Hugur og hönd - 2020, Page 13
HUGUR OG HÖND 2020 13
Þvotturinn fór fram í stóru
þvottakari með mildri
forvörslusápu. Kjóllinn lá í stuttan
tíma í sápuvatninu sem flaut yfir
hann og síðan hófst þvotturinn.
Svömpum var þrýst varlega á
efnið til að ná áratuga gömlum
skítnum úr kjólnum. Eftir
þvottinn var kjóllinn skolaður
með hreinu vatni nokkrum
sinnum. Mikill skítur flaut upp og
teknar af og þvegnar. Sökum þess
hve kjóllinn var krumpaður og
skítugur var tekin sú ákvörðun að
þvo kjólinn í mildri sápu. Allt
ferlið var ljósmyndað.
Skítur og krumpur í textílum
geta haft verri afleiðingar fyrir
textílinn en þvottameðhöndlun
svo þess vegna var ákveðið að þvo
kjólinn og létta á efninu.
tekinn sundur í mittið og pilsið er
fellt. Treyjan er fóðruð og henni
krækt saman en fallegar tölur eru
til skrauts. Faldur neðan á pilsi er
einnig fóðraður.
Kjóllinn var víða rifinn og
bættur. Yngri viðbætur eru ekki
vel gerðar og augljóst að þar er
ekki sama handbragð á ferð.
Við ástandsskoðun kjólsins
kom í ljós að hann var mjög
krumpaður, skítugur, sótugur og
víða rifinn. Nokkrar grófar
viðgerðir voru á kjólnum. Hvítar
líningar framan á ermum og í
hálsmáli voru nú dökkar af sóti og
skít. Kjóllinn hafði verið styttur
að framan með grófum þræði og
stórum saumsporum. Tölur á
kjólnum eru úr málmi og pappír,
með blárri glerkúlu í miðju.
Þær breytingar sem höfðu verið
gerðar á kjólnum voru látnar
halda sér. Búið var að bæta við
vasa á pilsið, líningunum sem fyrr
var talað um og hann styttur að
framan. Saga kjólsins er talin
mikilvægari en að færa hann í
upprunalegt horf.
Á Þjóðminjasafni var kjóllinn
mældur hátt og lágt, myndaður og
hreinsaður.
Hann var ryksugaður varlega á
réttu og röngu með þar til gerðri
forvörsluryksugu. Tölur voru
teknar af og þær hreinsaðar með
eyrnapinnum og vatni. Líningar Kjóll ryksugaður.
Nærmynd af treyju.Nærmynd af saumum, fínum og grófum.