L)
Garn: DROPS ESKIMO (fæst í Handverkskúnst)
- Rauður nr 08: 150 (150) g
- Rjómahvítur nr 01: 50 (50) g
Prjónar: Sokkaprjónar nr 7 (stærð S) eða nr 8 (stærð
M/L) – eða þá stærð sem þarf til að 12L og 16 umf
í sléttu prjóni (stærð S) eða 11L og 15 umf í sléttu
prjóni (stærð M/L) verði 10x10 cm.
Sokkaprjónar nr 6 (stærð S) eða nr 7 (stærð M/L)
– fyrir stroff.
Úrtaka: Byrjið úrtöku 1 lykkju áður en komið er
að merki í hvorri hlið: Setjið 1L á hjálparprjón
fyrir aftan stykkið, takið 1L óprj, setjið lykkju
af hjálparprjóni aftur á vinstri prjón, prjónið 2L
slétt saman, lyftið óprj lykkjunni yfir = fækkað
um 2L. Endurtakið úrtöku í hvorri hlið vettlings
= fækkað um 4L í umferð.
Ástarvettlingur:
Stærð S er prjónuð á sokkaprjóna nr 6 og 7.
Stærð M/L er prjónuð á sokkaprjóna nr 7 og 8.
Stroff á vettlingum er prjónað hvort fyrir sig.
Síðan er lúffan/vettlingurinn settur saman og
prjónaður áfram sem eitt stykki. Stykkið er prjón-
að í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 21L á sokkaprjóna nr 6 eða 7 með
rauðu. Prjónið 1 umf sl, prjónið síðan stroff 1
sl/2 br. Þegar stykkið mælist 8 cm er prjónuð 1
umf slétt JAFNFRAMT er aukið út um 9L jafnt yfir
(aukið er út með því að slá uppá prjóninn eftir ca
aðra og 3. hverja lykkju) = 30L.
Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn
slétt, þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann
til þess að koma í veg fyrir göt). Skiptið yfir á
sokkaprjóna nr 7 eða 8. Prjónið M.1 yfir allar
lykkjur. Prjónið nú 1 umf með rauðu JAFNFRAMT
er síðasta lykkja felld af = 29L. Setjið allar lykkjur
á þráð. Prjónið 1 stroff fyrir lúffu alveg eins.
Setjið stroffin saman á sokkaprjóna nr 7 til 8.
Prjónið 1 umf sl yfir allar lykkjur = 58L.
Setjið eitt prjónamerki í 29. lykkju og síðustu lykkju í
umf (= miðja að framan og miðja að aftan). Haldið
áfram í sléttu prjóni, JAFNFRAMT í síðustu umf er
lykkjum fækkað hvoru megin við prjónamerkin – SJÁ
ÚRTAKA Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls
5 sinnum = 38L. Prjónið 1 umf án þess að fækka
lykkjum. Setjið 2 ný prjónamerki í stykkið, í 10. og í
29. lykkju talið frá miðju að framan (= í hvora hlið). Í
næstu umf er lykkjum fækkað hvoru megin við nýju
prjónamerkin – SJÁ ÚRTAKA Endurtakið úrtöku í
annarri hverri umf alls 8 sinnum = 6L eftir.
Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem
eftir eru og herðið að. Festið vel.
Frágangur: Saumið saman lykkjurnar yst efst
á strofii.
Lúffa/ur
Stærð S er prjónuð á sokkaprjóna nr 6 og 7.
Stærð M/L er prjónuð á sokkaprjóna nr 7 og 8.
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið
upp 21L á sokkaprjóna nr 6 til 7 með rauðu.
Prjónið 1 umf sl, prjónið síðan stroff 1L sl/2L br.
Þegar stykkið mælist 8 cm er prjónuð 1 umf slétt
JAFNFRAMT er aukið út um 3L jafnt yfir (aukið er
út með því að slá uppá prjóninn eftir 7. hverja l.
Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn
slétt, þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann til
þess að koma í veg fyrir göt) = 24L. Skiptið yfir
á sokkaprjóna nr 7 til 8. Prjónið M.1 yfir allar
lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í 9. lykkju. Þegar
M.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er haldið
áfram með rauðu þar til stykkið mælist 14 cm.
Aukið nú út með því að slá uppá prjóninn hvoru
megin við lykkju með prjónamerki fyrir þumal.
Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn
slétt. Endurtakið útaukningu í næstu umf = 5L
fyrir þumal. Prjónið 2 (3) umf án útaukninga.
Setjið síðan 5 þumallykkjur á þráð. Fitjið upp
1 nýja L fyrir aftan L á þræði = 24L. Setjið tvö
prjónamerki í stykkið, í 1. og í 13. lykkju (=
hliðar).
Haldið áfram í sléttu prjóni. Þegar stykkið mælist
24 (26) cm er fækkið lykkjum hvoru megin við l
með prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið
úrtöku í hverri umf alls 5 sinnum = 4L eftir.
Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem
eftir eru og herðið að. Festið vel.
ÞUMALL:
Setjið 5 þumallykkjur aftur til baka á sokkaprjóna nr
7-8. Prjónið upp 5L aftan við þumal = 10L. Haldið
áfram hringinn í sléttprjóni þar til þumallinn mælist
5 (6) cm. Setjið tvö prjónamerki í þumalinn, í 1. og í
6. L (= hliðar). Í næstu umf er lykkjum fækkað hvoru
megin við lykkjur með prjónamerki. Endurtakið
úrtöku í næstu umf = 2L eftir.
Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir
eru, herðið að og festið vel.
HÆGRI VETTLINGUR:
Fitjið upp og prjónið eins og vinstri vettlingur, nema
spegilmynd. Setjið prjónamerki í 4.L fyrir útaukningu
á þumli.
Hekluð snúra (einungis fyrir lúffur):
Heklið 120 cm langa snúru með ll með 2 þráðum af
rauður á heklunál nr 10. Snúran er saumuð föst að
innanverðu á hvora lúffu við hlið á þumli.
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300
Ástarvettlingar
HANNYRÐAHORNIÐ
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma
fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um.
Létt
Þung
Miðlungs
6 1 5 8 2
3 9 4 1
7 5 8 1 4
5 8 2 4
5 9 4 6 3 1
1 4 7 9
1 3 7 5 9
6 2 5 3
2 5 9 4 7
Þyngst
9 5 3 6 8
3 6 7
6 2 4 3 9
3 2 9 8
5 8
1 7 3 4
4 6 5 8 1
7 2 4
1 9 6 2 7
3
5 8 1 4 7
1 3 6 8
4 5 3
3 6
4 6 3
7 1 3 2
6 5 2 7 9
1
8 4 3
3 6 1 2
4 2
8 4 6 3
7 2 4 5
3 7
8 1 9 6
7 2 8
Fór í eina af bröttustu vatns-
rennibrautum á Tenerife
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
Kristján Hrafn, eða Krummi eins
og hann er alltaf kallaður, býr
á Ísafirði og æfir fótbolta með
Vestra og handbolta með Herði.
Fjölskyldan á nokkrar kindur sem
á sumrin ganga um fjöllin fyrir
vestan og á haustin er skemmtilegt
að smala þeim aftur heim.
Nafn: Kristján Hrafn Kristjánsson.
Aldur: 12 ára.
Stjörnumerki: Naut.
Búseta: Á Ísafirði.
Skóli: Grunnskólinn á Ísafirði.
Hvað finnst þér skemmtilegast í
skólanum? Íþróttir.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt?
Hundur.
Uppáhaldsmatur: Mexíkóskt
lasagna.
Uppáhaldshljómsveit: Imagine
dragons.
Uppáhaldskvikmynd: Harry Potter
og Jumaji.
Uppáhaldsbókin þín? Harry Potter.
Fyrsta minning þín? Veit ekki.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á
hljóðfæri? Fótbolta og handbolta.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú
verður stór? Atvinnumaður í fót-
bolta eða handbolta.
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Ég fór í eina af bröttustu
vatnsrennibrautum á Tenerife.
Hvað verður skemmtilegt að gera í
vetur? Fara á skíði.
Næst » Kristján Hrafn skorar á
frænku sína, Hildigunni Sigrúnu,
að svara næst.
STIGA
ST5266 P
40 ár
á Íslandi
Hágæða
snjóblásarar
fjölbreytt úrval
Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is
VETRARSÓL er umboðsaðili
Gulltryggð gæði